Þjóðlíf - 01.07.1991, Qupperneq 51

Þjóðlíf - 01.07.1991, Qupperneq 51
í \r . /11 \ M h í)'* ^ ^ ’ r 1 fl®L J Fyrsti hópurinn sem hóf nám ísérkennslu með fjarkennsluformi ásamt aðstandendum námsins, saman kominn á Hallormsstað vorið 1987. Fyrsta röð st.frá vinstri-.Guðmundur Magnússon fræðslustjóri, Anna Frímannsdóttir, Sigfús Grétarsson skólastjóri Hallormsstaðaskóla, Steinþór Magnússon formaður fræðsluráðs Austurlands, Þóra Kristinsdóttir dósent við K.H.Í. og í stjórnarnefnd námsins, Magnús Magnússon sérk- ennslufulltrúi ríkisins, Jónas Pálsson rektor K.H.Í, Jón Loftsson, Berit Johnsen umsjónarmaður námsins og Ólafur Proppé dósent við K.H.Íog í stjórnarnefnd námsins. Önnur röð st.frá vinstri: Gyða Stefánsdóttir nemandi, Gunnar Árnason lektor við K.H.Í., Hólmfríður Helgadóttir og Birna Björnsdóttir fulltrúar Sambands austfirskra kvenna sem færði kennslutæki að gjöf við upphaf námsins. Þriðja röð sitjandi frá vinstri: Helgi Jósepsson, Sigrún Brynjólfsdóttir, Steinunn Aðalsteinsdóttir, Marta Sigmarsdóttir, Halldóra Baldursdóttir og Þórey Ketilsdóttir nemendur. Fjórðaröð sitjandi frá vinstri: Kristín Gísladóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Hildur Magnúsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, Jónína Guðmundsdóttir og Anna Guðmundsdóttir nemendur. hvað varðar t.d. blind börn og heyrnar- skert því á þeim vettvangi er nóg af sér- menntuðu fólki. Síðan er gert ráð fyrir að fræðilega fjarkennslunáminu verði fylgt eftir í starfl kennarans, t.d. að hann taki upp sína eigin kennslu á myndband og skoði myndbönd með kennslu annarra og að nemendurnir hittist í smærri hópum og öðlist þannig stuðning og lærdóm af hverj- um öðrum.“ Nemendur fengu æfingu í að flytja eigin er■ indi. „Það má gera ráð fyrir því að um 20% allra skólaskyldra barna, þ.e. fimmta hvert barn þurfi sérkennslu eða séraðstoð af einhverju tagi en eins og áður sagði er afar mikill munur á þessum börnum. Aðeins um 1% þeirra eru verulega fötluð, flest eru í sérskólum en það er um þessi börn sem umræðan og styrinn stendur, þ.e. hvort þau eigi að vera í sérskólum eða úti í almennu skólakerfi. Við vinnum eftir þeirri hugmyndafræði að æskilegt sé að blöndun eigi sér stað eftir því sem mögu- legt er, þ.e. í allmiklu meira mæli en nú tíðkast, m.a.s. á framhaldsskólastigi. Það er einnig opinber stefna Menntamálaráðu- neytisins, kynnt í Framkvæmdaáætlun þess í skólamálum til árið 2000. En það eru ekki aldeilis allir skólar né kennarar sammála þessu. Auðvitað eru alltaf tilfelli þar sem ekki er möguleiki á blöndun en nemendum okkar er kennt að eiga við hóp barna með ólíkar þarfir, jafnvel vangefm börn í bland við venjuleg börn í síðari hluta námsins. Til þess að svo megi verða þurfa að vera færri nemendur á hvern kennara og auk þess þarf að leggja mikið upp úr samvinnu kennara, teymisvinnu meðal kennara margra hópa. Hér á landi er algengt að kennarinn beri einn ábyrgð á sínum bekk og hafi litla sem enga sam- vinnu við aðra kennara skólans en þessu þarf að breyta, bæði til að veita kennurum stuðning og einnig aðhald. I Svíþjóð er slík samvinna orðin lögbundin en einstaka skólar hér hafa tekið hana upp af eigin frumkvæði, t.d. Vesturbæjarskóli í Reykjavík og Grunnskólinn á Egilsstöð- um.“ „Þau börn sem helst eiga heima út af fyrir sig eru þau sem eiga við mikil félags- leg og tilfmningaleg vandamál að stríða. Vangefin börn geta hins vegar haft afar gott af að vera úti í almennu skólakerfi því þau læra svo mikið í venjulegri hegðun á því. Og það er kannski það mikilvægasta sem menn læra í skóla.“ „En hvað varðar árangurinn af fjark- ennslunáminu í sérkennslu þá má segja að almennt hafi fólk verið ánægt. Það sést m.a. á því að 25 af þeim 33 sem hófu námið á Norðurlandi halda áfram í síðari hlutanum.“ 0 ÞJÓÐLÍF 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.