Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 74
Tegund Hár styrkur Upptaka án bjögunar Jöfn hljómgæði
BASF normal 2 3 4
króm 5 3 5
Maxell normal 4 3 3
króm 4 5 4.
metal 5 4 4
Sony normal 4 3 5
króm 5 5 5
metal 5 3 3
TDK normal 4 3 4
króm 5 5 4
metal 5 3 4
Neytendasíðan kannaði verð á þessum
snældum og fékk þær niðurstöður að það
er nokkuð jafnt milli merkja. í fljótu
bragði lítur verðtaflan þannig út:
60 mín. 90 mín.
Normal 180-210 kr. 210- 270 kr.
Króm 220 - 330 kr. 350 - 400 kr.
Metal 400 - 500 kr. 500 - 650 kr.
í fljótheitum má sjá af þessum töflum að
ekki er alltaf heppilegast að kaupa metal-
snældur sem dýrastar eru eins og kemur
fram í niðurstöðum ensku Rannsóknar-
stofunnar.
NEYTENDAMAL
KONNUNA
GÆÐUM
TÓNSNÆLDA
Annars staðar á Neytendasíðunni er t£
að um gæðakannanir sem Neytendasar
tökin hafa í fórum sínum. Hér er ein se
er alveg ný af nálinni. Þetta er könnun
snældum (kasettum) sem gerð var a
Rannóknarstofu ensku neytendasamtak-
anna (Consumer research
laboratory)
Við höfum tekið út þau fjögur merki
sem eru þekktust hér á landi. Þrjár teg-
undir af snældum eru til, þ.e. normal,
króm og metal og gefur sú síðastnefnda
mestu hljómgæðin. Reyndar er talið á
Rannsóknarstofunni að slíkar snældur
þurfi ekki endilega að ná bestum árangri
þar sem enn séu ekki margar tegundir
kasettutækja sem eru það fullkomin að
koma til móts við metalsnældurnar til að
gefa sem tærastan hljóm. Ennfremur er á
það bent að mjög ódýrar snældur séu ekki
heppilegar fyrir góð og vegleg tæki. Ekki
sé heldur heppilegt að nota mjög dýrar og
góðar snældur í eldri og nokkuð úr sér
gengin tæki.
Taflan hér á eftir sýnir þá einkunnagjöf
sem Rannsóknarstofan í Englandi hefur
gefið þessum snældum eftir nákvæmar
rannsóknir. Einkunnirnar eru frá 1 - 5 þar
sem 1 er lægst og 5 hæst.
INNLEGGSNÓTUR OG ÚTSÖLUR
Neytendasamtökin sendu eftirfarandi
fréttatilkynningu til fjölmiðla nýlega:
Athygli Neytendasamtakanna hefur
verið vakin á því að sumar verslanir taka
ekki á móti innleggsnótum ef um útsölu
er að ræða. Að mati Neytendasamtak-
anna stenst slíkt ekki gagnvart lögum,
enda hefur verslun með því að gefa út
innleggsnótu viðurkennt að neytandinn
eigi kröfu á vörum að sömu upphæð.
Utsala, rýmingarsala eða önnur sala á
lækkuðu verði geta á engan hátt breytt
þessum rétti neytandans.
Kvörtunarþj ónustu Neytendasamtak-
anna hafa borist kvartanir frá neytendum
vegna þess að þeim hefur verið neitað að
taka út á innleggsnótu ef útsala er í versl-
uninni, en eins og kemur fram í yfir-
lýsingunni hér að ofan er slíkt ólöglegt.
Einnig er vert að vekja athygli neytenda á
því að hafi viðskipti farið fram með
greiðslukorti er kaupandi í fullum rétti
til að skila vöru. Það sem verslun gerir í
því tilviki er að gefa út „debetnótu“ fyrir
sömu upphæð og skilað var.
Mikið var um útsölur í Reykjavík í
sumar og haust og virðast margir kaup-
menn sækjast eftir viðskiptavinum sem
staðgreiða, því dæmi eru um að afsláttur
sé 30% til korthafa en 40% til þeirra sem
staðgreiða vöruna.
—ahp
74 ÞJÓÐLÍF