Læknablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 39
LÖGFRÆÐI 4 . PISTILL
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni sem þeir vilja að fjallað verði um.
Um vottorð
heilbrigðisstarfsmanna
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags íslands
DoggP@lis.is
Einstaklingar þurfa oft á vottorðum heil-
brigðisstarfsmanna að halda. Iðulega
tengjast þau einhverjum réttindum sem
einstaklingurinn getur fengið, leggi hann
fram vottorðið. Það skiptir því miklu að
slík vottorð séu rétt að efni til og að heil-
brigðisstarfsmaður votti ekki neitt annað
en hann getur staðið við, veit sannast
og réttast. Það er ábyrgðarhluti að gefa
út vottorð. Um útgáfu þeirra gildir til
dæmis 147. gr. almennra hegningarlaga nr.
19/1940. Þar segir að ef maður lætur frá
sér ranga skriflega yfirlýsingu eða gefur
skriflegt vottorð um eitthvað sem honum
er ekki kunnugt um og það er ætlað til
notkunar í dómsmálum, öðrum málefnum
sem varða hið opinbera eða gerðardóms-
málum, skal hann sæta sektum eða fang-
elsi allt að 4 mánuðum.
I lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr.
34/2012 er í 19. gr. fjallað um þessi efni.
Fyrirsögn 19. gr. laganna er: Vottorð, álits-
gerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur.
Greinin er svohljóðandi:
„Heilbrigðisstarfsmönnum ber að gæta var-
kárni, nákvæmni og óhlutdrægni við útgáfu
vottorða, álitsgerða, faglegra yfirlýsinga og
skýrslna og votta það eitt er þeir vita sönnur á
og er nauðsynlegt í hverju tilviki.
Heilbrigðisstarfsmönnum er skylt að láta hinu
opinbera í té vottorð um sjúklinga er þeir
annast þegar slíkra vottorða er krafist vegna
samskipta sjúklings við hið opinbera.
Ráðherra er heimilt í reglugerð að setja nánari
reglur um útgáfu vottorða, faglegra yfirlýsinga
og skýrslna."
Greinin er efnislega samhljóða 11. og
12. gr. læknalaganna frá 1988. í frum-
varpi því sem varð að lögum um heil-
brigðisstarfsmenn kemur fátt fram um
skýringu greinarinnar annað en það að
ekki eigi að þurfa að hafa mörg orð um
nauðsyn þess að hvers konar gögn á sviði
heilbrigðisþjónustunnar séu skýr og
greinargóð svo að ekki þurfi að velkjast í
vafa um innihald þeirra og merkingu.*
Með stoð í 2. mgr. 11. gr. læknalaga
voru settar reglur um gerð og útgáfu
læknisvottorða nr. 586/1991. Læknafélag
íslands benti síðastliðið haust á nauðsyn
þess að endurútgefa reglurnar. Það hefur
ekki verið gert en almennt er litið svo á að
stjórnvaldsreglur sem settar eru með stoð
í eldri lögum haldi gildi sínu að því marki
sem þær samrýmast nýjum lagaákvæðum.
Þar sem 19. gr. laga um heilbrigðis-
starfsmenn er efnislega samhljóða eldri
ákvæðum sem reglurnar byggðu á, er rétt
að telja þær í gildi og lagastoð þeirra í 3.
mgr. 19. gr.
11. mgr. 19. gr. felast þrenn fyrirmæli
til heilbrigðisstarfsmanna varðandi útgáfu
vottorða, álitsgerða, faglegra yfirlýsinga og
skýrslna. í fyrsta lagi að gæta ber varkárni,
nákvæmni og óhlutdrægni. í öðru lagi að
votta einungis það sem heilbrigðisstarfs-
maður veit sönnur á og í þriðja lagi að
votta einungis það sem nauðsynlegt er í
hverju tilviki.
Skilyrðið um óhlutdrægni er ný-
mæli. I 11. gr. læknalaga var eingöngu
mælt fyrir um varkárni og nákvæmni.
í óhlutdrægnisskilyrðinu felst að
heilbrigðisstarfsmaður þarf að gæta þess
til dæmis að láta ekki stjórnast af samúð
með sjúklingi. Þegar kemur að varkárni
og nákvæmni segir í reglunum frá 1991
að ganga skuli tryggilega úr skugga um
sönnur á persónu þeirri er vottorðið fjallar
um og að geta skuli heimilda þegar það á
við. Orðalag skal vera ljóst og ekki til þess
fallið að valda mistúlkun. Það skal þannig
úr garði gert að sá sem notar vottorðið
skilji innihald þess og markmið. Sérstak-
lega þarf að gæta þess að óviðkomandi að-
ilum séu ekki afhent læknisvottorð nema
fyrir liggi samþykki sjúklings eða lögráða-
manns hans.
Lögin og reglurnar leggja áherslu á að
það eitt skuli vottað sem sá sem vottorðið
ritar veit sönnur á. í því felst að í vottorði
skal ekki staðhæfa annað en það sem
vottorðsgjafinn hefur sjálfur sannreynt. í
vottorðinu ber að greina glögglega milli
frásagnar annarra, eigin athugunar þess
sem vottorðið ritar og álita hans. Forðast
skal staðhæfingar um óorðna framvindu
um ástand sjúklings er læknir lætur í ljós
álit sitt.
Þriðja efnisatriðið er það að votta það
eitt sem nauðsynlegt er í hverju tilviki.
I reglunum frá 1991 er bent á að við út-
gáfu vottorðs skuli læknir sérstaklega
hafa í huga tilgang vottorðsins. Þá ber
við gerð vottorð að hafa í huga að vottorð
getur orðið gagn sem getur haft afgerandi
þýðingu varðandi úrskurð opinberra aðila
og í dómsmálum. í dómsmálum getur
vottorðsgjafi þurft að staðfesta vottorð
fyrir dómi.
Nokkrar formreglur eru í reglunum
frá 1991, svo sem að vottorð skuli vélritað
eða skrifað með læsilegri hendi (blokk-
skrift). Geta skal nafns, heimilisfangs og
kennitölu sjúklings. Það skal dagsett og
undirritað með eigin hendi og greinilega
koma fram nafn, vinnustaður og sími vott-
orðsgjafa. Vanda ber allan frágang vott-
orðs, notast skal við íslenskt orðaval og því
aðeins erlend fræðiheiti að íslensk skorti.
Læknum er skylt að gefa hinu opinbera
vottorð um samskipti sín og sjúklings í
þeim tilvikum sem hið opinbera krefst
slíkra vottorða, sbr. og 2. mgr. 19. gr. Með
hinu opinbera er í þessu tilviki oftast vísað
til opinberra stofnana eins og Trygginga-
stofnunar ríkisins, Sjúkratrygginga íslands
og félagsmálayfirvalda. í öðrum tilvikum
en 2. mgr. 19. gr. nær til, verða vottorð ekki
gefin út nema með leyfi sjúklings.
“Frumvarp til laga um heilbrigðisstarfsmenn, skýringar við 19. gr. frumvarpsins, þskj. 147,147. mál.
Vefútgáfa Alþingistíðinda, althingi.is/altext/140/s/0147.html - apríl 2013.
LÆKNAblaöið 2013/99 263