Þjóðlíf - 01.11.1987, Side 22

Þjóðlíf - 01.11.1987, Side 22
I N N L E íslendingur til Suðurskautslandsins ÞANN 9. OKTOBER síðastliöinn varði Ólafur Ingólfsson doktorsritgerð í jarðfræði hér í Lundi. Fjallar ritgerðin um jarðsögu Borgarfjarðar á síðjöklatíma. Ólafur starfar nú við jarðfræðideild Lundarháskólaen mun næstu mánuði dvelja allfjarri Lundi. Þann 17. október hélt Ólafur á vit Suðurskauts- landsins sem þátttakandi í sænskum rann- sóknarleiðangri. Ég spurði Ólaf að því hvernig á þessum þvœlingi stœði. „Segja má að fyrir þessari ferð séu þrjár ástæður. I fyrsta lagi eiga Svíar langa og góða rannsóknarhefð á heimskautasvæðunum og leiðangurinn því eðlilegt framhald rann- sókna undangenginna áratuga. Þeir hafa frá upphafi verið með í rannsóknum á Norður- heimskautinu og eru frumkvöðlar í jökla- jarðfræði. Hér vil ég sérstaklega nefna Hans Wilson Ahlman, sem hafði frumkvæði í rannsóknum á Vatnajökli og var einn læri- feðra Sigurðar Þórarinssonar. Svíar tóku því þátt í að leggja grunninn að hinni góðu ís- lensku jöklarannsóknarhefð. Hvað Suður- skautið varðar eru Svíar ein fyrsta þjóðin sem sendir þangað leiðangur í hreinu vísindaskyni en áður höfðu farið þangað landvinningaleiðangrar. Sænskur leiðangur undir forystu Otto Nordenskjöld var á Suðurskautinu um aldamótin og ég mun raunar verða við störf á sama stað og sá leiðangur þ.e. á Grahamslandi eða Antar- ktisskaga. Síðan voru Svíar ásamt Bretum og Norðmönnum með stóran leiðangur á Suðurskautinu lljótlega eftir seinni heims- styrjöldina og var hann leiddur af Svía. Sá leiðangur var aðallega helgaður rannsókn- um á sviði jöklafræði. I öðru lagi má segja að leiðangurinn hafi viss pólitísk markmið. Sví- ar vilja hafa áhrif á mótun framtíðar Suður- skautslandsins en það mál verður mjög í brennidepli næstu ár ef að líkum lætur. Undanfarna þrjá áratugi hefur verið í gildi Suðurskautssáttmáli, sem stýrt hefur nýtingu svæðisins. Þessi sáttmáli er einstakur í sinni röð og inniheldur mörg merk ákvæði. Meðal annars er þetta eina svæði jarðar sem er alger- lega laust við öll hernaðarumsvif. Landið er öllum opið til friðsamlegra vísindarann- sókna og allar landakröfur vorufrystar í og með samningum. Þarna ríkir því engin spenna eða tortryggni. Sem dæmi má nefna að á meðan á Falklandseyjastríðinu stóð áttu argentínskir og breskir vísindamenn ágætis samstarf á Suðurskautinu. Samningur þessi gildir til 1991 og vilji einhver þjóð þá ekki lengur vinna eftir honum er hún ekki bund- in. Skilyrði fyrir aðild að samningnum er að menn hafi einhver umsvif á Suðurskautinu. Svíar vilja hafa slíka aðild og áhrit' á framtíð landsins og það ýtir því undir þá að gera út þennan leiðangur. Það er orðið ákaflega brýnt að gera sér- stakan samning um efnahagslega nýtingu svæðisins. Sérstaklega er það rányrkja Jap- ana og Sovétríkjanna í hafinu í kring sem veldur mönnum áhyggjum. Það er ekki vitað hversu viðkvæmt lífríki svæðisins er en fullur vilji er til þess að reyna að vernda það svo sem kostur er. í dag er í raun ekkert (annað en hin erfiða náttúra) sem hindrar t.d. olíu- boranir á svæðinu. Það er mikil nauðsyn að sett verði undir þennan leka. Svíar hafa þá yfirlýstu pólitísku stefnu að sáttmálanum verði framhaldið og leggja jafnframt mikla áherslu á náttúruverndarsjónarmið. Þeir vilja því gamla sáttmálann ásamt ströngum takmörkunum á nýtingu náttúruauðlinda. Þessi stefna er í raun svipuð og t.d. Green- peace hefur en þau samtök vilja að svæðið verði lýst alþjóðlegur þjóðgarður. Raunar eru ákveðin náttúruverndar- ákvæði í sáttmálanum. Þannig er t.d. bannað að henda rusli sunnan 65. breiddargráðu. Sjálfur er ég heldur bjartsýnn á að takist að framlengja sáttmálann, ekki hvað síst sökum þess að svo virðist sem risaveldin hafi hug á því. Hvorugt þeirra gerir landakröfur á