Þjóðlíf - 01.11.1987, Page 46

Þjóðlíf - 01.11.1987, Page 46
LISTIR Fiskur á disk Eöa flugfiskur JÓHANN ÁRELÍUZ kvaddi sér fyrst hljóðs árið 1983 með ljóðabókinni Bláttáfram sem var augljóst byrjandaverk sem þó lofaði góðu. Þau ljóð, sem ég hef síðan séð frá hendi Jóhanns, sanna að ljóðagyðjan hefur verið honum hliðholl. Söngleikur fyrir fiska tekur af allan vafa. I heild má segja að þessi ljóð Jóhanns séu óður til allrar fegurðar: lífsins, ljóssins, sumarsins, ljóðsins og hljómanna. Þessum jákvæðu öflum teflir hann fram gegn dauða, myrkri, vetri og stundum veruleikanum sem reyndar fær furðu litla umtjöllun í þessu verki. Það kemur því ekki á óvart að sum Ijóðanna birta framtíðarsýn, eða öllu heldur framtíðardraum um sælureit á jörðu: Eggtíð Pad rennur upp sá dagur að Ijóðið þiðnar vetrarklaki á vori, springur út í brjóstholinu og flýtur með hádegisflóðinu undir ást heitrar sólar. Pað rennur upp sá dagur. En hvað þá með tíðarandann, veruleikann sem umkringir okkur og drepur í dróma margt það sem Jóhann syngur lof. Sumunt kann aö finnast sem Jóhann afneiti honuni með öllu eða a.m.k. að mestu leyti. Honum eru önnur mið hugstæðari, enda rær hann á djúpmið. Innri veruleikinn, veröld hugar- fylgsna, fær sýnu meiri umtjöllun; veröndin er nærtækari en veröldin: Sólmánuður Hví ekki hlýða um stund á söngfugla, sígilda tónlist? grípa geisla og hljóma þegar sólin stráir gulli Jónsmessu á skrif- borðið og draumarnir lœða óskum undir koddann; maður situr innhverfur á veröndinni dreypandi á lögg og nemur undirmjúkan klið tóna ... Japl og jaml veraldar eilífðarfjarri en heimurinn allur hér! Hví ekki að hlýða á söngfugla? Áþekk stef eru víða endurtekin, t.d. í Undir haust: Kvíði ei vetri en skrái - leik fram Ijósum - minningar sumarsins öruqgur stuóninqur við íbróttamenn DONJOY varmahlífar eru léttar og liprar og hindra ekki eðlilegar hreyfingar. Þærveitagóðanstuðning jafnframt því að halda hita á liðamótum. Þannig geta DONJOY varmahlífar dregið úr hættu á meiðslum. Þær eru einnig sérlega hentugar fyrir fólk með liðagigt. n OSSUR HVERFISGATA 105 SlMI: 91-621460 46

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.