Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 56
VIÐSKIPTI
„Þetta eru viðskipti"
Akio Morita forstjóri Sony og Ishihara
fyrrverandi ráðherra í Japan skrifuðu
bók, ,Japan sem getur sagt nei“, sem
valdið hefur miklu fjaðrafoki á Vestur-
löndum, sérstaklega í Bandaríkjunum.
Bókin hefur einungis verið gefm út rit-
skoðuð á enskri tungu, en gagnrýnendur
saka Japanina um nýja „heimsvalda-
stefnu“ í viðskiptaheiminum.
Tæpast líður sá dagur að Japanir leggi
ekki undir sig fyrirtæki einhvers staðar í
heiminum. Fyrir stuttu keypti til dæmis
stórfyrirtækið Sony fyrirtækið Columbia
Pictures í Hollywood, eitt helsta tákn
bandarísks auðmagns í tímans rás. Um
svipað leyti keypti Mitsubishi Estate hluta
af Rockefellersamsteypunni á Manhattan
í New York.
Akio Morita er 68 ára gamall forstjóri
Sony-fyrirtækisins. Ólíkt flestum öðrum
japönskum forstjórum kemur Morita oft
fram í vestrænum fjölmiðlum og heldur
fyrirlestra um stefnu Japana í viðskiptum,
og fer fram á skilning á japönsk-
um viðskiptaháttum og við-
skiptaheimspeki. Morita, sem
er eðlisfræðingur að mennt,
stofnaði útvarpsverksmiðju árið
1946. Árið 1958 gaf hann fyrir-
tæki sínu vestræna nafnið Sony
til að vekja á því athygli um all-
an heim. Velta þess er nú um
900 milljarðar króna á ári. Fyrir
skömmu birti vestur-þýska
tímaritið Spiegel viðtal við Mor-
ita, sem Þjóðlíf grípur hér niður
í á stöku stað:
Spiegel: Eru Japanir hreinlega
að leggja undir sig hnöttinn?
Morita: Nei. Englendingar
hafa fjárfest miklu meira en
Japanir í Bandaríkjunum og
Hollendingar álíka mikið.
Sp: En hraðinn á fjárfestingum
ykkar á síðustu árum hefur
verið ólíkt meiri.
Morita: Já, vissulega, það kem-
ur af sjálfu sér. Jenið hefur
styrkst og við höfum mikla pen-
inga til ráðstöfunar. Það eru
viðskipti.
Sp: Er einhver sérstök stefna
sem liggur að baki þessum
miklu fjárfestingum?
Morita: Auðvitað hafa öll fyrir-
tæki eigin stefnu. Öll fyrirtæki eru sjálf-
stæð. Okkur hjá Sony er ekki stjórnað af
neinum. Við höfum okkar eigin pólrtík . .
Sp: . . . pólítík, milljarðar af dollurum í
útlend fyrirtæki. Það er óhugsandi að
þýskt fyrirtæki hefði efni á því að kaupa
Columbia Pictures fyrir 3,4 milljarða doll-
ara.
Morita: Þetta eru viðskipti. Ég skil ekki,
hvað þú ert að segja.
Sp: í Bandaríkjunum og Evrópu hafa
menn áhyggjur af því að verða keyptir upp
af Japönum.
Morita: Þetta eru viðskipti!
Sp: Japanir hafa undanfarin ár haft já-
kvæðan vöruskiptajöfnuð við útlönd, sem
nemur 80 milljörðum dollara. Það þýðir
að Japanir ráða yfir gífurlegum fjármun-
um til að kaupa allt, sem þeim dettur í
hug. Aldrei áður í mannkynssögunni hef-
ur eitt land í heimi haft yfir eins miklu
fjármagni að ráða. Þetta er mjög óvenjuleg
staðreynd. Skilur þú að aðrir hafi áhyggj-
ur af þessu?
Morita: Ég get ekki svarað þessari spurn-
ingu fyrir hönd annarra japanskra fyrir-
tækja. Ég get hins vegar skýrt það fyrir þér
hvers vegna Sony keypti Columbia Pictur-
es. Tölvubúnaður þarfnast hugbúnaðar.
Tölva án forrits er einskis virði. Þannig
eru líka okkar viðskipti. Við hjá Sony
höfðum unnið í 20 ár við að þróa nútíma-
legan tónmiðil. Síðan komumst við að því
að Philips var líka að vinna að sama kerfi.
Við ákváðum að vinna saman að þessu
verkefni og þróuðum saman geisladiskana
svokölluðu. Löngu áður vissum við hins
vegar að fyrir þessa tækni þyrftum við
hugbúnað. Þess vegna höfum við frá upp-
hafi átt hljómplötufyrirtækið CBSSony í
Japan . . .
Sp: . . . og fyrir tveimur árum keyptuð þið
einnig bandaríska móðurfyrirtækið, CBS.
Morita: Rétt. Japanska viðskiptakeðjan
CBS-Sony hefur hins vegar verið til í 20
ár. Þú ættir að hlusta nákvæm-
lega á það, sem ég segi. Ef þú
skilur ekki mína pólítík hvernig
ætlarðu þá að tjá þig um hana?
Sem sé, af því að við vissum að
við þurfum hugbúnað fyrir vél-
búnað og öfugt stofnuðum við
CBS-Sony hljómplötufyrirtækið
í Japan og gerðum það að stærsta
fyrirtæki landsins á því sviði.
Aðeins á þann hátt gátum við
fyllt diska okkar af alls kyns tón-
list og selt þá í öllum heiminum .
Sp: Hvar liggur leyndarmálið að
baki árangri Japana á viðskipta-
sviðinu?
Morita: Leyndarmálið liggur í
miklum ágóða af okkar viðskipt-
um. í ljósi sameiginlegs markað-
ar í Evrópu 1992 og ójafnra við-
skipta okkar við Bandaríkin
töldum við þessa stefnu æskileg-
asta til að komast hjá innflutn-
ingshöftum í þessum löndum.
Sp: Hvar liggur munurinn á Jap-
an og öðrum löndum heimsins?
Eruð þið duglegri? Eru Amer-
íkumenn og Evrópubúar latari?
Morita: Við erum þeirrar skoð-
unar að framleiðslan sé undir-
staða efnahagslífsins. Ef maður
Japanir hafa læst klónum um „hjarta“ bandaríska efnahagslífsins,
Rockefeller bygginguna á Manhattan í New York.
56 ÞJÓÐLÍF