Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 94
Þetta er verk um kven-
sköp og snýst um afl, afl
móður náttúru. Þetta afl
er að þora að segja satt,
að fá að vera til en einnig
að standa vörð um
varnarleysið sem fylgir
því að vera manneskja.
Kristín
Gunn-
laugsdóttir
afhjúpaði
Sköpunar-
verk I á
Menningar-
nótt. Ljós-
mynd/Hari
Myndlist nýtt verk eftir kristínu GunnlauGsdóttur afhjúpað
Á menningarnótt um liðna helgi var afhjúpað nýtt
listaverk eftir mynd-
listarkonuna Kristínu
Gunnlaugsdóttur í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Verkið
sem nefnist Sköpunar-
verk I er unnið úr ís-
lenskum lopa og sýnir
kvenmannssköp. Verkið
er unnið 2013 og er 4.20
x 3.7 metrar úr ull á
striga.
„Þetta er verk um
kvensköp og snýst um
afl, afl móður náttúru.
Þetta afl er að þora að
segja satt, að fá að vera
til en einnig að standa
vörð um varnarleysið
sem fylgir því að vera
manneskja,“ segir Krist-
ín. Verkið var sett upp í
aðalsal Ráðhúss Reykja-
víkur og er því öllum
sýnilegt sem heimsækja
ráðhúsið.
„Verkið hefur verið
gefið Listasafni Reykja-
víkur, sem síðan fann
því stað í Ráðhúsinu
og ég er afskaplega
ánægð með það,“ segir
Kristín. „Sérstaklega vil
ég þakka borgarstjórn
fyrir að hafa þá fram-
sýni og vera til fyrir-
myndar á alþjóðlegum
vettvangi að leyfa verki
sem fjallar um viðkvæmt
tabú, píkuna, að hanga
í húsakynnum sínum.
Ég er stolt af að tilheyra
samfélagi þar sem borg-
arstjórn þorir að opna
þannig á umræðu sem
er nauðsynleg í nútíma-
samfélagi, því fátt hefur
verið eins misnotað og
útjaskað gegnum tíðina
og þetta litla líffæri sem
er kynfæri kvenna og er
því miður orðin algeng
samsömun kláms og
ofbeldis. Svo ekki sé
minnst á þöggunina sem
fylgir þessum neikvæðu
þáttum og skömmina
sem við eigum hins veg-
ar að snúa í viðurkenn-
ingu á einu sterkasta
afli sem býr í náttúrunni
og tengist því helgasta
sem lífið býr yfir,“ segir
Kristín.
„Mér er auðvitað
mikilvægt að verkið sé
á stað sem það fer vel á,
Lopapíka í Ráðhúsinu
Listakonan Kristín Gunnlaugsdóttir gaf Listasafni Reykjavíkur verk sitt, Sköpunarverk I, og því
hefur nú verið fundinn staður í Ráðhúsinu. Verkið er unnið úr íslenskum lopa og sýnir kven-
mannssköp. Fullkomin staðsetning við hlið stóra Íslandskortsins, segir listakonan.
ekki bara í tilgangi sínum heldur
einnig að það njóti sín sjónrænt.
Þannig er ég mjög sátt við að það
sitji þröngt því það eykur kraftinn
sem brýst fram og glóðin sem býr í
rauða litnum verður áleitnari,“ segir
Kristín sem segist ekki geta hugsað
sér betri staðsetningu.
„Þegar ég sá verkið komið upp
í salnum og stóra kortið af landinu
til hliðar, fannst mér heildarmyndin
fullkomin. Því verkið fjallar einnig
um hinn hreina eld sem býr í land-
inu sjálfu og í okkur öllum, eldgos
framkvæmdaorku og hreinnar
hugsunar, afl til góðra verka.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
María Helga Guðmundsdóttir, fyrr-
verandi keppandi í Gettu betur, er ein
þeirra sem standa að námskeiðinu um
helgina.
útvarpshúsið vilja laGa kynjahlutfallið í Gettu betur
Fimmtíu stelpur í Gettu betur-æfingabúðum
Fimmtíu stelpur hvaðanæva af á
landinu fjölmenna í Útvarpshúsið
í Efstaleiti um helgina til að taka
þátt í Æfingabúðum Gettu betur-
stelpna, sem eru verkefni hóps kven-
kyns fyrrum keppenda í spurninga-
keppninni Gettu betur. Búðirnar eru
hugsaðar sem vettvangur þar sem
stelpur í grunn- og framhaldsskólum
geta upplifað þátttöku í spurninga-
keppni á eigin forsendum, kynnst
jákvæðum fyrirmyndum og brotið
ísinn sem aftrar þeim oft frá þátttöku
í Gettu betur-starfi innan framhalds-
skólanna. Umsjón með búðunum er í
höndum hóps kvenna sem allar hafa
keppt í Gettu betur.
„Kynjahlutfallið í þessari keppni
hefur oft verið í umræðunni og þær
konur sem hafa tekið þátt hafa hald-
ið úti félagsskap í nokkur ár,“ segir
María Helga Guðmundsdóttir, fyrr-
verandi keppandi og ein þeirra sem
standa að námskeiðinu um helgina.
