Fréttatíminn - 29.08.2014, Qupperneq 56
heilsa Helgin 29.-31. ágúst 201456
E ngin binding, allt til líkamsræktar, gott verð og þægilegt andrúmsloft
er það sem einkennir Reebok
Fitness, að sögn Gurrýjar, fram-
kvæmdastjóra stöðvarinnar.
„Við bjóðum enga bindingu
sem felst í því að hægt að er hefja
og hætta mánaðarlegri áskrift að
Reebok Fitness hvenær sem er
án vandkvæða. Áskriftaleiðin er
einföld og ódýr og henni fylgir
aðgengi að öllum hóptímum og
tækjasal. Fólk er með margskon-
ar skipulag á tíma sínum og það
eru margir sem taka jafnvel ein-
stök tímabil hjá okkur. Með þessu
fyrirkomulagi er meðal annars
verið að koma í veg fyrir að fólk
gefist upp á ræktinni vegna þess
að því fer að leiðast eða það telur
sig knúið til að sinna ákveðni
tegund af líkamsrækt vegna fjár-
hagslegrar bindingar,“ segir Guð-
ríður Torfadóttir, einkaþjálfari og
framkvæmdastjóri Reebok Fit-
ness. Hún er oftast kölluð Gurrý
og er landsmönnum kunn eftir að
hún birtist á skjánum í þáttunum
Biggest Loser.
„Líkaminn er hannaður til að
hreyfa sig daglega og þess vegna
er mikilvægt að finna skemmti-
lega hreyfingu til að koma í veg
fyrir uppgjöf. Mikið af konum hjá
okkur eru að missa fullt af kílóum
í Zumba og ég held að það sé bara
vegna þess að það er svo gaman
hjá þeim og þeim líður vel.“ Vel-
líðan er helsta ástæða þess að fólk
á að stunda líkamsrækt, að mati
Gurrýjar.
„Ástríða mín í starfi er að
hjálpa fólki þannig að því líði vel.
Sjálf er ég þannig að mér líður
ekki vel nema að ég nái að hreyfa
mig og þá skiptir engu máli
hversu mikið er að gera hjá mér,
ég finn alltaf tíma fyrir líkams-
rækt. Stundum fer ég seint á
kvöldin eftir að börnin mín eru
sofnuð og tek 40 mínútna æfingu
í tækjasalnum rétt fyrir lokun. Þá
sef ég betur og er afkastameiri á
daginn.“
Líkamsræktarstöðin Reebok
Fitness hefur starfað í þrjú ár
og til stendur að opna nýja stöð
í Urðarhvarfi í Kópavogi eftir
áramót. Hugsanlega munu fleiri
stöðvar spretta upp í úthverfum
höfuðborgarsvæðisins, sé kallað
eftir því.
„Okkur hefur verið mjög vel
tekið, fyrst og fremst vegna þess
að við bjóðum upp á allt sem þarf
til líkamsræktar á góðu verði.
Áherslan er á viðskiptavininn
og hans þarfir og við viljum
að hann finni að við séum
til staðar. Við leggjum
mikið upp úr þægi-
legu andrúmslofti
og hafa viðskipta-
vinir haft það á
orði við okkur
að þeim líði
vel hjá okk-
ur, finnist
þeir geta
verið þeir
sjálfir og
þurfi ekki að
fylgja ákveðinni
staðalímynd,“
segir Gurrý.
„Til að stunda
líkamsrækt reglulega
þarf að finna eitthvað
sem manni líkar vel og
getur hugsað sér að gera í
langan tíma. Það þarf samt ekki
að þýða að maður þurfi að festa
sig við eina tegund líkamsræktar,
því stundum er skemmtilegasta
og besta leiðin að blanda saman
Þurfum að hreyfa okkur daglega
Palli, Guðný og Gurrý standa vaktina í Reebok Fitness. Páll Magnús Guðjónsson er stöðvarstjóri, Guðný Jóna Þórsdóttir hefur umsjón með hóptímum og Guðríður Torfadóttir
er framkvæmdastjóri.
ólíkri hreyfingu. Þess vegna
veitir mánaðargjaldið aðgang að
öllum hóptímum án aukakostn-
aðar sem gefur fólki frjálsar
hendur og það getur sett saman
sitt eigið líkamsræktarprógram
og prófað marga hluti. Bæði er
hægt að sækja sama hóptíma með
reglulegum hætti eða brjóta upp
formið og taka nokkra ólíka hóp-
tíma og þannig er til dæmis hægt
á einni viku hægt að sækja tíma í
Body pump, Bikefit, Zumba, Yoga
og Foam flex.
