Þjóðlíf - 01.01.1990, Blaðsíða 35
Helgi Sœmundsson hefur fylgst með þróun íslensks þjóðfélags
í áratugi. Hann kallar sjálfan sig jafnaðarmann að lífsskoðun.
í Pjóðlífsviðtali er Helgi ómyrkur í máli um þróun íslenskra
stjórnmála síðustu áratugina, sem hann segir einkennast af„
mistökum“ íslenskra vinstrimanna. Hann segir
stjórnmálaþróun hafa orðið hér með öðrum hœtti en annars
staðar á Norðurlöndum, einkanlega að því leyti að áhrif
vinstrimanna á mótun þjóðfélagsins hafi verið hér minni en
annars staðar. Þrátt fyrir ákveðna lífsskoðun sína sem
„jafnaðarmanns“ telur Helgi sig ekki hafa átt „samleið“ með
Alþýðuflokknum síðan 1974. Helgi Sœmundsson var lengi
ritstjóri Alþýðublaðsins og seinna starfsmaður Bókaútgáfu
Menningarsjóðs. Hann sat um langt árabil í úthlutunarnefnd
listamannalauna og hefur því einnig víðtœka innsýn í
menningarlíf þjóðarinnar síðustu áratugina. Eiginkona Helga
er Valný Bárðardóttir frá Hellissandi. 1 Þjóðlífsviðtali kemur
Helgi víða við á sviði stjórnmála og menningarmála en fyrst
berst talið að bernskudögum hans.
dæmis með gamalt embættismannakerfi
og angar þess ná út um allt þjóðfélagið.
Stofnanir, sem við metum mikils, og þurf-
um að láta starfa á sterkum grundvelli,
eins og Háskóli íslands, fá ekki að ráða
mannaráðningum sínum. Þetta mundi
ekki gerast á Norðurlöndum eða í Þýska-
landi.
Telur þú að þetta sé af því að íslenskir
vinstrimenn hafi haft óveruleg áhrif á
þjóðfélagið?
— Já, klofningur vinstrimanna á ís-
landi hefur haft gífurleg áhrif til hins
verra. Áhrif þess ná miklu lengra en út í
stjórnmál. Sjálfur lít ég svo á að megin-
sigur hægrimanna á íslandi á þessu tíma-
bili eftir fyrri heimsstyrjöld sé að þeir sam-
einuðust í Sjálfstæðisflokknum. Þegar lit-
ið er á Sjálfstæðisflokkinn sem
aðalmótvægið við vinstristefnu í landinu
þá gleymist oft að sá flokkur hefur breyst
mjög mikið. Vinstriflokkarnir hafa að
mínum dómi hjakkað mikið í sama farinu,
hver fyrir sig, og þeir hafa aldrei náð sam-
einingu til að verða sterkt þjóðfélagsafl
eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur orðið.
— Ég held að tvennt ráði úrslitum um
það að vinstrimönnum á íslandi hefur
mistekist. Þau mistök, sem gerð voru
þegar Kommúnistaflokkurinn var stofn-
aður á sínum tíma, voru þau fyrstu. Þá
sögu þekkja allir og hana þarf ekki að
rekja. Svo gerist það einnig hér hjá okkur
að deilurnar um mennina verða stundum
til þess að málin fá ekki að njóta sín,
stundum eru málefnin hreinlega látin
gjalda mannanna. Það sem kannski hefur
skort á mest hjá okkur er það að vinstri-
hreyfingin hafi átt einn sterkan foringja.
Auðvitað er það skrítið fyrir þá sem kalla
sig vinstrimenn að verða að trúa á ein-
hvern einn foringja og það geri ég ekki
ÞJÓÐLÍF 35