Þjóðlíf - 01.11.1987, Page 12
INNLENT
• „Það er hitt og þetta í gangi, en við aðtlum okkur samt alltaf að eiga heima á íslandi."
Björk: „Fyrsta spurningin sem blaðamennirnir í Bretlandi spuröu
okkur alltaf að var hvort það væru allir svona skrítnir á íslandi.
Annars var allur tíminn úti hálfgerð bilun vegna þess að við
gerðum ekkert annað en tala um okkur sjálf í endalausum viðtölum.
Maður verður svo upptekinn af sjálfum sér og ég mundi sturlast ef ég
ætti að lifa svona lífi í marga mánuði.“
- Aðalatriðið er að glata ekkiykkitr sjálfum íþessu öllu?
Einar: „Já. Það er t.d. pirrandi þegar fólk gengur til bróður míns til
að óska honum til hamingju með velgengni bróður síns. Það býr
auðvitað góð hugsun þar að baki en við spyrjum: Hvað með það?
Okkur er alveg sama og okkur verður að vera alveg sama ef við
ætlum að halda geðheilsunni."
- Svo eruð þið góð landkynning ofan á alltsatnan...
Einar: „Við höfum verið rosaleg landkynning hingaðtil en hér
vilja menn ekki skilja þetta og „aumu rokkdýrin" eru látin rokka
fyrir öryggi fyrir hönd JC á tónlistardaginn."
Björk: „Ef þarf að styrkja eitthvert málefni þá er bara smellt
fingrum og rokkdýrin mæta á staðinn og hoppa og syngja: „rokkum
til öryggis, rokkum fyrir þetta eða hitt.
Á tónlistardaginn var sýnt í praxis hvernig farið er með rokktón-
listarmenn á íslandi. Þetta átti að vera dagur tónlistarmanna en
okkar tónlist fær samt enga virðingu. Margir héldu að ástæðan fyrir
því að við bökkuðum út úr þessu dæmi væri sú að við teldum okkur
of stór til að taka þátt í þessu. Og það er á vissan hátt rétt vegna þess
að okkur fannst sjálfsagt að allar hljómsveitirnar myndu mótmæla
með því hætta við þátttöku."
Einar: „Ef okkur tekst að fá einhvern pening út úr því sem er að
gerast erlendis, þá ætlum við að virkja okkar eigið fyrirtæki Smekk-
leysu sf, með því að gefa út efni íslenskra hljómsveita og ungra skálda
og vinna í því að styrkja menningu sem er ekki aðflutt heldur
íslensk."
Björk: „Við höfum t.d. haft mikinn áhuga á að fara út í bókaút-
gáfu og ýmislegt fleira sem við höfum ekki haft peninga til að gera
fram að þessu. í viðtölum úti höfum við talað mikið um Smekkleysu
og alltaf sagt að við séum ekki bara hljómsveit."
Einar: „Við höfum alltaf sagt að við séum á hljómsveitarsamning'
hjá Smekkleysu sf. Við förum og endurtökum það reglulega."
• Ómar Friöriksson
REGNBOGA-
BÆKUR
..vandaðar
og ódýrar
kiljur! ?
ÁSKRIFTASÍMI: 622229 ?
12