Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 12

Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. R Rannsókn á vegum alþingis á orsökum hrunsins árið 2008 var í senn eðlileg og nauðsynleg. Efnahagslegar hamfarir í kjölfar falls bankanna settu þjóðina nánast á hliðina. Enn erum við að súpa seyðið af því sem gerðist fyrir sex árum og búum við höft sem torvelt hefur reynst að losna undan. Af þessum efnahagslegu hrakförum þarf að draga lærdóm svo koma megi í veg fyrir að slík ósköp endurtaki sig. Það er hins vegar ekki sama hvernig rannsóknum á vegum þingsins er staðið og það er þess að gæta að með- ferð fjármuna, afmarka þau verkefni sem vinna skal svo sem framast er unnt, áætla kostnað vegna þeirrar vinnu og gæta þess að kostnaðar- áætlanir standist. Fari svo að verk rannsóknarnefnda reynist viðameira en áætlað var þarf að taka á því sérstaklega og samþykkja auknar fjárveitingar, telji alþingi nauðsyn á því. Kostnaður við þrjár rannsóknarnefndir alþingis í kjölfar hrunsins sýnir að þessa kostnaðareftirlits hefur ekki verið gætt. Kostnaður við rannsóknarstarfið hefur farið úr böndum og eftirlitslaust virðist hafa verið haldið áfram með opinn tékkareikning á ríkissjóð, það er að segja skattgreiðendur. Alþingi brást í eftirlitshlutverki sínu, eins og Karl Garðarsson alþingismaður hefur bent á. Undir þá gagnrýni hefur Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður tekið, en báðir eiga sæti í fjárlaganefnd þingsins. Mestur fengur var í rannsóknarskýrslunni um aðdraganda og orsakir falls bankanna 2008, þótt dýr væri, 454 milljónir króna, en mikil vinna lá að baki en sú vinna gekk til- tölulega hratt. Fall bankanna var stærsti orsakavaldur hrunsins en meginniðurstaða Rannsóknarnefndar Alþingis var að skýr- ingar á falli Glitnis, Kaupþings og Lands- bankans hefðu, auk margs annars, verið of ör og áhættusamur vöxtur, meiri en inn- viðir þeirra þoldu. Stjórnvöld hefðu þurft að bregðast við þegar bankakerfið var orðið allt of stórt miðað við stærð hagkerfisins en það hefðu þau ekki gert með afgerandi hætti. Þá hefðu stærstu eigendur allra stóru bankanna fengið óeðlilega greiðan aðgang að lánsfé hjá þeim banka sem þeir áttu í krafti eignar- haldsins. Fram kom í rannsókninni að í bönkunum þremur – og Staumi-Burðarási að auki – voru helstu eigendur hvers banka meðal stærstu lántakenda hans. Þótt eðlilegt hafi verið að auki að efna til rannsóknar á Íbúðalánasjóði annars vegar og sparisjóðunum hins vegar má ljóst vera að kostnaður við þær skýrslur hefur farið langt fram úr því sem ætlað var og nánast eftirlits- laust þandist vinnan út. Heildarkostnaður vegna skýrslnanna þriggja liggur nærri 1400 milljónum króna. Íbúðalánasjóðsskýrslan kostaði rúmar 249 milljónir króna en átti upphaflega að kosta 70 milljónir. Kostnaður við sparisjóðaskýrsluna keyrði síðan um þverbak. Vinna við hana dróst svo mjög að henni var skilað tveimur árum síðar reiknað var með í upphafi. Kostnaður við sparisjóða- rannsóknina, sem skilað var í apríl síðast- liðnum, nemur nú hvorki meira né minna en 678 milljónum króna. Þar af eru um 130 milljónir króna sem fallið hafa til á þessu ári en ekki var gert ráð fyrir neinum fjár- veitingum vegna rannsóknarinnar í síðustu fjárlögum. Karl Garðarsson segir í gagn- rýni sinni að um hreina sjálftöku hafi verið að ræða. Hvernig má slíkt verða? Af hverju greip alþingi ekki í taumana? Gagnrýnin snýr beint að eftirlitshlutverki þingsins. Hluti vandamálsins var sá, að mati Karls, að verkefnin voru ekki nægilega afmörk- uð. Rannsóknarnefndirnar áttu í raun að ákvarða sjálfar umfjöllunarefni sitt og fyrir vikið urðu rannsóknirnar allt of umfangs- miklar. Eftirlit alþingis hafi ekkert verið og reikningar borgaðir þegjandi. Það voru gerð mistök hvað varðar áætlana- gerð og eftirfylgni og eftirlit alþingis í fyrstu skýrslunni, í annarri skýrslunni og svo sannarlega í þriðju skýrslunni, segir Guð- laugur Þór Þórðarson, þar sem hann bendir á mistökin en um leið segir þingmaðurinn að verra sé þegar menn læri ekkert af mis- tökum sínum. Opinn tékkareikningur á ríkissjóð og eftirlit alþingis í skötulíki Sjálftaka á kostnað skattgreiðenda Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR Demantshringur 0.70ct Verð 680.000.- siggaogtimo.is Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is Vönduð vinna Stofnað 1952 Mikið úrval af fylgihlutum Steinsmiðjan Mosaik Legsteinar WWW.LEIKHUSID.IS Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t KJÚKLINGAMÁLTÍÐ FYRIR 4 Grill sumar! Pantaðu á www.noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun. GRILLVEISLUR Gómsætar grillveislur tilbúnar beint á grillið. FYRIR HÓPA OG SAMKVÆMI 12 viðhorf Helgin 29.-31. ágúst 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.