Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 20
SKÁK
STORVELDASLAGUR
Á ÍSLANDI
— Kastljósið beinist að Reykjavík í mars —
ÁSKELL ÖRN KÁRASON
í marsbyrjun verður háð í Reykjavík ein-
stæð skákkeppni. Fjögur stórveldi skák-
heimsins munu þá etja kappi, 10 manna
sveitir Sovétmanna, Bandaríkjamanna og
Englendinga, auk úrvalsliðs frá Norður-
löndum. Búast má við lunganum af sterk-
ustu skákmönnum heims hingað til lands
af þessu tilefni.
að er raunar svo að nafn íslands er í
skákheiminum ekki ósjaldan tengt
stórum atburðum og örlagaríkum og ber
þar vitaskuld hæst „einvígi aldarinnar“
1972. Mun tæpast ofsagt að sjaldan hafi
þetta kalda land orðið heimsfrægara en
þær svölu og skýjuðu júlívikur þegar
austrið og vestrið efldu taflið með viðeig-
andi kaldastríðsmúsík í fjölmiðlum
heimsbyggðarinnar. Nema ef vera skyldi
þegar leiðtogafundurinn var í hitteðfyrra
og draugurinn í Höfða komst á síður
heimsblaða. „The Reykjavik Summit“
eins og Ameríkanar nefna fund þeirra
Reagans og Gorbatjovs. Með vísun í
þann sögulega mannfagnað er stórvelda-
slagurinn nú nefndur á enska vísu „IBM-
VISA Chess Summit“.
Upphaf þessa stórveldaslags má rekja til
þess er Einar S. Einarsson, forstjóri
VISA-ísland hafði forgöngu um keppni
Bandaríkjanna og úrvalsliðs Norðurlanda
í Reykjavík fyrir fjórum árum. Teflt var á
10 borðum og lauk spennandi viðureign
með skiptum hlut eftir að lengstaf hafði
hallað á vestanmenn. Svo vel þótti til tak-
ast að rétt þótti að stefna hærra og var
skömmu síðar hafinn undirbúningur að
téðri fjögurra liða keppni. Hefur Einar,
sem í millitíðinni er orðinn forseti Skák-
sambands íslands, haft veg og vanda af því
starfi. Hefur fjögurra ára fyrirvari verið
síst of langur til þeirra hluta, enda dagskrá
atvinnumannanna æði þéttskipuð og ekki
auðvelt að koma svo mörgum saman í
einu.
Ekki þarf að gera því skóna að allt annað
en sigur Sovétmanna í þessari keppni
væru stór tíðindi. Þegar sveitakeppni í
skák er annars vegar er rússneskur sigur
nánast lögmál. Þegar þetta er ritað er
margt á huldu um skipan liðanna, nýr
skákstigalisti m.a. enn ókominn. Vitað er
að Anatólí Karpov forfallast, en að öðru
leyti er ekki kunnugt um annað en allir
mæti hér með sitt úrvalslið. Liðsuppstill-
ing er enn ófrágengin, en ég birti hér til
gamans lista 10 stigahæstu manna hvers
aðila — þó þannig að Karpov vantar í
sovéska liðið. Þessi nöfn munu eflaust
flytjast eitthvað til á listunum þegar ný
stigin verða birt nú í upphafi árs, en með-
alstigatala sveitanna mun tæpast breytast
mikið við það. Forföll, sem vísast verða
einhver, gætu hinsvegar breytt myndinni
meira. Sovétmenn bera af eins og stiga-
meðaltalið sýnir, en hinar sveitirnar eru
nokkuð svipaðar og enginn vafi á því að
baráttan milli þeirra verður hörð. Að ein-
hver þeirra ógni Kasparov og félögum er
heldur ekki óhugsandi.
Sovétmenn sem ætíð hafa heiður að
verja í keppni sem þessari munu hafa val-
inn mann í hverju rúmi og fullvíst að
a.m.k. sjö efstu menn listans veljast í
sveitina. Þó er óvíst um Salov sem haldinn
er þrálátum blóðsjúkdómi. Þeir austan-
menn eru þekktir fyrir íhaldsemi í liðs-
uppstillingu og fara sér yfirleitt hægt í að
hleypa nýjum „spútnikkum" að. Þannig
er ekki víst að ungstirnið Gelfand fái náð
fyrir augum fyrirmanna, og e.t.v. ekki
Dolmatov heldur. Nýbakaður Sovét-
meistari Rafael Vaganjan hefur löngum
verið traustur liðsmaður á ólympíumótum
og verður án efa í sveitinni nú, þótt hann
sleppi ekki inn á þennan lista. Þá er ekki
ólíklegt að þeir velji trausta og reynda
kappa eins og þá Pólúgaévskí og Túkma-
kov í liðið. Mikhaíl Tal, aftur á móti er
orðinn heilsulaus að kalla og verður tæpast
treyst í þessa keppni.
Erfiðast er að sjá fyrir skipan banda-
rísku sveitarinnar. Vesturheimskir skák-
menn eru trúir anda hins frjálsa framtaks
og rekast með afbrigðum illa í sveit og
skáksamband þeirra virðist að sama skapi
ófært um að hafa á þeim stjórn eða semja
við þá frið. Þannig er viðbúið að upp komi
deilur um það hver tefla skuli á fyrsta
borði og er a.m.k. víst að Yasser Seira-
wan gefur það ekki eftir barátmlaust.
Bandaríkjameistarinn Wilder er í þann
mund að taka væntanlegan frama sem lög-
Síðustu fréttir:
KASPAROV KEMUR EKKI!
Nýjustu fréttir herma að heimsmeist-
arinn muni ekki verða í sovéska liðinu í
stórveldaslagnum. Kasparov mun hafa
svarað sendimanni Skáksambands Is-
lands því til að útilokað væri að hann
tefldi fyrir hönd Sovétríkjanna meðan
núverandi skákyfirvöld réðu þar ríkj-
um. Öðru máli gegndi ef íslendingar
óskuðu þess að hann mætti á staðinn
með sveit landsmanna sinna, sem hann
sjálfur veldi; sumsé Kasparov gegn
hinum stórveldunum!
Þrátt fyrir þessa veikingu verður sov-
éska sveitin, án Karpovs og Kasparovs
enn sigurstranglegust í keppninni. Sam-
kvæmt nýjum stigalista FIDE sem enn
hefur ekki borist okkur í heild sinni,
verða litlar breytingar á röð stigahæstu
Sovétmanna. Flestir bæta þó ögn við sig
og verður meðalstigatala 10 efstu manna
(að Karpov og Kasparov frátöldum)
2628. Á bandaríska listanum verða
breytingar sömuleiðis sáralitlar og hjá
Englendingunum er það helsta að frétta
að ungstirnið Adams er kominn í 5. sæt-
ið með 2555 stig. Hins vegar eru líkur á
að Norðurlandasveitin verði sú veikasta
á pappírnum. Ulf Andeson verður upp-
tekinn við að aðstoða Jan Timman í ás-
korandakeppninni og þátttaka Larsens
er ólíkleg. Að auki hefur Jóhann Hjart-
arson lækkað mjög að stigum en víst er
hann verður í sveitinni ásamt þeim
Helga, Margeiri og Jóni L....
—áök
20 ÞJÓÐLÍF