Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 33

Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 33
Dala Feta er vinsæll í salöt og sem snarl með ólífum. Hann er skemmtileg viðbót á ostabakkann og tilvalinn í ofnbakaða rétti og á pizzur. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA ms.is Dala Feta fyrir þá sem gera kröfur Hljóðfæraleikur með því besta sem gerist Tívólí hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og er sú Stuðmannaplata sem ég hlustaði hvað mest á. Það sem mér finnst svo skemmtilegt við hana er fjölbreytni laganna. Þar er til dæmis popplagið Bíólagið sem er einna þekktasta lagið af plötunni en svo stekkur platan í lög á borð við Í mýrinni sem er instrumental (sönglaust) lag með miklum djass- og fusionáhrifum og Draugaborgin sem er afskaplega leikrænt lag á köflum í kabarett stíl. Hljóðfæraleikur á plötunni er með því besta sem gerist og þetta var síðasta plata Sigurðar Bjólu með sveitinni og hann er mér mikil fyrirmynd í söng og röddum. Lagið Speglasalur, sem hann syngur, er skemmtileg, kántrískotin lagasmíð. Textarnir á plötunni eru mynd- ríkir og skemmtilegir. Eiginlega lítil saga í hverju lagi. En yfir heildina er þetta skemmtilegt koncept-plata sem stenst tímans tönn mjög, að mér finnst. Pétur Örn Guðmundsson tónlistarmaður Nær tíðaranda áttunda áratugarins Tívolí er plata sem einkennist af ótrúlegum metnaði og sköpunar- og spilagleði. Þar ægir öllu saman. Íslenskri revíutónlist, framúrstefnulegu rokki, dönskum hallærisskap, heimspekilegum hippum og bítlapoppi. Hún sameinar allt það besta sem finna má í þessum mannskap, Stuð- mönnum, Þursum, Spilverki og Jack Magnet. Hún er algjörlega sundurlaus og skitsófrenísk, en samt svo dásamlega heildstæð. Þrátt fyrir allt glensið er grafalvarlegur undirtónn og tregi. Það er einhver Fellínískur dauðatregi og tragedía sem heyra má í lagi eins og Í mýrinni. Tívolí er nefnilega ein stór minningargrein. Þarna er súrrealískur draugagangur, pólitík og íslensk skemmtanamenning. Hún hendir upp tíðaranda áttunda áratugarins, Íslandi sem útjöskuðu tívolíi þar sem allir reyna að gera sitt besta til þess að skemmta sér þrátt fyrir vont veður, biðraðir og ónýtar karamellur. Lögin hafa lúmskar tilvísanir. Skotbakkarnir geta alveg eins verið í Víetnam, Í Vatnsmýrinni og Gullna hliðið geta eins verið bið- raðir og endastöðvar lífsins. Flagarinn Frímann, Hveiti-Björn, Fjallkonan, Gunnar og Geir eru ljós- lifandi og sígildar persónur sem finna má á hverju götuhorni í Reykjavík. Þetta er konsept-plata, Ziggy Stardust fyrir sjö ára. Á meðan Sýrlandið fjallar um sukk, dóp og fyllirí er þetta plata um íslenskt þjóðfélag sem er á fallandi fæti, en samt uppfullt af bjartsýni, gleði og dirfsku. Ísland er Tívolí. Freyr Eyjólfsson dagskrárgerðarmaður og tónlistarmaður tónlist 33 Helgin 29.-31. ágúst 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.