Læknablaðið - 15.06.2011, Page 46
ÖLDUNGADEILD
Tuto, cito et
Steingrímur
Matthíasson
(1876-1948)
Steingrímur læknir Matthíasson var lipur
penni. í Læknablaðinu má finna fjölda greina
eftir hann um margvísleg efni. í aprílblaði
fyrsta árgangsins 1915 er að finna pessar
skemmtilegu leiðbeiningar um hvernig læknir
á að búa sig í vitjanir svo gætt sé öryggis,
flýtis og þæginda.
Sérhver kollega, sem um nokkur ár hefir
þjónað læknisstörfum í voru strjálbygða
og örðuga landi, mun finna til þess, hve
ferðalög í misjöfnu veðri slíta manni
út, engu síður en íverufötunum. Eg
hefi oft fundið sáran til þess, hversu
það er illa samrýmanlegt, að fást við
áhyggjusamar óperatíónir, og eiga svo
að þeytast á illgengum jálkum í ófærð
og kulda langar leiðir, og til lítils gagns
oft og tíðum. Engin furða þó maður
reyni að bollaleggja margt, til að gera
hið óhjákvæmilega ferðalag þægilegra en
það er.
Mikið öfundaði eg Þórð kollega í
Rönne af mótor-hjólhesti, sem hann gat
þeyst á í hendingskasti um Borgundar-
hólm, þegar á lá og hann þurfti að flýta
sér. - Því fátt er það við ferðalagið,
sem ergir mig eins og tímaeyðslan, -
að geta ekkert aðhafst annað en að
stritast við að sitja á hestinum. Það er
eitthvað annað, að geta í hvaða veðri
sem er setið í jámbrautarvagni, eða
ekið í lokuðum vagni (drosche), eins
og sjálenzkur læknir, sem eg eitt sinn
víkarieraði fyrir. Þarna gat maður setið í
makindum og lesið sig sprenglærðan á
leiðinni, t. d. um meðferð sjúkdómsins
(sem ekki veitti af á þeim tíma).
jucunde!
Læknablaðið 1915; 1: 61-2.
Vonandi fáum við áður en langt um
líður bifreiðar víðsvegar um land, og
verður það mikill tímasparnaður og
þægindi. - Síðan eg eignaðist góðan
hest, finn eg betur til þess en áður,
hvílíkur heilsuspillir það er, að sitja á
húðarklárum, eins og oft er vant að
setja undir lækna. (Góðir hestar em svo
óvíða til.) En einn hestur er ekki nóg,
tvo hesta ætti hver læknir að eiga, sem
ferðast mikið, annan klár hest og hinn
vekring.
Það er vandi að búa sig vel. Þó gott
sé veður þegar lagt er af stað, getur
skjótlega breyzt veður í lofti, og iðrast
maður oftar eftir að hafa búið sig oflítið,
en ofmikið. - Þess vegna hefir reynslan
kent mér, að hafa í töskunni Mývatns-
hettu, sokka og vetlinga til vara í öllum
vetrarferðum.
Lengi framan af fór eg illa í augun-
um. Það þarf sterk augu til að þola að
riðið sé langt móti stormi eða úrkomu.
Sumir fá höfuðverk og nevralgiae, en
hvað mig snertir fékk eg stýrur í augun
og gat ekki lesið á eftir. En þetta kemur
aldrei fyrir síðan eg fékk hlífðargleraugun
hjá Andrési kollega Fjeldsteð. Hann gaf
mér gleraugun, svo eg veit ekki hvað
þau kosta; en þau eru mesta þing.
Sams konar gleraugu nota menn á
bifreiðum og flugvélum. Mér finnast þau
ómissandi, bæði í stormi og rigningu og
líka í stórhríð.
1 stórhríðum nota eg ætíð Mývatns-
hettuna, sem Gísli Pétursson læknir kendi
mér að nota, og get eg ekki nógsamlega
lofað það fat. Og þegar eg nú þar að
auki hefi hlífðargleraugun hans Andrésar
fyrir hettuopinu, þá líður mér vel, hver
fjandinn sem gengur á. Sumir mundu
halda, að glerin döggvist í hríðinni, en
það er að eins fyrst í stað og þvert á
móti sér maður skár en með því að
rýna gleraugnalaus.
Bezta yfirhöfnin á hestbaki er léttur
waterproofjakki (sem eg hef fengið Pál
Stefánsson umboðssala til að útvega mér
í Englandi, því "ei verður slíkt í búðum
tekið"- kostar kr. 28-40 eftir gæðum).
Hvort sem er frost eða úrkoma eða
þurrakuldi, þá reynist mér svona löguð
flík ágætlega vel. í afskaparigningum
heldur þó jakkinn ekki vatni til lengdar,
enda gagnar þá ekkert nema olíuföt
frá hvirfli til ilja. í þess konar veðri og
krapahríðum tek eg úr töskuhominu
vaxdúksvetlinga og set á mig utanyfir
venjulega vetlinga.
Fótakuldinn er mörgum slæmur. Bezt
hefir mér gefist að hafa háleista úr loðnu
sútuðu lambskinni innan vatnsstígvélanna.
Þetta er ódýrt og hlýrra en þó stígvélin
sjálf séu fóðruð loðskinni.
Fleira margt mætti um þetta skrifa,
en það vil eg fela öðrum og býst eg
við að margir kollegar hafi margt fleira
upphugsað, sem oss öllum megi að
gagni koma.
STEINGR. MATTHÍASSON.
Skopmyndin
Árni Kristinsson
hjartalæknir
Teikning: Siguröur V. Sigurjónsson.
Unidungadeild
^ Læknafélags íslands
Stjórn Öldungadeildar: Öldungaráð
Sigurður E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar Hörður Þorleifsson, Höskuldur Baldursson,
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Kristín Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll
Guðmundur Oddsson, Ásmundsson, Vigfús Magnússon
Óli Björn Hannesson
Umsjón síðu: Páll Ásmundsson
386 LÆKNAblaðið 2011/97