Suðurskautslandinu. Nú, í þriðja lagi er svo sjálf vísindastarfsemin. Rannsóknirnar verða ákaflega víðtækar og erfitt að gera grein fyrir þeim í stuttu máli. Segja má þó að það séu jöklar og jöklabreytingar sem aðal- lega verða skoðaðar. Þeir endurspegla lofts- lags- og veðurfarsbreytingar í gegnum tíðina. Það er því eðlilegt að rannsaka Suðurpólinn til að skilja þær loftslags- og veðurfarsbreyt- ingar, sem orðið hafa og eru að verða, því hnattræn áhrif Suðurskautsins eru mikil. Þó nokkuð er vitað um breytingar á norður- pólnum síðustu árþúsundir en tiltölulega lít- ið er vitað um jökla og veðurfar á Suður- pólnunt. Höfuðmarkmið þeirra rannsókna sem ég tek þátt í er að ráða bót á þessu." Hverjir fjármagna fyrirtœkid ? „Leiðangurinn er farinn í samvinnu sænskra og vesturþýskra vísindamanna og öll tjármögnun hins sænska hluta, að launum frátöldum, er úr sérstakri fjárveitingu sænska ríkisins. Háskólarnir standa fyrir launakostnaðinum. Sjálfur tek ég þátt í leið- angrinum með fjárhagsstuðningi íslenska menntamálaráðuneytisins fyrir milligöngu Benedikts Gröndals sendiherra í Stokk- hólmi." Og hvað verdið þid lengi? „Sjálfur leiðangurinn stendur yfir í fimm mánuði. Honunt er skipt í tvo áfanga og ég verð í þeim fyrri er stendur í rúma tvo mánuði. Við komunt til með að fljúga til Rio Grande í Brasilíu og fara þar um borð í vesturþýska ísbrjótinn Polarstern en hann flytur okkur að strönd Suðurskautslandsins og verður okkar bækistöð. Þetta er skip uppá 18.000 lestir, sérsmíðað til rannsókna á heimskautasvæðum. Þannig á það t.d. að geta siglt gegnum þriggja metra þykkan ís. Ahöfn skipsins vann raunar það einstæða afrek í sumar að komast að 86 breiddargráðu norðl. breiddar og vantaði þá aðeins u.þ.b. 500 km að norðurpólnum væri náð. Skipið er firnavel útbúið. Um borð eru fullkomnar tilraunastofur fyrir jarð- og líffræðinga, ákaflega öflugar tölvur og fullkomnar gagnavinnslustofur. Skipið hefur tvær þyrlur og eina skíðaflugvél. Vinnu verður svo hag- að þannig að hópurinn sem ég tilheyri verður landsettur með þyrlu og við dveljumst á hverjum stað í viku til 10 daga. Að því loknu verðum við sóttir af þyrlunni og ttuttir um borð og síðan á nýjan stað. Við verðum þannig Iíkt og fló á skinni." Eruð þið ekki í stöðugri lífshœttu þarna? „Ja. þeir dagar eru nú sem betur fer liðnir er heimskautafarar urðu að gjalda fífldirfsk- unnar með lífinu. Núorðið eru allir leiðangr- ar skipulagðir út í ystu æsar og ekkert sparað til að tryggja besta útbúnað. Allir þurfa að ganga í gegnum stranga þjálfun svo við get- um mætt þeim erfiðleikum er kunna að skjóta upp kollinum og það er þá allt frá þvl að detta ofan í jökulsprungu til eldsvoða 1 tjaldbúðum. Einnig þurfa leiðangursmenn að standast stranga læknisskoðun áður en þeir fá fararleyfi. En að sjálfsögðu er þetta aldrei hættulaust og höfuðhættan felst í samblandi brunakulda og roks." En hvernig er það, tengist þetta á einhvern hátt þinni doktorsritgerð eða fyrri rannsókn- um? „Já, vissulega. Ég vann mitt doktorsverk- efni innan rannsóknarhóps Lundarháskóla sem unnið hefur að athugunum á jöklabreyt' ingum síðasta jökulskeiðs á svæðinu kring- um Norður-Atlantshaf. Ein grundvallat' kennisetning jarðfræðinnar er að nútímim1 sé lykillinn að fortíðinni. Þannig að til að átta okkur t.d. á hvernig jökultíminn var 1 Borgarfirði getum við athugað hvernig jökl- ar eru og hegða sér þar sem aðstæður eru svipaðar í dag og reikna má með að þær hab verið í Borgarfirði á síðjökultíma m.a. hvað það varðar að jöklar gangi í sjó. Fyrir u.þ b- fjórum árum fór ég einmitt þessara erinda11 Svalbarða og ári síðar til Vestur-Grænlan<F- Síðar var ég svo þátttakandi í norrænun1 jarðvísindaleiðangri til Norður-Grænlanck og Thule til að kanna jöklunarsögu Thuk- 22

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.