Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 54
VIÐSKIPTI
Sumarleyfíshús í
Austur-Þýskalalandi.
Markaðir eru að
opnast — áður en
þeir eru opnaðir.
Brask í austri
Fasteignabraskarar í V-
Þýskalandi hafa þegar byrjaö
aö hamstra byggingar og lóö-
ir í Austur-Þýskalandi í trausti
þess að Þýskalöndin eigi inn-
an skamms tíma eftir að sam-
einast. Fasteignir í og í nám-
unda við Austur-Berlín eru
sérstaklega eftirsóttar. Þetta
er að gerast þrátt fyrir viðvar-
anir stjórnvalda beggja
vegna landamæranna, en
samkvæmt austur-þýskum
lögum er stranglega bannað
að selja hús og lóðir útlend-
ingum, en í lagalegum skiln-
ingi eru Þjóðverjar vestan
megin þannig skilgreindir.
Verð á slíkum fasteignum
fyrir austan er hlægilega lágt
og hákarlaráhúsnæðismark-
Hönnuðurinn og tískukóngur-
inn Calvin Klein 47 ára er tal-
inn hafa haft gífurleg áhrif á
tískuna á níunda áratugnum.
Sagt er að hægt sé jafnframt
að lesa persónulega sögu
hans út úr breytingum á aug-
lýsingum áratugarins — úr
þeim sé hægt að lesa sjálf-
sævisögu Kleins. Hann var í
byrjun áratugarins þekktur
fyrir villt partí og undirheima-
lifnað, en hefur nú sagt skilið
við wodka og valium og fund-
ið hamingjuna í fjölskyldulíf-
inu.
aðinum vestan megin óttast
verðlækkunaráhrif á hús-
næði vestan megin.
Áhyggjur manna eystra
ganga í þveröfuga átt. Þeir
sem eru að kaupa reyna að
fara fram hjá lögunum með
tvenns konar hætti; annars
vegar fá þeir leppa í Austur-
Þýskalandi til að gangast við
kaupunum. Oft eru það ætt-
ingjar viðkomandi eða
óskyldur aðili. Stjórnvöld hafa
bent á að lagalega sé ekkert
sem skyldi „leppana“ síðar
meir til að gangast við milli-
gönguhlutverki sínu. Hinn
kosturinn er sá, að fá fullorðið
fólk gegn þóknun til að vera
skrifað fyrir kaupunum, en
gera jafnframt erfðaskrá, þar
í byrjun áratugarins endu-
vakti hann gallabuxnatískuna
fyrir karla og konur (1980).
Um miðjan áratuginn notaði
hann meövitað tvíræðar aug-
lýsingar fyrir nærföt; karlinn
og konan í bylgju hins nýja
kynlífs voru greinilega „hel-
tekin“, jafnvel í vímu. Þannig
var lesið í Klein-áhrifin (1985).
Og loks endar þessi þróun
í„ást“ plús „hjónaband“ plús
binding samasem „eilífð“
(1989). Faðir heldur hlýlega
sem viðkomandi vestur-Þjóð-
verji er arfleiddur að eigninni
sem kaup eru fest á. En jafn-
vel þetta er talið mjög vara-
samt, þar sem lög og reglur
heimila mjög takmarkaðan
útflutning peninga úr landinu
og upphæðir sem fást fyrir
leigu eru ótrúlega lágar.
Þannig að skilyrði fyrir því að
þessi verslun gangi upp, er
annað hvort að Þýskalöndin
sameinist, eða að lögum
Þýska alþýðulýðveldisins
verði breytt í grundvallaratrið-
og innilega á barni sínu í
faðminum á nöktu brjósi sínu,
—stundum sést í höfuö móð-
urinnar. Þannig er Kleinilm-
vatnið „Eilífð" (,,Eternity“) sett
á markaðinn, en það er ilmur
ætlaður bæði körlum og kon-
um. International Herald
Tribune skrifaði af þessu til-
efni: „Calvin Klein er orðinn
fullorðinn“...
— Byggt á Spiegel — óg
um. Sérfræðingar telja að í
þessu efni gæti verið langt að
bíða breytinga...
— Byggt á Spiegel — óg
Sambands-
hneyksli í
Þýskalandi
Tíu forstjórar í samvinnufyrir-
tækjum (Co op) í V-Þýska-
landi hafa verið handteknir
síðustu vikur og einn verka-
lýðsleiðtogi í tengslum við
„stærsta viðskiptaglæp eftir-
stríðsáranna" þar í landi. Mál-
sókn er þegar hafin gegn 25
stjórnendum hringsins, en
fjármálahneyksli þetta var af-
hjúpað fyrir rúmu ári. Þeir eru
sakaðir um stórfellt skjala-
fals, og hafa átt þátt í að
blekkja banka og peninga-
stofnanir og afla þannig sem
nemur mörgum hundruðum
milljónum íslenskra króna á
fölskum forsendum. Sagt er
að 115 bankar hafi lánað
hringnum á fölskum forsend-
um. Hingað til hefur þetta mál
nær eingöngu snúið að
hringnum sjálfum í V-Þýska-
landi, en nú er talið að þetta
verði pólitískt mál, þar sem
verkalýðsfélög blandast í
það. Málsókn er hafin gegn
fjórum háttsettum verkalýðs-
foringjum sem tengjast þessu
máli og sósíaldemókratar ótt-
ast að pólitískir andstæðingar
þeirra muni reyna að klína
þessu hneyksli á þá í næstu
kosningum...
1980. 1985. 1989.
Calvin orðinn fullorðinn
54 ÞJÓÐLÍF