Þjóðlíf - 01.01.1990, Qupperneq 58
VIÐSKIPTI
Breskt sjónvarp hefur getið sér góðan
orðstír víða um heim, sóst er eftir sjón-
varpsefni þaðan og breskir áhorfendur
virðast fremur ánægðir með sinn hlut.
Skipulag sjónvarpsmála hefur verið
óbreytt í aðalatriðum í meira en þrjá ára-
tugi, en nú hillir undir róttækar breyting-
ar. Á árinu 1989 hófst sjónvarp um gervi-
hnetti og kveður mest að Sky Television
í eigu Ruberts Murdoch fjölmiðlajöfurs.
Breskur almenningur hefur þó ekki sýnt
gervihnattasjónvarpi meiri áhuga en svo
að aðstandendur þess safna fremur
skuldum en áhorfendum um þessar
mundir. Meira umróts er þó að vænta úr
annarri átt, því að í desember lagði ríkis-
stjórnin fyrir þingið frumvarp um skipun
sjónvarpsmála sem gerir ráð fyrir kerfis-
breytingu.
Skipulag sjónvarpsmála í Bretlandi er
sérkennileg blanda viðskiptareksturs
og opinberrar stýringar, sem Bretum ein-
um er lagið að hugsa upp. Yfirstjórn sjón-
varpsmála hefur verið í höndum Indep-
endent Broadcasting Authority (IBA),
sem fylgist með því að sjónvarpsstöðvar
fari að ýtarlegum lögum og reglum um
þær. IBA á ekki aðeins að gæta þess að
sjónvarpsstöðvarnar veiti lágmarks al-
mannaþjónustu og haldi ákveðnu jafn-
vægi og fjölbreytni í efnisvali, heldur er
það á þess valdi að túlka ákvæði laganna
um hlutleysi og velsæmi. Vissar skráðar
og óskráðar reglur eru til dæmis um kyn-
lífsefni sem IBA hefur tekið strangt á og
látið þannig ásannast orðtak sem oft er
haft um sjafnarmál á opinberum vettvangi
í Bretlandi: „No sex, please, we are Brit-
ish!“
GÆÐAKRÖFUR Á
{ stjórnarfrumvarpinu er gert ráð fyrir
nýju apparati, Independent Television
Commission (ITC), sem leysa á IBA af
hólmi. Þessi nýja yfirstjórn á að hafa um-
sjón með breytingum í sjónvarpsmálum,
sem í stystu máli fela í sér „aukið valfrelsi
fyrir áhorfendur og áheyrendur“, eins og
það er orðað í frumvarpinu.
Fjórar sjónvarpsrásir eru nú starfræktar
í Bretlandi, tvær eru í eigu BBC, sem er
sjálfseignarstofnun fjármögnuð með
áskriftargjöldum, og aðrar tvær eru aug-
lýsingastöðvar, ITV-stöðin og Channel 4.
Það eru í raun og veru 15 svæðasjónvarps-
stöðvar sem eiga ITV og er þeim skipt eftir
landsvæðum. Þær sjónvarpa eigin efni að
mestu og borga sérstakt leyfisgjald til yfir-
valda fyrir að fá að reka sjónvarp. Eftir
GUÐMUNDURJÓNSSON
frumvarpinu á ITV að hætta rekstri frá
ársbyrjun 1993, en við tekur Stöð 3
(Channel 3), sem einnig verður samsett úr
svæðisstöðvum. Það kemur í hlut ITC að
úthluta leyfum og eiga hæstbjóðendur að
hreppa leyfin að því tilskildu að þeir hafi
sýnt fram á að þeir standist ákveðnar
gæðakröfur.
Þá á að opna eina rás til viðbótar, Rás 5,
sem gert er ráð fyrir að nái til 70% lands-
manna. Að henni verður staðið á svipaðan
hátt og Stöð 3, hún verður fengin hæst-
bjóðendum, sem gert verður að uppfylla
svipuð skilyrði um gæði, en ekki er sagt
hvenær hún tekur til starfa.
Fleiri rásir, aukið val?
Skipulag sjónvarpsmála í
gagngerri endurskoðun í
Bretlandi.
Gervihnattasjónvarp
safnar frekar
skuldum en
áhorfendum um
þessar mundir.
58 ÞJÓÐLÍF