Frjáls verslun - 01.08.2012, Síða 166
166 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. 2012
Hýsing tölvukerfis hjá Advania dregur
úr rekstrarkostnaði og hentar fyrirtækjum
af öllum stærðum.
» Aukið öryggi
Gögnin eru afrituð yfir í annan hýsingarsal og þannig
geymd á tveimur stöðum. Hýsingarumhverfi okkar er
voað samkvæmt ISO 27001 sem er alþjóðlegur staðall
um upplýsingaöryggi.
» Hámarksaðgangur að hugbúnaði og gögnum
Öll gögn og hugbúnaður er aðgengilegur á einfaldan
og þægilegan há.
» Sérfræðingar vakta gögn og kerfi
Sérfræðingar okkar eru á vakt allan sólarhringinn,
alla daga ársins.
Hafðu samband og kynntu þér kosti hýsingar hjá Advania.
Það er símtal sem borgar sig.
Bjóðum
tölvukerfið
þi velkomið
í hýsingu
Sætún 10 | 105 Reykjavík | Sími 440 9000 | advania@advania.is | www.advania.is
1
2
-1
4
9
4
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Betur heima setið en af stað farið. Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjón-
ust unnar, segir að heildartekjur samfélagsins minnki um 10 til 28 milljarða króna
við að hækka skattaálögur á ferðaþjónusta og seilast eftir auknu skattfé.
Ý
mis legt hefur komið
fram í þeirri umræðu
sem átt hefur sér
stað um þær fyrirætl
anir stjórn valda að
hækka virðisaukaskatt á gistingu
úr 7% í 25,5% og fella niður
afslátt bílaleigna á vöru gjöldum.
Samtök ferðaþjón ustunnar
hafa fengið KPMG til að vinna
skýrsl ur um áhrif hvorra tveggja
breytinga á tekjur ríkissjóðs.
Skýrslur KPMG leitast við að
meta heildaráhrifin af þessari
breyt ingu á tekjurnar en það
hlýt ur jú að vera það sem skiptir
þjóð hagslega mestu máli.
Gisting
Í skýrslu KPMG um breytingu á
virðisaukaskatti á gistingu kemur
fram að heildartekjur samfélags
ins af erlendum ferðamönnum
án flugfargjalda gætu orðið 10
til 28 milljörðum króna lægri en
ella ef af þessum breytingum
verður. Forsendur fyrir þessum
tölum eru að rúmlega 17%
hækk un á gistingu muni hafa
áhrif á hegðun neytenda og er
þá annars vegar gert ráð fyrir að
ein hverjir muni einfaldlega hætta
við Íslandsferð og hins vegar
að þeir muni dvelja styttra hér á
landi en ella. Í fjárlagafrum varp
inu er gert ráð fyrir að möguleg
ar tekjur ríkissjóðs af þessari
breytingu á virðisaukaskatti á
gistingu verði 2,6 milljarðar króna
á næsta ári en með hliðsjón
af fyrirsjáanlegu h eildartapi
samfé lagsins af þessari breyt
ingu er ljóst að hér er betur
heima setið en af stað farið.
Bílaleigur
Fyrirhugaðar breytingar á vöru
gjöldum til bílaleigna munu einn
ig hafa neikvæð áhrif á tekjur
ríkissjóðs. Samkvæmt útreikn
ingum KPMG mun ríkissjóður
ekki hafa áætlaðar 500 milljónir
í tekjur af þeirri breytingu heldur
mun ríkissjóður tapa um 371
milljón króna á breytingunni.
Forsendur fyrir þessum útreikn
ingum eru að leigðum bílum
muni fækka og virðisaukaskattur
af leigunum þar með lækka en
af bílaleigu er greiddur 25,5%
virðisaukaskattur. Jafnframt
munu tekjur af bensíngjaldi og
virðisaukaskatti af bensíni og
sölu bifreiða lækka verulega.
Hér er því einnig lagt upp með
aðgerðir sem ekki munu skila
auknum tekjum í ríkissjóð.
Innanlandsflug
Þriðja grein ferðaþjónustunnar
sem ekki hefur verið eins mikið í
umræðunni nú undanfarið vegna
hækkunar opinberra sértækra
gjalda er innanlandsflugið.
Innan landsflug á Íslandi er al
menningssamgöngur. Meirihluti
farþega í innanlandsflugi ferðast
á eigin vegum til að komast á
hagkvæman máta á milli lands
hluta. Á undanförnum 30 árum
hefur farþegum í innanlandsflugi
að meðaltali fjölgað um 3% á ári
þrátt fyrir að áfangastöðum hafi
fækkað og á undanförnum 10
árum hefur farþegum í innan
landsflugi fjölgað um 16% þrátt
fyrir bankahrun, eldgos og efna
hagskreppu. Þessari þróun er
nú ógnað vegna yfirgengilegrar
hækkunar sértækra gjalda á
innanlandsflug. Gjaldahækkanir
sem lagðar hafa verið á á undan
förnum árum jaðra við aðför að
innanlandsfluginu. Frá árinu
2009 hafa sértæk gjöld meira en
tvöfaldast og ef það frumvarp
til fjárlaga sem nú liggur fyrir á
alþingi verður að veruleika má
búast við að sértæk gjöld á inn
anlandsflugið þrefaldist frá því
sem var fyrir einungis þremur
árum og verða yfir 600 milljónir
króna á ári. Það er alveg ljóst að
þörfin á öflugu innanlandsflugi
er mikil enda þjóðhagslega
hag kvæmur ferðamáti. Því er
mikilvægt að sú umgjörð sem
innan landsfluginu er sköpuð
ógni ekki þessu hlutverki.
Samtök ferðaþjónustunnar
hafa í kjölfar hrunsins líkt og
Sam tök atvinnulífsins talað
fyrir blandaðri leið aukinnar
skattheimtu og aukinna um
svifa atvinnulífsins til að koma
ríkissjóði á réttan kjöl. Það þarf
hins vegar ekki að horfa til nema
einfalds Lafferferils til að átta
sig á því að hér getur of mikil
hækkun skatthlutfalla orðið til
þessi að tekjur ríkissjóðs verði
minni en ella og það er einmitt
sú niðurstaða sem við í ferða
þjónustunni höfum áhyggjur af
að verði með þessari breytingu.
Það er því ekki síst með hags
muni ríkissjóðs að leiðarljósi
sem ferðaþjónustan varar við
ofangreindum breytingum.
Ferðaþjónustan teygir anga
sína víða og breytingar á
eftir spurn hafa ekki bara áhrif
á einstakar greinar ferðaþjón
ustunnar heldur einnig á stóran
hluta þjóðfélagsins.
„Rekstur áætlunar
flugs innanlands er
í hættu. Sértæk gjöld
á innanlandsflugið
stefna í þreföldun
á þremur árum og
verða yfir 600 millj
ónir króna á ári.“
lokaorðið hefur árni gunnarsson, framkvæmdastjóri
flugfélags Íslands og formaður samtaka ferðaþjón ustunnar
ÁRNI GUNNaRSSON
„Samfélagið missir
10 til 28 milljarða í
tekjur.“
ríkissjóðs?Hagsmunir
Lokaorð