Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 39
ARATUGARINS
TEX«
22?5«i7
SAI60N
^IOKM
LOS ANGELES
8.75? KM
H0N6K0NG
685 KM.
Kvikmvndin Platoon fjallar um það sem gerðist í Víetnam.
áhættu. Þeim mun meira sem þjóðfélagið
stækkar, tæknivæðist, verður kaldara,
þeim mun meiri þörf er á afþreyingu sem
byggist á gæðum, góðum meiningum,
ríku myndmáli. Kvikmyndum sem segja
eitthvað og skilja eitthvað eftir sig, þetta á
jafnt við um innlenda sem og erlenda
kvikmyndagerð.
íslensk kvikmyndagerð átti erfitt upp-
dráttar þegar leið á áratuginn. Aðsókn og
áhugi minnkaði og kvikmyndagerðar-
menn urðu gjaldþrota. En samt skein sól.
Hrafn Gunnlaugsson flaug hátt (þrátt
fyrir litla hylli á íslenskum markaði), Þrá-
inn Bertelsson kom fram með sína bestu
mynd, Magnús, og treysti stöðu sína sem
gamanmyndakonungur íslands. Karl
Óskarsson og félagar hans í Frost-Film
sýndu fram á að íslenskar myndir geta
verið tæknilega fullkomnar (með Fox-
trott). Ágúst Guðmundsson kvikmynd-
aði Nonna og Manna fyrir þýska sjón-
varpið, og íslendingur einn, Sigurjón Sig-
hvatsson gerði það gott í Hollywood og
hann á eflaust eftir að gera það enn betra,
því Sigurjón er að framleiða nýjustu mynd
David Lynch (Blue Velvet, Eresarhead).
Ekki má gleyma UMBA-konum, Guð-
nýju Halldórsdóttur og félögum sem
gerðu það gott og sönnuðu tilveru ís-
lenskra kvenna í kvikmyndagerð.
En þá eru það kvikmyndir áratugarins.
Það má endalaust þræta fyrir hvort mynd
sé meistaraverk eða ekki. Þær kvikmyndir
sem ég hef valið hafa sýnt það og sannað að
þær standast tímans tönn, standa upp úr.
Sumar þurfa töluverða horfun áður en
áhorfandinn virkilega kann að meta þær,
en það er þess virði. Myndirnar eru í staf-
rófsröð:
Betty Blue er ofarlega á listanum, en Beinaix
leikstjóri myndarinnar var í Þjóðlífsviðtali í
desember sl.(12 tbl.1989)
Betty Blue (Frakkland) — Jean-Jeacques
Beineix
Blade Runner (Bandaríkin) — Ridley
Scott
Blue Velvet (Bandaríkin) — David
Lynch
Brazil (Bandaríkin) — Terry Gilliam
Dangerous Liasions (Bandaríkin) —
Stephen Freas
Dead Ringers (Kanada) — David Cron-
enberg
Diva (Frakkland) — Jean-Jacques Bein-
eix
E.T. (Bandaríkin) — Steven Spielberg
Fanny och Alexander (Svíþjóð) — Ing-
mar Bergman
Full Metal Jacket (Bandaríkin) — Stanl-
ey Kubrick
Hannah and Her Sisters (Bandaríkin) —
Woody Allen
Jean de Florette/Manon des Sources
(Frakkland) — Claude Berri
Mephisto (Ungverjaland) — Istvan Szabo
Platoon (Bandaríkin) — Oliver Stone
Raging Bull (Bandaríkin) — Martin Scor-
sese
Raiders of the Lost Ark (Bandaríkin) —
Steven Spielberg
Ran (Japan) — Akira Kurosawa
The Shining (Bandaríkin) — Stanley Ku-
brick
Wings of Desire (Þýskaland) — Wim
Wenders
Zappa (Danmörk) — Billie August
Ég mun ekki nefna myndir frá 1989 þar
sem þetta er nokkuð tæmandi úrtak fyrir
allan áratuginn. Annars voru nokkuð
sterkar myndir sýndar í íslenskum kvik-
myndahúsum á þessu ári og vil ég nefna
Dead Ringers (Cronenberg), Mississippi
Burning (Parker), Dangerous Liasions
(Frears), Rain Man (Levinson), Batman
(Robbins), The Moderns (Rudolph),
Pelle Eroberen (August), og nokkrar
fleiri. En hér set ég punkt við þessa upp-
talningu.
Það er nýr áratugur framundan. Hvað
leynist á bak við næsta götuhorn? Við von-
um það besta. Vatnið streymir áfram.
0
ÞJÓÐLÍF 39