Þjóðlíf - 01.11.1987, Síða 38

Þjóðlíf - 01.11.1987, Síða 38
ERLENT 864-200 v j| HAUKUR & ÓLAFUR HF- ÁRMÚLA 32 - REYKJAVlK - SlMI 37700 neikvæðan áróður lönd og leið, komist þeir að því, að kjarnorkan er síður en svo þjóð- hagslega hagkvæm, heldur þvert á móti í hæsta máta óarðbær. Menn verða einfald- lega að kunna að reikna. Þeir verða að taka með í reikninginn, hvílíkum ógnarfjárhæð- unt hefur verið eytt í kjarnorkuver, sem hefði mátt leggja í önnur og mun arðbærari íyrir- tæki. Þessa aura hefði t.d. að hluta mátt nota til að rannsaka aðra orkugjafa. Sömuleiðis verða menn að átta sig á því, að við notum miklu meiri orku en nauðsynlegt er. Þar að auki er efnahagsleg undirstaða orkubúskap- ar Vestur-Þjóðverja þess eðlis, að hún kem- ur í veg fyrir að unnt sé að koma skynsam- legri skikkan á þessi mál. Þau lög sem gilda um fjármögnun orkubúskapar hér í landi voru sett árið 1935, m.ö.o. á nasistatíman- um. Það er beinlínis fáránlegt að þessi lög skuli enn vera í gildi, því þau tóku leynt og ljóst mið af ákveðnum hernaðarlegum hags- munum. Með umræddunt lögum var komið á sterkri miðstýringu í orkumálum, sem stang- ast reyndar á við öll markaðslögmál og það er mesta furða, að postular hins frjálsa mark- aðar skuli ekki blygðast sín fyrir að búa við slík lög. Menn verða að forðast að láta þann áróður villa sér sýn, að við getum ekki kom- ist af án kjarnorkunnar. Það breytir engu, þótt ákveðnir aðilar í efnahagslífinu sjái sér hag í að dæla milljónum marka í slíkan áróð- ur, - það gerir hann síður en svo málefna- legri.“ ÉG BEINDI TALINU AÐ þeirri kreppu sem ríkt hefur í herbúðum græningja að undan- förnu. Innbyrðis deilur í samtökunum hafa gengið svo langt, að ýmsir hafa gert því skóna, að þau séu að liðast í sundur. Ég bað Otto Schily að segja mér, hvað væri hæft í þeim orðrómi. „Jú, það er rétt, að meðal græningja hat'a komið upp raddir unt að kljúfa samtökin. Ég tel hins vegar fráleitt að slíkur klofningur leysi nokkurn vanda. Ástæðan fyrir þessum deilum er fyrst og fremst sú, að innan græn- ingjahreyfingarinnar er fámennur hópur kreddufastra marxista, sem hefur sig mikið í frammi. Þeir eru mér kærkomnir, svo framarlega sem þeir eru færir um að losa sig við ákveðnar kreddubundnar grillur. Þeir sem eru ekki færir um slíkt og skoða alla hluti í Ijósi fyrirfram gefinna sanninda, eru híns vegar vísir til að grafa undan samstöðu flokksins og slíkt gæti í versta falli leitt til þess, að græningjar dyttu út af þingi. Ég nefni sem dæmi þær deilur sem hafa verið uppi meðal græningja að undanförnu, þar sem þessi fámenni hópur hefur látið mjög að sér kveða. Þar er um að ræða mis- munandi viðhorf til ofbeldis. Þeir sem búa við þingræðislegt lýðræðisskipulag verða að sætta sig við þá reglu, að átök flokka og þjóðfélagshópa eigi sér stað með friðsam- legum hætti. auk þess sem ríkisvaldið hafi rétt til að stemma stigu við ofbeldi í sam- félaginu. Valdbeiting af hálfu ríkisins verður þó að vera innan þeirra marka, sem lög og réttur gera ráð fyrir. Ef menn neita að sam- þykkja þessa grundvallarreglu og hengja sig í það slagorð, að ríkið sé ekkert annað an valdatæki ráðandi stétta og þess vegna verð- um við sjálf að beita ofbeldi, þegar okkur býður svo við að horfa, þá hafa slíkir menn ekkert að gera á þingi. Það ber vott um póli- tískan geðklofa, þegar þjóðkjörnir þing- BUNDESBILDSTELLE BONN • Otto Schily á þingfundi. I 3

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.