Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 5

Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 5
FÁ RANGSTÖÐU- MEISTARARNIR RAUÐA SPJALDIÐ? Jón Óskar Sólnes segir frá Vópó-dekur- börnunum í Dynamo Berlin, spillingu í austur-þýsku meistarakeppninni og endalokum stórveldistímabils öryggis- varðanna frá Austur-Berlín. Magnaðar sögur um spillingu hjá Dyna- mo Berlín reyndust réttar. Hið heims- fræga lið verður ef til vill lagt niður. Margir telja hneykslið dæmigert fyrir fleira en íþróttir í Austur—Þýskalandi. íslendingar kynntust liðinu í september síðastliðnum þegar það kom hingað og lék við Val í fyrstu umferð í Evrópu- keppni bikarhafa ... 30-32 KVÓTAKERFIÐ OG HAGSMUNAÖFLIN Gísli Pálsson dósent við Háskóla ís- lands skrifar: Er það dulið markmið fiskveiðistefnunnar að hygla fámenn- um hagsmunahópum? Er eðlilegt að 39 menn á Fiskiþingi séu ráðandi um „sameign þjóðarinnar"? Eru aðrir landsmenn og stofnanir eins og alþingi nánast skuldbundnir til að fara eftir þeirra vilja? 50-51 VÍSINDI Falsanir í jarðfræði. Falsvísindamaðurinn indverski............................ 60 Skokkarar hætta oft heilsu sinni í menguðum stórborgum.................. 65 Ferðalangar fá oft í magann. Með nýrri tækni er hægt að koma í veg fyrir magakveisur á erlendri grundu.........65 Neanderdalsmaður fær andlitslyftingu ..................... 66 Ekki linnir skógardauða í Evrópu .... 66 Kísilsýra vinnur gegn áhrifum súrs regns .......................... 67 Nýr orkugjafi fyrir fátækar þjóðir............................... 67 UMHVERFI MHHI Umbúðaþjóðfélagið Minna getur verið betra! Um bók Harðar Bergmanns .................. 68 Að selja ísland með akstri utan vega .. 71 NEYTENDUR Könnun á gæðum tónsnælda ... 74 Innleggsnótur og útsölur.... 74 Hvað þýða merkin á fatnaðinum? .... 75 ýmislegt mmmmmmmmmmm Krossgáta .................. 78 Börnin eru afskipt Lélegur aðbúnaður barna er stærsta hneykslismál þjóðarinnar segir Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri í Reykjavík í viðtali við Þjóðlíf. Hún telur að rekja megi ofbeldi meðal ungmenna til vanrækslu og gagnrýnir harkalega þau viðbrögð í borgarstjórn að kalla á fjölmennara lögreglulið í stað þess að komast fyrir rætur vandans:„Hefur engum dottið í hug að ástæðan fyrir því að börnin hagi sér svona, sé sú, að borgin hafi ekki sinnt börnum nægilega vel?“ Á umliðnum áratugum hafa orðið gífurlegar þjóðfélagsbreytingar m.a. á þann veg að báðir foreldrar barna eru útivinnandi. Á sama tíma hefur ný afþreyingartækni komið til sögu, sjónvarpsmenning og margs konar önnur samkeppni um tímann. Börnin hafa orðið útundan í þeim skilningi að þau njóta æ minna samneytis við foreldra sína og ættingja. Því fer fjarri að þjóðfélaginu hafi tekist að mæta öðruvísi þörfum heimila í landinu samfara þessum breytingum. Þannig eru langir biðlistar eftir plássum á dagvistarstofnanir í höfuðborginni til vitnis um skeytingarleysi. Og ástand- ið í grunnskólunum sömuleiðis til merkis um andvaraleysi, skilningsleysi á breyttu þjóðfélagi, —og á þörfum barna. Börnin eiga oft ekki öruggt skjól að afloknum skóla, þau verða „lyklabörn“, —fleinn í holdi velferðarríkisins. Og það er undarleg mótsögn fólgin í þeirri staðreynd að á sama tíma og áðurnefndar þjóðfélagsbreytingar hafa orðið, hefur skólatími barna í grunnskólum styst. Foreldrar þeirra barna sem nú eru í skólum höfðu mun lengri viðveru í