Við erum með fullkomið bók-
unarkerfi til að halda utan um alla
hópatíma. Viðskiptavinir bóka sig
fyrirfram í tíma á heimasíðunni
okkar og eiga því sitt pláss sem
er gríðarlegur kostur þegar um
er að ræða vinsæla tíma. Vegna
þessa þarf viðskiptavinurinn
aldrei að bíða í röð heldur getur
komið rétt fyrir tímann því hann
er með skráð pláss í tímanum,“
segir Gurrý.
Meðal nýjunga í haust er sam-
starf við dansskólann Dance-
Center sem mun hafa aðstöðu
í stöðinni og svo eru að hefjast
tímar sem heita Zumba step og
er nýtt æfingakerfi frá Zumba og
BikeFit sem eru stuttar og hnit-
miðaðar æfingar með spinning-
hjólum og lóðum sem framkalla
mikla brennslu. Auk þess verður
haustáskorun hrint af stað sem
viðskiptavinir stöðvarinnar geta
skráð sig í og það verður þjálfari í
sal til að leiðbeina þeim sem taka
áskoruninni. Slíkri áskorun hefur
áður vera hrint af stað í stöðinni
og voru undirtektir margfalt betri
en ráð var gert fyrir.
„Við erum vakandi fyrir nýjung-
um, sem er nauðsynlegt í þessum
bransa því það er alltaf eitthvað
nýtt að gerast og ekki allir sam-
mála um hvernig eigi að fara að
hlutunum þegar kemur að líkams-
rækt og því mikilvægt að vera á
tánum. Við erum nýkomin frá Los
Angeles þar sem við sóttum nám-
skeið og fengum kennsluréttindi
í BodyShred sem er æfingakerfi
hannað af hinum heimsfræga
þjálfara Jillian Michaels úr Big-
gest Loser. Við byrjum að kenna
þessa tíma um miðjan mánuð.
En við leggjum áherslu á að allir
okkar þjálfaðir séu vel menntaðir
og séu sífellt að viða að sér þekk-
ingu.“
Enginn vafi leikur á nauðsyn
hreyfingar en ekki eru allir á eitt
sáttir um hversu mikil hún eigi að
vera og oft er talað um nauðsyn
þess að hvíla sig frá allri hreyf-
ingu að minnsta kosti einu sinni í
viku. „Þegar talað er um að taka
sér hvíld frá æfingum þarf það
ekki að þýða kyrrstöðu. Við erum
farin í síauknum mæli að hvetja
fólk til að taka virka hvíld með
afslappandi hreyfingu eins og
teygjum, jógaæfingum eða sundi.
Líkamann á að hreyfa á hverjum
degi.“
Þrátt fyrir að líkaminn sé hann-
aður til hreyfingar þá getur oft
verið erfitt að koma sér af stað
og fólk miklar fyrir sér hlutina
í þeim efnum. Reebok Fitness
mætir þörfum þeirra sem hafa
jafnvel aldrei hreyft sig og býður
upp á námskeiðið Nýtt líf sem
varð til eftir að þættirnir Biggest
loser voru framleiddir hér á landi.
„Þetta námskeið er mjög vinsælt
hjá okkur og heldur að sjálfsögðu
áfram í haust,“ segir Gurrý.
Svo eru það þeir sem vilja
breyta til eða eru fastir í einhverri
rútínu. Þeir geta einnig leitað sér
leiðsagnar hjá Reebok Fitness.
„Það er alltaf gott að fá sér tíma
hjá einkaþjálfara, þó það sé ekki
nema í eitt eða tvö skipti. Einka-
þjálfarinn metur styrkleika þína
og veikleika í líkamanum og veit
hvað þarf að vinna með og veitir
ráðleggingar um mataræði og
fleira. Sjálf fékk ég mér þjálfara
til að setja saman prógram fyrir
mig,“ segir Gurrý sem sjálf er
einkaþjálfari. „Það er alltaf gott
að fá álit annara og leiðsögn.“
Unnið í samstarfi við
Reebok Fitness.
Mikið af konum hjá
okkur eru að missa
fullt af kílóum í
Zumba og ég held
að það sé bara
vegna þess að það
er svo gaman hjá
þeim og þeim líður
vel.