Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 10
Enn er beðið
ráðgefandi álits
EFTA-dómstóls-
ins á öðru máli.
Prófaðu reiknivélina á www.on.is og sjáðu hvað þvottavélin
og þurrkarinn nota mikið rafmagn.
Við erum heppin að náttúran skuli sjá okkur fyrir meira en nóg
af orku til að létta okkur lífið svo um munar. Forsenda þess
að við getum farið vel með auðlindirnar og lækkað kostnað
er að vita hvað er í gangi og hversu mikla orku raftækin nota
að staðaldri. Á on.is er handhæg reiknivél sem auðveldar þér
að sundurliða orkunotkun heimilisins og meta kostnaðinn í
heild og við einstaka þætti.
Orka náttúrunnar framleiðir
og selur rafmagn til allra
landsmanna á samkeppnishæfu
verði. Við viljum nýta auðlindir
af ábyrgð og nærgætni og bæta
lífsgæðin í nútíð og framtíð.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
HVAÐ FER MIKIL ORKA Í ÞVOTTADAGINN?
NeyteNdaláN ekki er baNNað að setja ákvæði um verðtryggiNgu í láNasamNiNga
Verðtryggingin ekki í bönnuð í ESB
EFTA-dómstóllinn leggur það í hendur íslenskra dómstóla
að úrskurða lögmæti verðtryggingar. Ekki er ljóst hvenær
niðurstaða þeirra liggur fyrir en gríðarlegir fjármunir eru í
húfi. Enn er beðið álits EFTA-dómstólsins á því hvort heimilt
sé í neytendalánasamningum að miða við 0% verðbólgu við
útreikning lántökukostnaðar.
v erðtryggingin er almennt ekki í andstöðu við tilskip-un Evrópusambandsins um
ósanngjarna skilmála í neytenda-
samningum. Þetta kemur fram í
ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins
sem birt var í gær, fimmtudag. Dóm-
stóllinn leggur það í hendur lands-
dóms, í þessi tilviki Hæstaréttar, að
meta hvort verðtrygging falli inn-
an gildissviðs tilskipunarinnar og
hvort verðtrygging lánsfjár í neyt-
endasamningum teljist ósanngjarn
samningsskilmáli.
Þá er það niðurstaða EFTA-dóm-
stólsins að tilskipun Evrópusam-
bandsins takmarki ekki svigrúm
EES-ríkis til að ákveða með lögum
eða stjórnvaldsfyrirmælum hvaða
þættir geti valdið breytingum á fyr-
irfram ákveðinni vísitölu, á borð við
vísitölu neysluverðs, og eftir hvaða
aðferðum þær breytingar skuli
mældar, að því gefnu að þeim sé lýst
með skýrum hætti í samningnum.
Íslenskir dómstólar beindu fimm
spurningum til EFTA-dómstólsins
sem varða túlkun á tilskipuninni.
Óskað var eftir álitinu vegna dóms-
máls sem er rekið fyrir héraðsdómi
Reykjavíkur gegn Íslandsbanka hf.
Gunnar V. Engilbertsson tók verð-
tryggt húsnæðislán hjá Glitni upp
á 4,4 milljónir árið 2007. Höfuðstóll
lánsins hækkaði mikið eftir hrun
og hann ákvað að höfða mál til að
láta reyna á lögmæti verðtrygging-
arinnar.
Heildarmálið er þó mun stærra
því allir verðtryggðir lánasamning-
ar frá árinu 2000 til 2013 eru undir,
en heildarupphæð verðtryggðra
lána er um 1800 milljarðar. Ný lög
um neytendalán tóku gildi í fyrra.
Í sameiginlegri yfirlýsingu frá
fjármála- og efnahagsráðuneyti
og Seðlabanka Íslands vegna álits
EFTA-dómstólsins segir: „Dóm-
stóllinn leggur það í vald íslenskra
dómstóla að taka afstöðu til þess
hvort verðtrygging falli innan gild-
issviðs tilskipunarinnar og þá að
meta hvort verðtrygging lánsfjár í
neytendasamningum teljist ósann-
gjarn samningsskilmáli.“ Ekki er
ljóst hvenær endanleg niðurstaða
íslenskra dómstóla mun liggja fyrir.
Í áliti EFTA-dómstólsins segir
meðal annars að það sé landsdóm-
stólsins að meta hvort samnings-
skilmála um verðtryggingu af-
borgana af láni til fjármögnunar á
fasteignakaupum skuli teljast hafi
verið lýst fyrir neytandanum með
Allir verðtryggðir lánasamningar frá árinu 2000 til 2013 er undir, en heildarupphæð verð-
tryggðra lána er um 1800 milljarðar. Ný lög um neytendalán tóku gildi í fyrra.
skýrum og skiljanlegum hætti. „Slíkt
mat verður að taka mið af nákvæmu
orðalagi viðeigandi samningsskilmála og
öllum öðrum aðstæðum ... auk ákvæða
landsréttar um verðtryggingu,“ segir þar.
Verði endanleg niðurstaða sú að
verðtryggð neytendalán teljist ógild
og hvort endurreikna eigi lánin getur
það leitt til þess að leiðréttingar á verð-
tryggðum húsnæðislánum verði meiri
en þær leiðréttingaraðgerðir sem ríkis-
stjórnin hefur boðað.
Enn er beðið ráðgefandi álits EFTA-
dómstólsins á öðru máli sem héraðs-
dómur Reykjavíkur vísaði til hans
tveimur mánuðum seinna en máli
Gunnars. Þar var einni spurningu bætt
við sem snýst um hvort lánveitanda sé
heimilt að miða við 0% verðbólgu í lána-
samningi þegar heildarlántökukostn-
aður er reiknaður út. Samkvæmt nýjum
íslenskum lögum um neytendalán sem
tóku gildi á síðasta ári er ekki lengur
miðað við 0% heldur ársverðbólgu síð-
ustu 12 mánuði.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
10 fréttir Helgin 29.-31. ágúst 2014