Fréttatíminn - 29.08.2014, Page 70
heilsa Helgin 29.-31. ágúst 201470
... frískandi fyrir fólk á ferðinni
V etrardagskráin hjá Sport-húsinu hefst á næstu dög-um. Meðal þess sem boðið
verður upp á er byrjendanámskeið í
AntiGravity Aerial Yoga, eða jóga í
þyngdarleysi. Anna Rós Lárusdótt-
ir verður kennari námskeiðsins og
segir hún tímana henta öllum sem
vilja styrkja og liðka líkamann á
skemmtilegan hátt og að ekki þurfi
bakgrunn í jóga, fimleikum eða
öðru. „Nemendur byrja á að læra
undirstöðuatriði þessarar einstöku
tækni á öruggan hátt í gegnum fjöl-
breyttar og skemmtilegar æfingar,“
segir hún.
Christopher Harrison er mað-
urinn á bak við Aerial yoga en hann
er stofnandi og eigandi AntiGravity
Fitness. Tæknina þróaði hann í um
átta ár áður en hann færði hana til
almennings. Harrison er með höf-
uðstöðvar sínar í New York og lauk
Anna Rós þjálfunarréttindum þar.
Hver iðkandi notar hammock,
eða hengirólu, sem gerð er úr
sterku laki. Að sögn Önnu Rósar
þola lökin 500 kíló svo fólk getur
algjörlega treyst því að þau haldi
þeim. „Við gerum bæði hefðbundn-
ar jógaæfingar þar sem við notum
lakið til að komast dýpra í teygj-
urnar og erfiðari jógastellingar
sem auðveldara er að komast í með
Jóga í þyngdarleysi er meðal þess sem boðið verður upp á í
Sporthúsinu í vetur. Í næstu viku verða fríir prufutímar og
námskeiðin hefjast í þar næstu viku. Lögð er áhersla á að hafa
gaman í tímunum og ekki þarf neinn sérstakan bakgrunn úr jóga,
fimleikum eða öðru.
Æfingar í AntiGravity Aerial Yoga eru sam-
bland af pilates, jóga og loftfimleikum og er
lögð áhersla á að hafa gaman í tímunum.
lakinu en í hefðbundnu jóga. Fólk
nær einnig að halda hverri stell-
ingu lengur án þess að setja aukið
álag á líkamann.“
Að tengja líkama, huga og sál
Í tímunum er unnið með bæði
líkama og sál og segir Anna Rós
æfingarnar vera blöndu af pilates,
jóga og loftfimleikum. „Notast er
við sömu grundvallaratriði og í
hefðbundnu jóga þar sem lögð er
áhersla á öndun og slökun en einn-
ig er lagt mikið upp úr því að hafa
gaman í tímunum. Við förum meðal
annars á hvolf, rólum og fljúgum!“
Gaman á hvolfi
Æfingarnar styrkja og liðka líkam-
ann auk þess sem þær efla sjálfs-
traustið. „Fólk er oft hissa á sjálfu
sér þegar það getur gert æfingar
sem það hefur aldrei gert áður og
býst ekki við að geta. Þetta snýst
bara um að læra rétta tækni og
treysta,“ segir Anna Rós.
„Fólk sem er að leita að æsku-
brunninum þarf ekki að leita lengra
þar sem AntiGavity jóga hefur
einnig yngjandi áhrif sem finnast
ekki í dýrum næturkremum,” segir
hún og hlær. Þar sem æfingarnar
rétta úr hryggnum bæta þær lík-
amsstöðu fólks auk þess sem þær
draga úr stressi, sem getur valdið
ótímabærum öldrunareinkennum
á húðinni. Útkoman verður því
glóandi og unglegri húð í hraustum
og vel mótuðum líkama.
Fríir prufutímar verða á þriðju-
dag og fimmtudag í næstu viku
klukkan 16.30 og 17.30 og hefjast
námskeiðin síðan 9. september.
Anna Rós hvetur alla áhugasama
til að mæta í prufutímana. „Pabbi
minn, sem er sjötugur, er mjög
spenntur að prófa og í vikunni
kom 12 ára sonur minn með mér á
æfingu og hafði gaman af.“
Nánari upplýsingar um prufu-
tímana og námskeiðið má nálgast
á vefnum www.sporthusid.is og
á Facebook-síðunni Sporthúsið.
Einnig er áhugasömum bent á að
kíkja á vefsíðu AntiGravity www.
antigravityfitness.com.
Unnið í samstarfi við
Sporthúsið
AntiGravity
Aerial Yoga
á Íslandi
– Jóga í þyngdarleysi
Það er ekki bara
gaman að fara á
hvolf heldur hefur
það ýmissa kosti
fyrir líkamann og má
þar til dæmis nefna:
Hryggurinn réttir sig
af án þrýstings.
Losar um hryggjar-
liði.
Kemur hreyfingu
á innkirtlakerfið,
sogæðakerfið, bætir
meltingu og blóð-
rásarkerfið.
Losar um „gleði“
hormónin serótónín,
endorfín, dópamín
og fleiri.
Eykur súrefnisflæði
til heilans sem bætir
einbeitningu og
minni.