Fréttatíminn - 29.08.2014, Síða 30
MÚSIKEGGIÐ
tryggir að þú fáir eggið þitt
soðið eins og þú vilt hafa það.
Þú setur það með eggjunum
í pottinn við suðu, og þegar
eggin eru linsoðin heyrist:
„Killing me softly“
og harðsoðin:
„Final Countdown“
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 www.minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Bráðnauðsynlegt fyrir tónlistarunnendur og þá sem vilja hafa eggin sín rétt soðin :-)
Músikeggin (EggStream) er samstarfsverkefni þýska
hönnunarteymisins „Brain Stream“ Verð aðeins 5.500 kr.
Elín Arnar nýtur lífsins í Brighton ásamt dætrum sínum, Bryndísi Örnu 9 mánaða og Mínervu Ísold 5 ára.
Æfir strandblak
í Brighton
Elín Arnar er hætt sem ritstjóri MAN og nýtur fæðingarorlofsins í
Brighton. Hún eignaðist stúlkuna Bryndísi Örnu á gamlársdag og
dvelur á Englandi ásamt Bryndísi og eldri dóttur sinni, Mínervu Ísold.
Hún er í fyrsta sinn á ævinni byrjuð að æfa strandblak og er að koma
sér í form á „Brightonkúrnum“. Elín var áður ritstjóri Vikunnar í um
átta ár, fannst tími til kominn að breyta til og rær á ný mið þegar hún
kemur aftur til Íslands.
É g hef ritstýrt blaði í dágóðan tíma þannig að það blundar í mér að takast á við eitthvað nýtt og spennandi,“ segir
Elín Arnar sem er hætt sem ritstjóri
MAN magasín en áður hafði hún rit-
stýrt Vikunni í um átta ár. Elín er ein
af stofnendum MAN magasín sem
fagnar árs afmæli um þessar mundir
og ritstýrði hún því fyrstu mánuðina,
áður en hún fór í fæðingarorlof,
ásamt Björk Eiðsdóttur. Elín og Björk
störfuðu um árabil saman hjá útgáfu-
félaginu Birtíngi en Elín heldur hlut
sínum í félaginu Mantra sem gefur út
MAN magasín þó hún láti af störfum
sem ritstjóri.
Elín eignaðist stúlkuna Bryndísi
Örnu á gamlársdag og í sumar söðlaði
hún um ákvað að dvelja í Brighton á
Englandi þar til dóttirin kemst inn í
leikskóla á Íslandi sem væntanlega
verður eftir ár. „Ég var búin að vera
með annan fótinn hér í Brighton í fæð-
ingarorlofinu. Ég þekki vel til, á hér
bæði ættingja og vini. Satt að segja var
ég líka komin með smá leið á því að
labba upp og niður Laugaveginn með
barnavagninn, að Laugaveginum ólöst-
uðum. Stundum er bara gott að breyta
til. Það er virkilega góð aðstaða hér til
að vera með börn. Mikið um stóra leik-
velli og garða til að njóta stundar með
börnunum,“ segir hún.
Knúsar litlu systur
Fyrir átti Elín dótturina Mínervu Ísold
sem er fimm ára en hún fer í enskan
skóla á meðan þær mæðgur eru úti.
„Mig langaði að hún myndi læra
ensku. Hér byrja börnin fjögurra ára í
skóla og hún á eflaust eftir að vera orð-
in mjög góð í ensku þegar við komum
aftur heim. Þau eru svo fljót að læra og
tileinka sér tungumál á þessum aldri.“
Bryndís Arna er nefnd í höfuðið á
báðum foreldrum Elínar og segir hún
það hafa verið hugmynd barnsföður
síns. „Ég gat auðvitað ekki neitað því,
þótt sjálf hafi ég verið með aðrar hug-
myndir,“ segir hún hlæjandi en móðir
hennar heitir Bryndís og faðir hennar
Örn. „Gamlársdagur er góður dagur til
að koma í heiminn. Bryndís Arna er al-
gjör draumur og bræðir alla í kringum
sig með stóra fallega brosinu sínu.
Hún tekur lífinu með svo mikilli ró og
er alltaf svo glöð. Það gengur alveg
ótrúlega vel hjá okkur,“ segir hún en
Mínerva Ísold er ekki síður ánægð
með að eiga nú litla systur. „Hún elsk-
ar að vera stóra systir og er mjög stolt
af systur sinni. Erfiðast finnst henni
samt að hemja sig í að knúsa hana ekki
of fast því hún elskar hana svo mikið,“
segir Elín kómísk.
Með margt á prjónunum
Elín unir sér vel í Brighton, borgin
stendur við ströndina og þar er fjöl-
breytilegt menningarlíf. „Hér er allt til
alls en borgin er mun smærri og auð-
veldari en London,“ segir hún. Það var
sannarlega ekki planað að setjast þar
að tímabundið. „Ég hef oft komið hing-
að í gegnum tíðina. Ég kom í heimsókn
hingað í sumar og leið bara svo vel.
Ég kem ekki til með að eignast barn
aftur og því ákvað ég að lengja fæð-
ingarorlofið mitt og eyða því hér með
stelpunum mínum.“ Hún er þegar
byrjuð að undirbúa þau verkefni
sem taka við eftir fæðingarorlof en
verður afar leyndardómsfull þegar
talið berst að þeim. „Það er mjög
margt sem ég er með í deiglunni,
bæði tengt fjölmiðlum og svo ekki.
Sjáum til hvað verður fyrst til að
líta dagsins ljós,“ segir hún en það
er enn ekki komið á hreint hvort
hún ætlar bara að einbeita sér að
Íslandi eða stærri markaði. „Ég
verð að viðurkenna að það kitlar
að prófa stærri markað. Það er svo
margt sem mig hefur langað að
gera í gegnum tíðina en fallið frá
þar sem Ísland er svo lítill mark-
aður. Það er samt ótrúlegt hvað
það er mikil framkvæmdagleði
heima þrátt fyrir það og getum við
Íslendingar verið stoltir af því.“
Elín viðurkennir að það hafi í
fyrstu verið erfitt að fara frá MAN
magasín en hún var ólétt þegar
þær komu því á laggirnar. „Nú er
ég bara komin á fullt í barnaupp-
eldi og við erum bara þar núna.
Ég nýt lífsins og er í fyrsta skipti á
ævinni byrjuð að æfa strandblak.
Það er virkilega gaman og mun
skemmtilegri leið til að koma sér
í form en að mæta í ræktina. Svo
eru hæðirnar hér í Brighton vel til
þess fallnar að þvinga mann í form
þegar maður stundar bíllausan
lífsstíl, þannig að ég er mjög
spennt að sjá hvað Brightonkúrinn
kemur til með að gera fyrir mig.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ég kem ekki til
með að eignast
barn aftur og
því ákvað ég
að lengja fæð-
ingarorlofið
mitt.
30 viðtal Helgin 29.-31. ágúst 2014