Þjóðlíf - 01.01.1990, Síða 31

Þjóðlíf - 01.01.1990, Síða 31
Dynamo Berlín eins og liðið var skipað 1989—1990. Andreas Thom skærasta stjarnan er á bak og burt, kominn til liðsins sem skapar skattaafsláttinn fyrirrisafyrirtækiðBayem. Varáíslandi fyrirþremurmánuðum, en þá sá enginn fyrirhvað verða vildi... Evrópumótunum á sama tíma og liðin frá Leipzig, Dresden og Magdeburg unnu marga góða sigra. Vestur-þjóðverjum var hins vegar málið skylt og í Kicker, blaði knattspyrnufíkla þar í landi, fóru að birtast greinar um dómgæslu í fyrstu deildinni austur-þýsku og var sterklega gefið í skyn að víða væri pottur brotinn í þeim efnum. Nefndi blað- ið sem dæmi, að austur-þýskir dómarar væru ótrúlega gjarnir á að veifa gulum og rauðum spjöldum framan í leikmenn þeirra liða sem mæta áttu Dynamo Berlin í næsta leik. Þannig voru ávallt einhverjir leikmanna Leipzig og Dresden í leikbanni þegar liðin léku við Dynamo Berlin í hefð- bundnum átakaleikjum um efstu sætin. Þá var bent á að Dynamo Berlin ætti ótrú- lega greiða leið í gegnum rangstöðugildrur helstu keppinauta. Virtust línuverðir leggja annan skilning í rangstöðureglur þegar hinir knáu framherjar Berlínarbúa áttu í hlut, ellegar þjást af dularfullri sjóndepru. Eins og áður sagði fór umræðan um dómgæslu einungis fram hjá stóra bróður í vestri. í austur-þýsku knattspyrnunni urðu menn að reiða sig á heiðarleika dóm- ara, en þeir eru gjarnan kallaðir „der Unp- arteiische“, sem útleggja má á íslensku sem „hinn hlutlausi", og jafnframt sem „hinn óflokksbundni". Asíðasta keppnistímabili, lauk ein- hverra hluta vegna sigurgöngu Dynamo Berlin í deildarkeppninni. Höf- ÞJÓÐLÍF 31

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.