Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 26
FJÖLMIÐLAR
KALLAÁ
Ofstœki og óábyrg fréttamennska sœnskra fjölmiðla
framkallar hörð viðbrögð
INGÓLFUR V. GÍSLASON
Sagt hefur verið að lygin nái að fara þrjá
hringi kringum jörðina áður en sannleik-
urinn kemst á fætur. Hefur mátt sann-
reyna þessa fullyrðingu hér í Svíaríki
undanfarna mánuði. Eins og menn vita
eru fregnir af glæpum, slysum og hörm-
ungum talin góð söluvara í heimi fjöl-
miðla. Þeim mun verri glæpur, þeim
mun stærri hörmungar, þeim mun betri
sala. Og ofbeldisverk án sýnilegrar
ástæðu er gulls ígildi meðal síðdegis-
blaða og æsifréttamanna.
Astæðulaust ofbeldi var mjög í fréttum
í Svíþjóð fyrir nokkrum vikum.
Fjölmiðlar fullyrtu að slíkt færi mjög í
vöxt og vart væri óhætt að dveljast utan
dyra eftir að skyggja tæki. Ef dæma ætti
eftir síðdegisblöðum og annarri sjónvarps-
fréttastöðinni færu hjarðir unglinga um
bæi og borgir með ránum og mannvígum
og væru fáir óhultir. Sem dæmi hér um
voru sérstaklega tekin tvö manndráp.
Annars vegar var nefnt að 15 ára ungl-
ingur hefði að tilefnislausu verið skorinn á
háls með brotinni flösku í Stokkhólmi. Til
enn frekari áréttingar hörrmungarástand-
inu var það látið fylgja að fjöldi manns
hefði gengið framhjá piltinum meðan hon-
um blæddi út án þess að rétta hjálpar-
hönd.
Hitt dæmið var af fimm barna móður
sem í haust var barin í hel af fjórum ungl-
ingum. Var svo frá sagt að drengirnir
hefðu fyrst barið hana niður og tekið
handtösku hennar en síðan snúið aftur og
sparkað í hana þar til yfir lauk. Óljóst var
hvort þar var um hreina fúlmennsku að
ræða eða hvort það átti að hindra kæru því
drengirnir brutust inn hjá konunni með
því að nota lykla þá er í töskunni voru.
Var mikið gert úr þessum málum í
fjölmiðlum og ættingjar beggja fórnar-
lambanna leidd til vitnis um sorgina og
hversu ofbeldi hefði aukist í Svíþjóð. Börn
UMBYLTING í
Fyrir dyrum standa veigamiklar breyt-
ingar á sænska landbúnaðarkerfmu.
Niðurgreiðslur og styrkir eiga að hverfa
á næstu árum, þannig að á árinu 1994 á
markaðurinn einn að hafa tekið við.
Þessi þróun er hliðstæð víðs vegar í
Evrópu.
að er ekki aðeins á íslandi sem nokk-
uð er deilt um hvernig haga beri
rekstri landbúnaðarins. Má raunar frekar
segja að fá séu þau lönd þar sem ekki er
hart tekist á um þau mál. Svíar hafa ekki
farið varhluta hér af, en vana sínum trúir,
hafa þeir nú náð breiðri pólitískri einingu
um að umbylta landbúnaðarpólitíkinni.
Þingmannanefnd hefur skilað tillögum
hér um, sem búist er við að fái meirihluta-
stuðning á þingi í vetur. f sem stystu máli
fela tillögurnar í sér að allur ríkisstuðning-
ur til bænda á að hverfa í áföngum þannig
að ekkert verði eftir 1994. Eftir það á
markaðurinn einn að ráða hvað er fram-
leitt og hvaða verð bóndinn fær fyrir afurð
sína. Með þessu móti hyggst ríkisvaldið
LANDBÚNAÐI
draga úr offramleiðslu á landbúnaðarvör-
um og þá fyrst og fremst korni.
Jafnframt er vonast til að breytingin
hafi í för með sér verðlækkun á matvöru.
Að minnsta kosti verði hækkanir ekki jafn
örar og hingað til. Verðhækkanir á mat-
vöru (og raunar húsnæði líka) hafa í mörg
ár verið mun örari en á öðrum vörum.
Takist að snúa þeirri þróun við hefur rík-
isstjórn jafnaðarmanna náð góðum tökum
á verðbólgunni sem verið hefur einn helsti
höfuðverkur hennar hin síðari ár.
En fleira kemur hér til. Verði niður-
greiðslum og framleiðslustuðningi hætt,
sparast miklar fjárhæðir og telst víst þörf á
þeim til annarra verkefna. Ber hér að hafa
í huga að Svíar stefna að mikilli breytingu
á skattapólitík sinni með það í huga að
lækka skatta. Er raunar óvíst hvernig
gengur að ná einingu þar um en fjármála-
ráðherra mun fagna flestu er til sparnaðar
horfir.
Síðast en ekki síst er vonast til að breyt-
ingin hafi jákvæð umhverfisáhrif. Fram-
konunnar gengust fyrir undirskriftasöfn-
un gegn ofbeldi og létu margt hafa eftir sér
um nauðsyn strangra refsinga. Fjölmiðlar
birtu bréf frá gamalmennum sem ekki
sögðust þora út fyrir hússins dyr og kröfð-
ust aðgerða. Og var þess nú ekki langt að
bíða að stjórnmálamenn skynjuðu sinn
vitjunaru'ma.
Leiðtogi hægrimanna, Carl Bild, lýsti
þeirri skoðun sinni að allt væri þetta meira
og minna jafnaðarmönnum að kenna.
Ekki væri nóg með að hugmyndafræði
þeirra myndi grafa undan guðsótta og góð-
um siðum og þeim stofnunum (heimilinu
fyrst og fremst) sem uppeldi ættu að
sinna. Nei, jafnaðarmenn hefðu gengið
enn lengra og stuðlað að fækkun í lög-
reglusveitum landsins og þar með beinlín-
is gengið erinda glæpamanna. Nú yrði að
gera gangskör að því að fjölga í lög-
reglunni og efla eftirlit á götum og torg-
um.
Ríkisstjórnin lýsti því yfir að hún hefði
fyrir þó nokkru gert ráðstafanir til
eflingar lögreglunni en hugsanlega væri
hægt að gera enn meira. Auk þess skipaði
RITSKOÐIIN
26 ÞJÓÐLÍF