Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 38
Garry ásamt Ellu Kliefstrom frá Svíþjóð, sem kom með í síðustu ferð, og Guðmundi Magnússyni
sem ætlar í þá næstu í janúar. Bílinn keypti Garry á Ebay og gerði hann sjálfur upp. Ljósmynd/Hari
Allsber í sjónum og
grillað við varðeld
Garry Taylor keyrði síðastliðinn vetur, ásamt 15 manna föruneyti, gamlan hertrukk
20.000 kílómetra leið frá Reykjavík til Höfðaborgar. Hann segir alla ferðina hafa
verið eitt stórt ævintýri en bestu minningarnar tengjast ósnertum ströndum Gana
og frumskógum Gabon.
É g fór í fyrsta sinn til Afríku fyrir 20 árum. Síðan hafði mig hafði alltaf langað að skipuleggja svona langa ferð sjálfur,“
segir Garry Taylor sem í vetur leggur í sína
aðra ferð langferð til Afríku frá Íslandi, en
hann hafði verið á ferðalagi í fjórtán ár áður en
hann varð ástfanginn og settist að hér á landi.
Ferðin er farin á risatrukknum hans sem tekur
að hámarki 15 manns. Siglt er frá Seyðisfirði til
meginlandsins með viðkomu í Færeyjum. Frá
Danmörku er ekið niður alla Evrópu, svo er
siglt yfir til Marokkó þaðan sem stefnan er tek-
in á Höfðaborg, meðfram vesturströnd Afríku.
20.000 kílómetrar og 20 lönd á sex mánuðum.
„Ég hef ferðast töluvert um Afríku og veit
hvaða svæði eru mest spennandi. Austur-
ströndin heillar mig ekki því hún er yfirfull af
skipulögðum túristasvæðum. Við förum vestur-
ströndina því hún er enn óspillt og býður því
upp á meiri upplifun og ævintýri. Svo er hægt
að tjalda næstum hvar sem er.“
Eins og að ferðast til steinaldar
Garry segir ferðina alls ekki vera hættulega þó
vissulega séu meiri líkur á hættum en á fjöl-
mennum túristastöðum. „Það er alltaf hægt að
lenda í hættum allsstaðar. En við ætlum samt
að breyta aðeins ferðinni núna til að forðast þau
svæði þar sem ebóla hefur komið upp. En ef
eitthvað kemur upp þá getum við alltaf breytt
ferðinni því við erum mjög sveigjanleg.“
Í síðustu ferð voru fimmtán farþegar, allir
á aldrinum 20 til 40 ára, flestir frá Íslandi en
restin kom allsstaðar að úr heiminum. Gary
á ótrúlegar minningar úr ferðinni og nefnir
nokkra staði sem heilluðu hann sérstaklega. „Í
eyðimörkinni í Marokkó eyddum við töluverð-
um tíma í tjaldbúðum Bedúína og í yfirgefinni
gamalli franskri herstöð, það var mögnuð upp-
lifun. Það var líka gaman að heimsækja höfuð-
borgir, Gana, Tógó og Benín og fara á mark-
aðina og taka þátt í Vodoo-athöfnum. Í Gana
fundum við ótrúlega fallega, algjörlega óspillta
strönd þar sem við tjölduðum í nokkra daga,
syntum í allsber í sjónum og grilluðum geitur
við varðeld á kvöldin.
Að sofa í tjaldi í frumskógum Gabon stendur
þó algjörlega upp úr. Það var eitthvað alveg
sérstakt við að hlusta á frumskóginn og apana
sem hoppuðu yfir tjöldin á meðan við vorum
að sofna. Þetta var algjörlega frábær ferð í alla
staði. Okkur leið oft eins og við værum komin
aftur til steinaldar, það er svo mikil ósnert
náttúra á leiðinni þar sem engin merki eru um
manninn. Við keyrðum um ótrúlega vegi, illa
farna og einangraða svo það var eins gott að
við vorum á almennilegum bíl. Eitt það besta
við ferðina er að þurfa ekki að nota rafmagn,
sleppa farsímanum og tölvunni og bara upplifa.
Það eina sem þú þarft að hugsa um er að borða,
sofa og njóta þess sem fyrir augu ber.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
38 viðtal Helgin 29.-31. ágúst 2014