„Anna Pála Sverrisdóttir, lögfræðing-
ur og fyrrum keppandi, gerði rann-
sókn á þessu í kynjafræði við Háskól-
ann og upp frá því fórum við nokkrar
að tala um það að reyna hrífa stúlkur
með okkur í þessa keppni. Við byrj-
uðum að plana í fyrrahaust og nú er
svo komið að um helgina verða fyrstu
æfingabúðirnar,“ segir María.
Fimmtíu stelpur á aldrinum 14-18
ára eru skráðar í búðirnar, en aðsókn
var svo mikil að nauðsynlegt reynd-
ist að takmarka fjöldann. Stelpurn-
ar stunda nám við 28 mismunandi
grunn- og framhaldsskóla, en þriðj-
ungur þeirra er af landsbyggðinni
og koma margar langt að, þ.á.m.
frá Ólafsvík, Egilsstöðum og Höfn í
Hornafirði.
„Þetta byrjar í dag föstudag með
léttu spilakvöldi og pítsum til þess að
þétta hópinn. Á morgun verðum við
með margskonar fræðslufyrirlestra
og námskeið, kynnumst þjálfurum og
fræðumst um liðsheildina og slíkt. Á
sunnudaginn verður æfingamót þar
sem allir taka þátt,“ segir María sem
keppti tvisvar fyrir hönd Menntaskól-
ans við Hamrahlíð fyrir um 10 árum.
„Það hefur bara ein stúlka unnið
Gettu betur. Það var Laufey Jóns-
dóttir sem keppti fyrir Kvennaskól-
ann fyrir nokkrum árum og vonandi
verður breyting á því á næstu árum,
sérstaklega með tilkomu æfingabúð-
anna,“ segir María. -hf
Opið hús í
Borgarleikhúsinu
Opið hús er í Borgarleikhúsinu á morgun,
laugardag, þar sem vetrardagskráin
verður kynnt fyrir gestum og gangandi.
Dagskrá vetrarins eru óvenju fjölbreytt
og má þar sjá allt frá erlendum gömlum
klassískum verkum til glænýrra íslenskra
verka sem voru skrifuð sérstaklega fyrir
Leikfélag Reykjavíkur. Húsið verður opið
milli klukkan 13 og 16.
Afmælistónleikar
Agnars Más
Agnar Már Magnússon,
djasspíanisti heldur
einleikstónleika í
Hannesarholti í tilefni af
fertugsafmæli sínu sem er
á laugardaginn. Agnar hefur
í gegnum tíðina verið einn
afkastamesti djasspíanóleik-
ari landsins og hefur gefið
frá sér fjórar breiðskífur í
sínu nafni, auk fjölda hljóm-
platna með ýmsum hljóm-
sveitum og hópum. Agnar hefur einnig
unnið mikið í leikhúsum landsins bæði sem
tónskáld og tónlistarstjóri. Á efnisskránni
verða að hluta til eigin verk, þekktir djass
standardar og spuni. Þetta eru fyrstu
tónleikar Agnars í Hannesarholti. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 17.
Anna Calvi á Airwaves
Breska tónlistarkonan Anna Calvi kemur
fram á Iceland Airwaves-tónlistarhá-
tíðinni í nóvember. Skipuleggjendur
hátíðarinnar tilkynntu í vikunni um
fjölmarga listamenn sem bæst hafa
í hópinn. Auk Önnu Calvi geta gestir
á Airwaves nú farið að hlakka
til að sjá og heyra í Láru
Rúnars, Mr. Sillu, How To
Dress Well frá Banda-
ríkjunum, Mugison, Ylju
og Pétri Ben. Hátíðin er
nú haldin í sextánda sinn
og aðalnúmerin eru The
Knife, The War on Drugs,
Flaming Lips, Caribou, Sóley,
Mammút, East India Yoyth
og Prins Póló svo nokkrir séu
nefndir.
Um helgina fer fram hin árlega tón-
listarhátíð Melodica Festival. Í ár mun
hátíðin fara fram á veitingahúsunum
Café Rósenberg og Bravó. Hátíðin hefst
í kvöld, föstudagskvöld og stendur til
sunnudags. Á Bravó hefjast tónleikar
klukkan 16 alla dagana og standa til
21 um kvöldið, og á Rósenberg hefjast
tónleikar klukkan 21.30 alla dagana svo
það gefst tími til þess að ganga á milli
staðanna, ef svo ber undir. Meðal þeirra
sem koma fram á hátíðinni í ár eru
danska sveitin Past Perfect, Englending-
urinn Rob Maddison, íslensku listamenn-
irnir Rósa Guðrún Sveinsdóttir og Helgi
Valur svo einhverjir séu nefndir. Svavar
Knútur skipuleggjandi hátíðarinnar
opnar hátíðina í dag á Bravó klukkan 16.
Melodica Festival um helgina
94 dægurmál Helgin 29.-31. ágúst 2014
Ert þú
búin að
prófa?
Biotin & Collegen sjampó og næring
Þyngir ekki hárið og hefur þykkjandi áhrif með hjálp Collagen þykknis.
Vatnsroð hveiti prótín hjálpar við að gera hárið þykkara og heilbrigðara.
Frábært fyrir þunnt, fíngert og linnt hár.