Fréttatíminn - 29.08.2014, Síða 32
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
– fyrst og fre
mst
ódýr!
36%afsláttur
149kr.stk.
Verð áður 235 kr. st
k.
Krónubrauð stórt o
g gróft
Hámark
5 brauðá mann meðan birgðir endast!
WWW.LEIKHUSID.IS
M eðlimir Stuðmanna starf-ræktu á sama tíma hljóm-sveitirnar Spilverk þjóð-
anna og Þursaflokkinn, sem voru
þó ólíkar Stuðmönnum. Á plötunni
Tívolí fengu höfundarnir að leika
lausum hala eins og átti eftir að
verða einkenni Stuðmanna. Það eru
fáar hljómsveitir sem hafa eins mik-
ið leyfi og Stuðmenn að setja saman
plötur af eins mörgum ólíkum stíl-
um og lögin eru mörg. Stuðmenn
létu sér yfirleitt fátt um finnast hvað
strauma og stefnur varðaði á hverj-
um tíma. Tívolí er tekin upp þegar
Pönkið er að ryðja sér til rúms og
kom platan því eins og skrattinn úr
sauðarleggnum á sínum tíma. Jak-
ob, Valgeir, Egill og Sigurður Bjóla
sýndu á þessari plötu að
þeir eru með sterkari
laga- og textasmiðum
sem hafa prýtt íslenska
dægurlagasögu. Lög eins
og Frímann flugkappi,
Hveitibjörn, Hr. Reykja-
vík og Í mýrinni lifa enn
góðu lífi í dag, tæpum
40 árum síðar. Margir
íslenskir tónlistarmenn
urðu fyrir miklum áhrif-
um af Stuðmönnum og þá
helst Tívolí. Hér fáum við
álit nokkurra sem enn
þann dag í dag setja Tívolí reglu-
lega á fóninn.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ísland er Tívolí
Árið 1976 kom út önnur plata
hljómsveitarinnar Stuðmanna,
Tívolí. Árinu áður hafði fyrsta
plata sveitarinnar, Sumar á
Sýrlandi, komið út og á þeim
tíma komu meðlimirnir fram
með grímur og enginn vissi
hverjir skipuðu þessa galsa-
fullu sveit sem stofnuð hafði
verið stuttu áður á göngum
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Á Tívolí var þó búið að svipta
hulunni af meðlimum og flest
nöfnin á allra vörum.
Sköpunargleðin
með eindæmum
Hljómplatan Tívolí hefur lengi verið
í miklu uppáhaldi hjá mér eins og
reyndar flest það sem meðlimir
Spilverks og Stuðmanna létu frá sér
á unglingsárum mínum. Það er sama
hvert litið er þegar þessi mann-
skapur er annars vegar, hugmynda-
flugið og sköpunargleðin á milli ca.
1974-1982 er með eindæmum. Sumar
á Sýrlandi er fyrsta breiðskífa Stuð-
manna og algjörlega frábær, uppfull
af smellum og skemmtilegheitum
og húmorinn allsráðandi. Á Tívolí
er kersknin auðvitað á sínum stað
en undirtónninn er grafalvarlegur
með ádeilu á stríðsbrölt, einkahags-
munapot og fleira. Spilverksmenn
koma sterkir inn í lagasmíðunum og
það er meira um raddsetningar en á
Sýrlandsplötunni. Þórður Árnason er
líka frábær á þessari plötu (eins og
alltaf reyndar). Í stórum hring móti
sól er mitt uppáhaldslag á plötunni.
Jón Ólafsson
tónlistarmaður
Tívolí Stuðmanna kom út
árið 1976 og var önnur
plata sveitarinnar.
32 tónlist Helgin 29.-31. ágúst 2014