Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 19

Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 19
Islands er æ oftar getid þegar framrás eyðimarka er rsedd á erlendum vettvangi, segir í grein eftir Ólaf Arnalds í árbókinni. ÍSLAND EINS OG EYÐIMÖRK Reynt að spoma við fótum. Margir hafa orðið til þess að aðstoða við að græða landið á ný. Hér eru félagar úr ungliðadeild Rauða krossins á Norðurlöndum við gróðursetningu í Þórsmörk. Myndin er meðal fjölmargra Ijósmynda sem prýða árbókina. „íslands er æ oftar getið þegar framrás eyðimarka er rædd á erlendum vett- vangi“, segir í ritgerð eftir Ólaf Arnalds jarðvegsfræðing sem birtist í nýútkom- inni árbók Landgræðslu Ríkisins, Græð- um Island. Þess er getið að eyðimekur jarðar þekja nú um 8 milljónir ferkíló- metra og stækki um 1% á ári. í ritgerðinni segir Ólafur að jarðvegs- eyðingin hér hafi orðið meiri en þekkist í nálægum löndum. Talið er að á landnáms- öld hafí allt að 65% landsins verið hulinn gróðri en nú eingöngu 25%. Jarðvegseyð- ingin á íslandi er af mörgum talin alvarleg- asti umhverfisvandi þjóðarinnar og að mati Ólafs eru afleiðingar þessarar eyðing- ar varanlegri hér en í nágrannalöndunum þar sem náttúruleg endurgræðsla og vist- heimt gengur hægar fyrir sig hér á landi. í ritgerðinni nefnir Ólafur ýmsar ástæður fyrir gróðureyðingunni. M.a. bendir hann á að röng landnýting og ofnýting gróðurs sé oftast nær forsenda þess að jarðvegseyð- ing hefjist. í þessu sambandi bendir hann á að stór afréttarsvæði á landinu eru nú ofnýtt varar til dæmis við að beita gróður á hálendi landsins. í árbók Landgræðslunnar eru alls um tuttugu greinar og ritgerðir og fjalla þær allar um gróður landsins, uppgræðslu þess og verndun, sér í lagi í Rangárvallasýslu, — höfuðvígi Landgræðslunnar. Þeir sem skrifa auk Ólafs eru Sveinn Runólfsson, Magnús Þorkelsson, Þorsteinn Þor- steinsson, Ólafur Dýrmundsson, Hákon Sigurgrímsson, Haukur Ragnarsson, Andrés Arnalds, Sigurður H. Magnús- son, Borgþór Magnússon, Jón Guð- mundsson, Asgeir Beinteinsson, Davíð Pálsson, Haraldur Þórðarson, Ásdís Arnalds, Ari Trausti Guðmundsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir. Ritstjórar Árbókarinnar voru þau Andrés Arnalds og Anna Guðrún Þórhallsdóttir. Fyrsta árbók Landgræðslunnar kom út fyrir rúmu ári síðan og var hún tileinkuð 80 ára afmæli stofnunarinnar árið 1987. Þess má geta að á árum áður nefndist hún Sandgræðsla ríkisins. Nýja árbókin er ríkulega myndskreytt og innbundin. í for- málsorðum árbókarinnar segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri að tilgang- urinn með útgáfunni sé að kynna starf- semi Landgræðslu ríkisins á liðnu ári og koma á framfæri markmiðum stofnunar- innar í landgræðslu og gróðurverndarmál- um og skapa vettvang til að birta vísinda- greinar um landgræðslu ásamt ýmsum fróðleik er varðar umhverfismál. kaa— ÞJÓÐLÍF 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.