skólanum en börnin þeirra. Um 1960 voru börn 10210 mínútur á viku í skóla en á síðustu árum hefur viðveran orðið rýrari með hverju árinu og er komin niður í 9080 mínútur! Eitt stærsta vandamál í skólalífi yngstu samborgaranna eru þrengsli. Núverandi nýtingarhlutfall skólanna er allt of hátt, eða um 150%, og er fengið með tvísetningu þeirra að hluta. Fræðslustjórinn í Reykjavík segir að allt að 3700 börn séu hornrekur í grunnskólum Reykjavíkur og er þar aðallega um að ræða yngstu börnin. Til að koma á viðunandi ástandi þyrfti að fjölga skólastofum um 150 til 160. Að mati fræðslustjóra er þetta eitt stærsta hneykslismál þjóðarinnar. Samanborið við hve miklu er eytt í verslunarhúsnæði og þjónustu sé meðferð þjóðfélagsins á börnunum til skammar. Fræðslustjórinn bendir á að oft sé mikið um íburð í skólabyggingar. Enn einu sinni láta menn blekkjast af umbúðum en gefa innihaldinu ekki nægilega gaum. Bent er á lausnir eins og færanlegar skólastofur og betri nýtingu fjárfestinga í skólahúsnæði, sem ekkert er notað í marga mánuði að sumarlagi. En landsmenn eru ekki aOir sáttir við samfélag lyklabarnanna. Ástandið er orðið mörgum áhyggjuefni.,, íslendingar sýna börnum nakið kæruleysi. Við þurfum ekki endilega á formlegum breytingum að halda með lögum, það er innihaldið sem skiptir máli, við þurfum að sýna börnum meiri ræktarsemi, skilning og virðingu“, segir Arthúr Morthens sérkennslufulltrúi í samtali við Þjóðlíf. í nýársávarpi sínu sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, að mörgum væri „hagur barna í þessu vinnuþreytta þjóðfélagi mikið áhyggjuefni og greinilega er nauðsynlegt að finna leiðir til lausnar“. Það er mikil þverstæða að íslenska þjóðfélagið hefur varið gífurlegum og sívaxandi fjármunum til framhaldsmenntunar og kjarabar- átta hefur gengið mikið út á próf og skólagöngu á framhaldsstigi — á sama tíma og undirstöðunni virðist æ minna sinnt. Hér er mikið verk fyrir höndum, en það er e.t.v. skynsamlegast að byrja umræðuna með orðum forsetans:„Við verðum að játa það fyrir okkur sjálfum að börn okkar eru afskipt“. Óskar Guðmundsson. íltgefandi: Félagsútgáfan h.f. Vesturgötu 10. box 1752,121 Reykjavík, sími 621880. Framkvæmdustjórn Félagsútgáfunnar: Björn Jónasson, Jóhann Antonsson, Skúli Thoroddsen. Stjórn: Svanur Kristjáns- son, Björn Jónasson, Ásgeir Sigurgestsson, Pétur Reimarsson, Jóhann Antonsson, Birgir Árnason, Skúli Thoroddsen. Albert Jónsson, Hallgrímur Guðmundsson, Ámi Sigurjónsson. Ritstjóri Þjóðlífs: Óskar Guðmundsson. Blaðam.: Kristján Ari Arason, Einar Heimisson, Sævar Guðbjörnsson. Setn. o.fl.: María Sigurðardóttir. Prófórk: Guðrún. Fréttaritarar: Arthúr Björgvin Bollasoft (Munchen), Guðmundur Jónsson (London), Einar Karl Haraldsson (Stokkhólmi), Guðrún Helga Sigurðardóttir (Finnlandi), Ingólfur V. Gíslason (Lundi), Jón Ásgeir Sigurðsson (New Haven), Yngvi Kjartansson (Osló), Árni Snævarr (París). Forsíða, hðnnun: Erlingur Páll Ingvarsson. Ljósm. á forsíðu: Guðmund- ur Ingólfsson. Skrifstofustjóri: Guðrún Björk Kristjánsdóttir. Bókhald: Jón Jóhannesson. Fram- kvæmdastjóri: Lára Sólnes. Auglýsingar: Hörður Pálmarsson. Markaður: Hrannar Björn. Prent- vinnsla: Prentstofa G. Benediktssonar hf. Kópavogi, sími: 641499. Blaðamcnn símar: 623280 og 622251. Ritstjóri: 28230. Áskriftasími: 621880. Auglýsingasímar: 26450 og 28149. ÞJÓÐLÍF 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.