Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 46
ÖLDUNGADEILD Tuto, cito et Steingrímur Matthíasson (1876-1948) Steingrímur læknir Matthíasson var lipur penni. í Læknablaðinu má finna fjölda greina eftir hann um margvísleg efni. í aprílblaði fyrsta árgangsins 1915 er að finna pessar skemmtilegu leiðbeiningar um hvernig læknir á að búa sig í vitjanir svo gætt sé öryggis, flýtis og þæginda. Sérhver kollega, sem um nokkur ár hefir þjónað læknisstörfum í voru strjálbygða og örðuga landi, mun finna til þess, hve ferðalög í misjöfnu veðri slíta manni út, engu síður en íverufötunum. Eg hefi oft fundið sáran til þess, hversu það er illa samrýmanlegt, að fást við áhyggjusamar óperatíónir, og eiga svo að þeytast á illgengum jálkum í ófærð og kulda langar leiðir, og til lítils gagns oft og tíðum. Engin furða þó maður reyni að bollaleggja margt, til að gera hið óhjákvæmilega ferðalag þægilegra en það er. Mikið öfundaði eg Þórð kollega í Rönne af mótor-hjólhesti, sem hann gat þeyst á í hendingskasti um Borgundar- hólm, þegar á lá og hann þurfti að flýta sér. - Því fátt er það við ferðalagið, sem ergir mig eins og tímaeyðslan, - að geta ekkert aðhafst annað en að stritast við að sitja á hestinum. Það er eitthvað annað, að geta í hvaða veðri sem er setið í jámbrautarvagni, eða ekið í lokuðum vagni (drosche), eins og sjálenzkur læknir, sem eg eitt sinn víkarieraði fyrir. Þarna gat maður setið í makindum og lesið sig sprenglærðan á leiðinni, t. d. um meðferð sjúkdómsins (sem ekki veitti af á þeim tíma). jucunde! Læknablaðið 1915; 1: 61-2. Vonandi fáum við áður en langt um líður bifreiðar víðsvegar um land, og verður það mikill tímasparnaður og þægindi. - Síðan eg eignaðist góðan hest, finn eg betur til þess en áður, hvílíkur heilsuspillir það er, að sitja á húðarklárum, eins og oft er vant að setja undir lækna. (Góðir hestar em svo óvíða til.) En einn hestur er ekki nóg, tvo hesta ætti hver læknir að eiga, sem ferðast mikið, annan klár hest og hinn vekring. Það er vandi að búa sig vel. Þó gott sé veður þegar lagt er af stað, getur skjótlega breyzt veður í lofti, og iðrast maður oftar eftir að hafa búið sig oflítið, en ofmikið. - Þess vegna hefir reynslan kent mér, að hafa í töskunni Mývatns- hettu, sokka og vetlinga til vara í öllum vetrarferðum. Lengi framan af fór eg illa í augun- um. Það þarf sterk augu til að þola að riðið sé langt móti stormi eða úrkomu. Sumir fá höfuðverk og nevralgiae, en hvað mig snertir fékk eg stýrur í augun og gat ekki lesið á eftir. En þetta kemur aldrei fyrir síðan eg fékk hlífðargleraugun hjá Andrési kollega Fjeldsteð. Hann gaf mér gleraugun, svo eg veit ekki hvað þau kosta; en þau eru mesta þing. Sams konar gleraugu nota menn á bifreiðum og flugvélum. Mér finnast þau ómissandi, bæði í stormi og rigningu og líka í stórhríð. 1 stórhríðum nota eg ætíð Mývatns- hettuna, sem Gísli Pétursson læknir kendi mér að nota, og get eg ekki nógsamlega lofað það fat. Og þegar eg nú þar að auki hefi hlífðargleraugun hans Andrésar fyrir hettuopinu, þá líður mér vel, hver fjandinn sem gengur á. Sumir mundu halda, að glerin döggvist í hríðinni, en það er að eins fyrst í stað og þvert á móti sér maður skár en með því að rýna gleraugnalaus. Bezta yfirhöfnin á hestbaki er léttur waterproofjakki (sem eg hef fengið Pál Stefánsson umboðssala til að útvega mér í Englandi, því "ei verður slíkt í búðum tekið"- kostar kr. 28-40 eftir gæðum). Hvort sem er frost eða úrkoma eða þurrakuldi, þá reynist mér svona löguð flík ágætlega vel. í afskaparigningum heldur þó jakkinn ekki vatni til lengdar, enda gagnar þá ekkert nema olíuföt frá hvirfli til ilja. í þess konar veðri og krapahríðum tek eg úr töskuhominu vaxdúksvetlinga og set á mig utanyfir venjulega vetlinga. Fótakuldinn er mörgum slæmur. Bezt hefir mér gefist að hafa háleista úr loðnu sútuðu lambskinni innan vatnsstígvélanna. Þetta er ódýrt og hlýrra en þó stígvélin sjálf séu fóðruð loðskinni. Fleira margt mætti um þetta skrifa, en það vil eg fela öðrum og býst eg við að margir kollegar hafi margt fleira upphugsað, sem oss öllum megi að gagni koma. STEINGR. MATTHÍASSON. Skopmyndin Árni Kristinsson hjartalæknir Teikning: Siguröur V. Sigurjónsson. Unidungadeild ^ Læknafélags íslands Stjórn Öldungadeildar: Öldungaráð Sigurður E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar Hörður Þorleifsson, Höskuldur Baldursson, Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Kristín Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Guðmundur Oddsson, Ásmundsson, Vigfús Magnússon Óli Björn Hannesson Umsjón síðu: Páll Ásmundsson 386 LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.