Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 28
28 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Besta uppgjör
þjóðarinnar við hrunið
PistiLL
Hér kemur pistill eftir Jón G. Hauksson sem birtist á vefsvæðinu heimur.is eftir sigur
Íslands í Icesave fyrir EFTA-dómstólnum á dögunum.
S
igur Íslands í Icesave
fyrir EFTAdómstóln
um er og verður besta
uppgjör þjóðarinnar
við hrunið. Þetta mál
hefur legið sem mara á þjóðinni
og miklu fargi er af henni létt;
hvað sem hver hefur sagt og
kosið í öllu ferli málsins. Sigurinn
er upphaf nýrra tíma og er t.d.
miklu betra uppgjör almennings
við hrunið en Rannsóknarskýrsla
Alþingis – svo mikið tilfinningamál
hefur Icesave verið.
Það var gæfa okkar að fá Ice
save fyrir alþjóðlegan dómstól
sem skæri úr um það hvort krafa
Breta og Hollendinga á hendur
okkur Íslendingum ætti sér stoð í
lögum. Það reyndist ekki vera og
niðurstaða EFTAdómstólsins er
afgerandi og endanleg.
Það er í sigrinum sem jarðvegur
sáttarinnar liggur – með samningi
hefði málið alltaf verið óuppgert
og undirliggjandi í öllum umræð
um um áratugi.
Icesave er að baki sem dóms
mál þótt það sé til of mikils
ætlast að það verði ekki að
kosn ingamáli næstu mánuðina.
Stjórnvöld skulda skýringar og
ýmsir fræðimenn við háskólann
skulda líka skýringar á afstöðu
sinni, útreikningum og stóryrtum
líkingum í umræðum um málið.
Sigur Íslands fyrir EFTAdóm
stólnum mun örva efnahag
slífið, bæta brotna sjálfsmynd
og sjálfsvirðingu Íslendinga
gagnvart umheiminum eftir að
nágrannaþjóðir komu því inn hjá
okkur – með dyggri aðstoð okkar
sjálfra – að við værum sakamenn
sem borguðu ekki skuldir sínar.
Sjálfstraustið brast eftir að
Bretar settu hryðjuverkalög á okk
ur og vinaþjóðir hótuðu að skrúfa
fyrir súrefnið til Íslands nema
við greiddum „Icesaveskuld
ina“ eins og þær orðuðu kröfur
sínar. Þess utan þrýstu þær á
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að ná
sínu fram.
Í kjölfar sigursins er nauðsyn
legt að bera klæði á vopnin
eftir illdeilur innanlands og horfa
fram á við sem sameinuð þjóð;
nægur er vandinn að glíma við í
efnahagsmálunum.
Dómur hefur verið upp kveðinn
og það er ekki endalaust hægt
að standa í málflutningi eftir á –
þótt sjálfsagt verði ýmsum nudd
að upp úr þessu áfram enda
mikil átök og stór orð að baki.
EFTAdómurinn er besta upp
gjörið við hrunið vegna þess að
Icesave er táknmynd hrunsins á
Íslandi. Sigurinn er þess vegna
móralskur, andlegur, og blæs okk
ur þrek, eldmóð og von í brjóst um
framtíðina.
Bretar, Hollendingar og aðrar
Evrópuþjóðir hafa endurtekið í
síbylju að við stæðum ekki við
fjárhagslegar og lagalegar skuld
bindingar okkar vegna Icesave.
Þeir hafa stöðugt haldið því fram
að þetta væri skuld sem okkur
bæri að greiða samkvæmt lögum
og auðvitað neyddu þeir okkur
örvinglaða að samningaborðinu
eftir hrunið 2008 og Alþingi
samþykkti þingsályktunartillögu
um að semja. Þegar sá samn
ingur lá fyrir var hann ógn við
„Það er í sigrinum
sem jarðvegur
sáttarinnar liggur
– með samningi
hefði málið alltaf
verið óuppgert og
undirliggjandi í
öllum umræðum
um áratugi.“
Sigur Íslands í Icesave: