Þjóðlíf - 01.01.1990, Page 65

Þjóðlíf - 01.01.1990, Page 65
HEILBRIGÐISMAL UMSJÓN HÁLFDAN ÓMAR HÁLFDANARSON OG ÞURÍÐUR ÞORBJARNARDÓTTIR Líf og heilsa Heilræði fyrir skokkara Haldið ykkur inni fremur en að hlaupa í menguðu lofti Efni þessarar greinar hvetur fólk ef til vill til að halla sér makindalega aftur í hæginda- stól fremur en að skokka sér til heilsubótar. í ljós hefur komið að skokk- arar í stórborgum safna í lung- un mun meira af óhreinindum úr andrúmslofti en þeir sem heima sitja. Læknar við há- skólann í Los Angeles í Banda- ríkjunum hafa sýnt fram á það með rannsóknum sínum að þeir sem skokka reglulega þar sem verulegrar mengunar gæt- ir eiga fremur á hættu að fá ýmsa lungnakvilla. Að hluta má skýra það með því að öndunartíðni eykst verulega á hlaupum og því fer meira andrúmsloft um lungun á hverri mínútu en ef um kyrr- setu er að ræða. Við venjuleg kyrrsetustörf er öndunarloft að meðaltali um sex lítrar á mínútu en þessi tala allt að fimm- eða sexfaldast við áreynslu hlaupsins. Miklu máli skiptir einnig að við áreynslu og aukna öndun draga menn andann fremur um munn en nef. í nefgöngum eru fínar loftsíur sem hreinsa að miklu leyti ýmsar fíngerðar agnir úr innöndunarloftinu. Þessi hreinsibúnaður kemur því ekki að gagni þegar munn- öndun er notuð og óhreinindi úr lofti safnast fyrir í lungum. Rykagnir hafna í fíngerðum lungnablöðrunum og þangað safnast hvítkorn, veggir blaðr- anna þykkna og um leið minnkar hæfni þeirra til loft- skipta. Það er því augljóst að skokk- arar sem stunda hlaup í meng- uðu umhverfi verða að skoða þann ávinning sem er að hlaupunum og meta hann í Á hlaupum fer fímmfalt meira magn andrúmslofts um lungun á hverri mínútu en í hvíld. Auk þess andar fólk þá fremur um munn en nef og loftið fer því óhreinsað ofan í lungun og svifrykið sest að þar og getur leitt til lungnakvilla. ljósi þess skaða sem lungun geta orðið fyrir af völdum svifryksins. Eðlileg viðbrögð hlaupara við þessari vitneskju er að leita uppi hreint umhverfi og iðka sína heilsubót þar, t.d. utan stórborga. Þeir sem ekki eiga þess kost eða kjósa allra helst að skokka innanbæjar ættu að gæta þess að velja þann tíma dags þegar mengun er í lág- marki og jafnframt að forðast að hlaupa við mestu umferðar- götur. Mengun vegna umferð- arinnar er í hámarki síðdegis á asatíma en hvað minnst árla morguns og það dæmist því heppilegasti tími til skokks í stórborgum. Sem betur fer er loftmengun víðast hvar svo lít- il á íslandi að þetta á vart við hér en þó er nágrenni mestu umferðargatna í Reykjavík ör- ugglega óæskilegur vettvangur til hlaupa þegar umferð þar er í hámarki. Hollt og gott í moga ferðalangsins Þeir sem ferðast um ókunnar grundir þekkja vafalaust af eigin reynslu þá raun sem það er þegar meltingarfærin ganga af göflunum og lúta engum skynsamlegum lög- málum. Nú þykjast menn sjá fram á bjartari tíma í þessum efnum. Með nýrri tækni hefur reynst unnt að koma nytsam- legum mjólkursýrugerlum lif- andi í gegnum hreinsunareld magasýranna og til þarmanna þar sem þeir geta gert líkaman- um gagn með því að vinna gegn steinsmugu og melt- ingartruflunum. Fram til þessa hafa meðul við slíkum ferðakvillum haft þann agnúa að þau leysast upp þegar í maganum. Hið nýja lyf er hins vegar þeim eiginleikum búið að það helst óvirkt þar til það kemur inn í smáþarma en losnar þá fyrst úr læðingi. Hinn virki þáttur lyfsins eru magasýrugerlarnir sem áður voru nefndir og þeim er komið fyrir í sérstökum hylkjum sem eru húðuð með efni sem stenst tærandi áhrif magasýranna. í hylkjunum er ennfremur komið fyrir veganesti fyrir gerlana góðu. Það auðveldar þeim lífsbaráttuna þegar út í heiminn kemur og stuðlar að því að þeir nái þeiri fótfestu í þörmunum sem þarf til að þeir fái yfirbugað þá óæskilegu kó- lígerla sem þar eru til óþurftar. Mjólkursýrugerlarnir gefa frá sér sýrur sem sýra umhverfið og valda því að skaðlegir gerlar eiga erfitt uppdráttar. Þessi nytsamlegu hylki má taka inn bæði í forvarnarskyni en einnig til að koma aftur á reglu í meltingarfærunum. Ferðalangur með stein- smugu getur vænst þess að það líði einn eða tveir dagar þar til gerlarnir hafa unnið baráttuna við illu gerlaöflin. Sérfræð- ingar mæla einnig með því að taka inn þessi hylki að loknum fúkalyfjakúr því að þau lyf Gerlarnir eru búnir af stað með nesti og nýja skó og komast um torfærur magans heilir á húfí. eyða iðulega allri þarmaflór- unni, einnig hinum jákvæðu gerlum og hylkin flýta fyrir æskilegri endurreisn jákvæðra gerlastofna. ÞJÓÐLÍF 65

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.