Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2013, Síða 19

Læknablaðið - 15.05.2013, Síða 19
1.0- ac 3096 - 2096 - 1096 -I Agatston skor 1 Lokað ■ 70-9996 ■ 50-6996 ■ 30-4996 □ 1-2996 □ Opið E (« 0.8“ 0.6- 0.4- 0^4 0^6 1 - Sértæki — Heildar Agatstonskor ---Viðmiðunarllna Mynd 2. Súlurit sem sýnir hvernig hlutfall kransæðaþrenginga skiptisl eftir því hvort tölvusneiðmynd afkransæðum (TS) eða hjartaþræðing (þræðing) greinir þrenginguna við mishátt Agalston-skor. >400. Kalkmagn í kransæðum jókst með aldri eins og mynd 1 sýnir. Miðgildi Agatston-skors var hæst í LAD, þá RCA, LCX og lægst í LM, bæði hjá körlum og konum. Meðaltími á milli TS og hjartaþræðingar var 67 dagar (±47 dagar). Veik en marktæk fylgni (tafla II) var á mældum kransæða- þrengslum milli TS og hjartaþræðingar miðað við sex stiga flokk- un (kappa-gildi, = 0,29 (p 0,001)). Mynd 2 sýnir hversu vel TS og hjartaþræðingu ber saman þegar greina á kransæðaþrengingar í 1668 kransæðasvæðum við mismunandi Agatston-skor. Allt í allt greindi TS 638 kransæðasvæði án þrenginga en hjartaþræðing 821. Af þeim voru rúm 55% (TS) og rúm 58% (hjartaþræðing) með Agat- ston-skor hærra en 100. Kransæðasvæði með 50-100% þrengingu voru alls 554 samkvæmt TS en 448 samkvæmt hjartaþræðingu. Af þeim höfðu um 52% (TS) og 54% (hjartaþræðing) Agatston-skor yfir 400. Samkvæmt TS voru 23 kransæðasvæði alveg lokuð en fleiri samkvæmt hjartaþræðingu, eða 43. Þegar kransæðasvæði var greint alveg lokað var Agatston-skor einstaklings í flestum til- fellum hátt, en þó undir 10 í fimm tilvikum. Alls voru 252 einstaklingar af 417 (60,4%) með a50% kransæða- þrengingu í einu eða fleiri kransæðasvæðum samkvæmt hjarta- þræðingu. Af þessum 252 einstaklingum var þrenging á einu kransæðasvæði í 51,6% tilfella, í 29,4% tilfella voru þrengingar á tveimur svæðum, í 12,7% tilfella á þremur svæðum og í 6,3% tilfella á öllum fjórum kransæðasvæðunum. Af þeim sem höfðu a50% kransæðaþrengingu voru 79,8% (201 einstaklingur) með þrengingu yfir 70% samkvæmt hjartaþræðingu. Tafla III sýnir hve vel greiningu með TS ber saman við niður- stöðu hjartaþræðingar. Annars vegar þegar einstaklingur er rétt greindur með kransæðaþrengingu (a50%, eitt eða fleiri svæði) og hins vegar þegar hvert og eitt kransæðasvæði er rétt greint a50% þrengt. Þegar horft er á einstakling óháð kransæðasvæði er næmi mikið (91,7%) en sértæki lítið (33.3%), en þegar hvert og eitt svæði um sig er skoðað snýst þetta við. Tafla IV sýnir áhrif kalks í kransæðum á hæfni TS til að greina rétt a50% kransæðaþrengingu. Sértæki minnkar og neikvætt for- spárgildi lækkar með hærra Agatston-skori. Sértæki fer úr 89,8% þegar skor er núll og niður í 63,5% þegar skorið er yfir 750, og neikvætt forspárgildi fer úr 93,0% þegar skor er núll og niður í Mynd 3. ROC-kúrfa (receiver operating characteristic) sem sýnir hversu vel Agat- ston-skor spáirfyrir um z50% kransæðaþrengingu. Bláa línan táknar skor ein- staklinga en próf sem fellur að grænu viðmiðunarlínunni er gagnslaust til greiningar. Besti Agatston-skor þröskuldurinn til að spáfyrir um z50% kransæðaþrengingu er 363 ogflatarmál undirferlinum er þá 0,664, enfyrirfullkomið próf væriflatarmálið undir ferlinum 1,0. Tafla III. Hæfni TS til að greirta z50% kransæðaþrengingu íeinstaklingi (óháð kransæðasvæði) og á hverju kransæðasvæði um sig. Næmi Sértæki PPV NPV Nákvæmni i50% kransæðaþrenging Einstaklingur 91,7 33,3 67,7 72,4 68,6 Kransæðasvæði 70,1 79,9 55,4 88,2 77,3 PPV = Jákvætt forspárgildi, NPV = Neikvætt forspárgildi Tafla IV. Hæfni TS til að greina rétt s50% kransæðaþrengingu við mismunandi Agatston-skor. Agatston-skor N Næmi Sértæki PPV NPV Nákvæmni 0 132 42,9 89,8 33,3 93,0 84,8 0,1-10 84 64,7 91,0 64,7 91,0 85,7 10,1-100 320 62,1 88,2 53,7 91,3 83,4 100,1-400 536 67,3 79,0 44,4 90,6 76,7 400,1-750 320 70,2 73,8 59,7 81,7 72,5 >750 276 79,7 63,5 65,4 78,3 71,0 N = fjöldi, PPV = jákvætt forspárgildi, NPV = Neikvætt forspárgildi 78,3% þegar Agatston-skor er yfir 750. Á hinn bóginn vex næmi og jákvætt forspárgildi hækkar með hærra skori. Agatston-skor var marktækt hærra hjá þeim sem greindust með kransæðaþrengingu (miðgildi 358) heldur en hjá þeim sem höfðu ekki marktæka þrengingu (miðgildi 135) (p-gildi 0,001). Á mynd 3 sést hve nákvæmlega skorið spáir fyrir um a50% kransæðaþreng- ingu. Agatston-skorið sem best spáði fyrir um 2:50% kransæða- þrengingu var 363 með 49,6% næmi, 80,0% sértæki og jákvætt og neikvætt forspárgildi 79,1% og 51,0%. Flatarmálið undir ferlinum er 0,664. Umræða Þessi rannsókn staðfestir það sem aðrar rannsóknir hafa sýnt1819 að þegar TS og hjartaþræðingu ber ekki saman er þrenging oftast of- LÆKNAblaðið 2013/99 243

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.