Læknablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 48
AUGLÝSING
Vorfundur Félags kvenna
í læknastétt á íslandi
Vorfundur félagsins verður þann 7. júní næstkomandi.
Dagskrá:
Græðandi og líknandi kvennahendur: gönguferð um miðborgina með leiðsögn Birnu Þórðardóttur.
Lagt af stað kl. 18 frá Hallgrímskirkju.
Kvöldverður í Munnhörpunni (veitingahúsi Hörpunnar) kl. 20.
Allar konur í læknastétt og í hópi læknanema velkomnar og leiðsögn er án kostnaðar fyrir félagskonur en kostar kr.
3000. Kvöldverður verður pantaður fyrirfram og greiðist á staðnum. Skráning nauðsynleg á netfangið
fklisland@amail.com
Með von um góða þátttöku, stjórn Félags kvenna í læknastétt á íslandi
Styttur sérlyfjaskrártexti AVAMYS 27,5 mlkrógrömm/
úðaskammt, refúði, dreifa
Ábendingar: Fullorðnir, unglingar (12 ára og eldri) og börn (6
- 11 ára): Avamys er ætlað til meðferðar við einkennum
ofnæmiskvefs. Skammtar og lyfjagjöf: Flútíkasónfúróat-nefúði
er eingöngu til notkunar í nef. Fullorðnir og unglingar (12 ára
og eldri): Ráðlagður upphafsskammtur er tveir úðaskammtar
(27,5 míkrógrömm af flútíkasónfúróati í hverjum úðaskammti)
í hvora nös einu sinni á dag (heildardagskammtur, 110
míkrógrömm). Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur
náðst gæti mínni skammtur, einn úðaskammtur í hvora nös,
nægt til viðhaldsmeðferðar. Börn (6 til 11 ára): Ráðlagður
upphafsskammtur er einn úðaskammtur í hvora nös einu sinni
á dag (heildardagskammtur, 55 míkrógrömm). Sjúklingar sem
sýna ekki fullnægjandi svörun við einum úðaskammti í hvora
nös einu sinni á dag geta notað tvo úðaskammta í hvora nös
einu sinni á dag. Þegar fullnægjandi stjórn á einkennum hefur
náðst er mælt með því að minnka skammtinn niður í einn
úðaskammt í hvora nös, einu sinni á dag. Börn yngri en 6 ára:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfins hjá börnum yngri en 6
ára. Aldraðir sjúklingar, sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi,
sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi: Engin þörf er á aðlögun
skammta hjá þessum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu
eða einhverju hjálparefnanna í Avamys. Sérstök varnaðarorð
og varúðarreglur við notkun: Flútíkasónfúróat umbrotnar
verulega i fyrstu umferð um lifur, því er líklegt að almenn
útsetning fyrir flútíkasónfúróati, gefnu um nef, sé aukin hjá
sjúklingum með alvarlegan lifrarsjúkdóm. Samhliða gjöf
rítónavírs er ekki ráðlögð. Áhrif á líkamann í heild geta komið
fram vegna notkunar barkstera i nef, sérstakiega vegna stórra
skammta sem ávísað er til langs tíma. Greint hefur verið frá
vaxtarskerðingu hjá börnum sem fá barkstera í nef í skráðum
skömmtum. Mælt er með því að reglulega sé fylgst með hæð
barna sem fá langvarandi meðferð með barksterum í nef.
Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Brotthvarf
flútíkasónfúróats gerist hratt með verulegum umbrotum í
fyrstu umferð um lifur, fyrir tilstilli cýtókróm P450 3A4.
Meðganga og brjóstagjöf: Engar fullnægjandi niðurstöður
liggja fyrir varðandi notkun flútíkasónfúróats hjá þunguðum
konum. Flútíkasónfúróat skal aðeins nota á meðgöngu ef
ávinningur fyrir móðurina er meiri en möguleg áhætta fyrir
fóstrið eða barnið. Ekki er vitað hvort flútíkasónfúróat skilst út
í brjóstamjólk hjá konum. Hjá konum með barn á brjósti ætti
gjöf flútíkasónfúróats einungis að koma til greina ef
væntanlegt gagn fyrir móðurina er meira en hugsanleg áhætta
fyrir barnið. Aukaverkanir: Öndunarfæri, brjósthol og miðmæti
Mjög algengar: Blóðnasir. Algengar: Sáramyndun í nefi.
Nánari upplýsingar www.serlyfjaskra.is
Pakkningar og verð 01.04.11; Avamys 27,5 pg, 120 úðaskam-
matar verð kr. 2.764
Fulltrúi markaðsleyfishafa: GlaxoSmithKline ehf. Þverholti 14,
105 Reykjavik.
* Rannsóknirnar á árstíðabundnu ofnæmiskvefi voru
framkvæmdar á fullorðnum og ungmennum.2'5
f í samanburði við lyfleysu.
Heimildir:
1. Canonica GW. A survey of the burden of allergic rhinitis in
Europe. Allergy 2007; 62 (85):17-25.
2. Fokkens WJ, Jogi R, Reinartz S etal. Once daily fluticasone
furoate nasal spray is effective in seasonal allergic rhinitis
caused by grass pollen. A//ergy 2007; 62:1078-1084.
3. Kaiser HB, Naclerio RM, Given J et al. Fluticasone furoate
nasal spray: a single treatment option for the symptoms of
seasonal allergic rhinitis. J Allergy Clin Immunol 2007;
119(6): 1430-1437.
4. Martin BG, Ratner PH, Hampel FC et al. Optimal dose
selection of fluticasone furoate nasal spray for the treatment
of seasonal allergic rhinitis in adults and adolescents. Allergy
Asthma Proc 2007; 28(2); 216-225.
5. Ratner P, Andrews C, van Bavel J et al. Once-daily
fluticasone furoate* nasal spray (FF) effectively treats ocular
symptoms of seasonal allergic rhinitis (SAR) caused by
mountain cedar pollen.'USAN approved name. JAIIergy Clin
Immunol 2007; 119(Supp 1): S231 .Date of preparation:
Febrúar 2009
388 LÆKNAblaðið 2011/97