Fréttatíminn - 29.08.2014, Page 88
S var t i r Sandar hlaut einróma lof gagnrýnenda um
allan heim og er nýrr-
ar plötu Sólstafa er því
beðið með mikilli eftir-
væntingu beggja megin
Atlantshafsins. Þetta er
ekki það eina sem er að
frétta af sveitinni því í
byrjun október ætlar
sveitin að leika undir
á sérstakri afmælis-
sýningu kvikmyndar
Hrafns Gunnlaugsson-
ar, Hrafninn flýgur, sem
fagnar 30 ára afmæli
í ár. Sýningin verður
í Salnum í Kópavogi á
vegum kvikmyndahá-
tíðarinnar RIFF.
„Það var bara haft sam-
band við okkur frá RIFF og hugmyndin
borin undir okkur, sem er mjög fyndin
tilviljun þar sem við höfum alltaf verið
miklir aðdáendur myndarinnar,“ segir
Aðalbjörn Tryggvason, eða Addi, söngv-
ari Sólstafa. „Músíkin sem við ætlum
að spila undir er blanda af nýju plötunni
og Svörtum Söndum, en þó ætlum við
að stytta lögin aðeins þar sem þau eru
flest of löng fyrir þessa mynd. Það hefði
verið draumur að semja nýja músík
við myndina en það gafst ekki tími til
þess, í þetta sinn. Þó verður eitt lag sem
ekki komst á nýju plötuna flutt þarna.
Vinnuheitið á því var Hrafninn, þar sem
það var mjög í anda myndarinnar, sem
er skemmtileg til-
viljun,“ segir Addi.
„Við erum að byrja
að undirbúa þetta.
Við erum komnir
með 60 tommu
flatskjá í húsnæðið
okkar og ætlum að
horfa á myndina
saman og fá hug-
myndir. Þessi mynd
er frábær og í raun-
inni er hún íslensk
útgáfa af Spagettí-
vestra, sem er mjög í
okkar anda.“
Sólstafir hefja
tónleikaferð um
heiminn í byrjun
nóvember til þess að
kynna Óttu. Ferðalagið
stendur í 7 vikur sam-
fleytt.
„Við byrjum í Evrópu og verðum þar í
4 vikur og förum svo til Bandaríkjanna
í 3 vikur og byrjum í Nashville. Þetta
er lengsti túr sem við höfum tekið sam-
fleytt og við höfum aldrei tekið svona
marga staði í Ameríku fyrr. Það verður
virkilega gaman að spila á nýjum stöð-
um í þessari ferð, “ segir Addi.
Tónleikasýningin á Hrafninn flýgur
verður, eins og fyrr segir, í Salnum í
Kópavogi miðvikudaginn 1. október og
er miðasala midi.is hafin.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
TónliST SólSTafir gefa úT nýja plöTu og vinna með Hrafni
Leika undir á 30 ára
afmælissýningu á Hrafninum
Þungarokkshljómsveitin Sólstafir gefur út sína fimmtu breiðskífu á mánudaginn. Platan sem
nefnist Ótta er rökrétt framhald plötunnar Svartir Sandar sem kom út árið 2011. Sólstafir leika
undir á afmælissýningu á Hrafninn flýgur á kvikmyndahátíðinn RIFF.
Sólstafir gefa út fimmtu breiðskífu sína og fagna útgáfunni með því að leika undir á sérstakri afmælissýningu á Hrafninn flýgur.
Það var
bara haft
samband
við okkur
frá RIFF og
hugmyndin
borin undir
okkur, sem
er mjög
fyndin til-
viljun
leikHúS reið, nýTT íSlenSkT danSverk frumSýnT í BorgarleikHúSinu
Hraustar, frjóar og geðþekkar gyðjur
Reið, nýtt íslenskt dansverk, er
fyrsta frumsýning nýs leikárs
Borgarleikhússins en verkið
verður sýnt á morgun, laugardag-
inn 30. ágúst, klukkan 21.30 á
stóra sviði leikhússins. Í dansverk-
inu Reið stíga á svið níu flóknar
skepnur. Glæsilegar, ljósar yfir-
litum, holdugar, loðnar og gljáandi,
að því er fram kemur í tilkynningu
Borgarleikhússins. „Dásamlega
dramatískar, skapmiklar, villtar
og viðkvæmar. Þær eru með
tígulegan limaburð, langan háls,
sterka leggi, breið bök og mjúkar
línur. Þægar en óútreiknanlegar,
varar um sig, þolinmóðar og gáf-
aðar. Tillitssamar, kærleiksríkar,
kynæsandi og kraftmiklar. Þetta
eru hraustar, frjóar og geðþekkar
gyðjur,“ segir enn fremur.
„Danshöfundarnir Steinunn Ket-
ilsdóttir og Sveinbjörg Þórhalls-
dóttir skoða í dansverkinu Reið
hvar mörkin liggja á milli konunn-
ar og hryssunnar og hvernig þær
endurspegla hvor aðra. Samlíking
konunnar og hryssunnar býður
upp á margar spaugilegar myndir
en getur um leið varpað ljósi á
önnur og jafnvel dekkri málefni
lífsins og kveikt spurningar um
eðli náttúrunnar og grunnþarfir
bæði manna og skepna; kærleika,
umhyggju, samstöðu, samkeppni,
o.s.frv. Jafnframt varpar verkið
ljósi á það sem menn og skepnur
eiga sameiginlegt, hvað tekist er
á um og hvernig hegðun þeirra er
innan hóps sem og utan hans. Jafn-
framt beinir verkið sjónum að nátt-
úrulegum sérkennum kvendýrsins
og fegurðinni sem felst í því að
vera kona, móðir, vinkona, systir,
eiginkona eða gyðja.“ - jh
Í dansverkinu Reið er skoðað hvar mörkin liggja á milli konunnar og hryssunnar og
hvernig þær endurspegla hvor aðra. Ljósmynd/Borgarleikhúsið
Hrafn Gunnlaugsson
Ég ♥ Reykjavík
Óvenjuleg leiðsögn um borgina
fyrir börn og fullorðna.
Aðeins þessar sýningar:
29. ágúst Kl.16:30
30. ágúst Kl.14:00
31. ágúst Kl.14:00
Miðasala www.lokal.is
Fylgist með Ég elska Reykjavík -Fjölskyldusýning á
Facebook.
Styrkt af Mennta- og Menningarmálaráðuneyti
SALA ÁRSKORTA
ER HAFIN
WWW.LEIKHUSID.IS
88 menning Helgin 29.-31. ágúst 2014