Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 86
86 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Keflavíkurflugvöllur að
nálgast þolmörk
Keflavíkurflugvöllur er mikilvægur fyrir
starfsemi Icelandair og það fyrsta sem
erlendir ferðamenn sjá þegar þeir koma
hingað. Þó að Icelandair sé fyrst og fremst
kaupandi að þjónustu þar hefur félagið
stærðar sinnar vegna mikið að segja. Birkir
segir að þeir hjá Icelandair sjái ekki mikla
breytingu á sinni aðkomu en engu að síður
þurfi að gera breytingar á flugvellinum
með aukinni tíðni og vexti flugfélaga.
„Við höfum varað við því að flugvöll ur
inn gæti verið að springa vegna álags en
þó hefur verið brugðist vel við þeim vexti
ferðamanna sem hefur orðið á síðustu
árum. Þar eru uppi áform um að stækka
aðstöðu ferðamanna í takt við það. Einnig
eru framkvæmdir áætlaðar í vor sem bæta
úr þótt ekki sé víst að þær dugi til sé horft
til næstu ára. Við höfum alltaf áhyggjur af
getu mannvirkja vallarins til að taka við
auknum fjölda ferðamanna, m.a. vegna
plássleysis inni í flugstöðinni.“
Flestir eru sammála um að fyrir íslenska
ferðaþjónustu séu tækifæri bæði í Asíu,
Kína og Rússlandi. Á heims vísu er því
spáð að þar verði mesti vöxtur í fram tíð
inni í ferðaþjónustu. Icelandair hyggst
hefja flug til Pétursborgar í vor en upp
bygging leiðarkerfis félagsins býður tæpast
upp á tengingu við Asíu eða Kína. Það
kemur ekki í veg fyrir að Icelandair skoði
þá markaði en félagið hefur í gegnum
samstarf við önnur flugfélög tengingar
þangað.
Að sögn Birkis hefur félagið reynt að stækka sitt leiðarkerfi með samstarfi við önnur flugfélög eins
og JetBlue, Alaska Airlines, Finnair, SAS
og fleiri. Má sem dæmi taka að flestir þeir
Kínverjar sem hingað koma – og þeim
fjölgar hratt – koma í gegnum Skandinavíu.
Þar stoppa þeir nokkra daga áður en
þeir halda til Íslands. Samstarfið við
skandinavísku flugfélögin hefur gengið vel.
Beint flug til Asíu er þó tæpast á dagskrá
þótt ekkert sé ákveðið í þeim efnum. Í það
minnsta ekki í bráð, þótt tækifærin virðist
fyrir hendi, enda má segja að félagið hafi
ærinn starfa á þeim markaðssvæðum þar
sem það er sterkast og lætur að sér kveða.
þarf stöðugt að vinna að
vöruþróun
Ferðaþjónusta byggist á kaupmætti fólks
og segir Birkir að fyrirtæki í ferðaþjónustu
hafi orðið vör við þá þróun að eyðsla
ferðamanna minnki um leið og dvalartími
þeirra lengist. Þetta sé svipuð þróun og
annars staðar. „Svo virðist sem núna velti
ferðamaðurinn verðinu meira fyrir sér,
væntanlega vegna efnahagsástandsins. Á
sama hátt virðist sem ferðamenn fari í fleiri
ferðir og styttri. Við gætum séð það hér á
Íslandi að fólk eyði minna en áður þegar
það er komið hingað. Fleiri ferðamenn yfir
vetrartímann vega þetta upp að einhverju
leyti og vonandi batnar efnahagsástandið í
heiminum sem fyrst.“
Það er ekki hægt að ræða þróun
ferðaþjónustu án þess að ræða hlut stjórn
valda. Eins og Birkir kom inn á hér að
framan skortir nokkuð á stefnumótun og
að gerðaáætlun til lengri tíma. „Það hefur
vantað lang tíma stefnumótun þótt Samtök
ferðaþjónustunnar hafi vissulega reynt að
vinna í því og hagsmunaaðilar hafi lagt
meiri áherslu á veturinn. Manni finnst
hins vegar hollt fyrir ferðaþjónustuna
að hafa tíu ára sýn. Það getur hjálpað til
að meta þarfir ferðamanna og um leið
þá þjónustu sem þarf að byggja upp.
Það þarf stöðugt að vinna að vöruþróun
í þessari grein. Þessar skattahækkanir
eru ekki góðar fyrir ferðaþjónustuna og
geta minnkað eftirspurn eins og oft hefur
verið varað við. Þetta hefur líklega mest
áhrif yfir veturinn þegar við þurfum mest
á nýjum ferðamönnum að halda. Mér
finnst að yfirvöld verði að vinna meira
með atvinnugreininni til að halda áfram
uppbyggingu hennar. Vissulega hafa menn
snúið bökum saman þegar svo ber undir en
það þarf líka að vera samfella í allri vinn
unni – svo mikilvæg er ferðaþjónustan fyrir
íslenskan efnahag.“
„Svo virðist sem núna
velti ferðamaðurinn
verðinu meira fyrir
sér, væntanlega vegna
efnahagsástandsins. Á
sama hátt virðist sem
ferðamenn fari í fleiri
ferðir og styttri.“
sjóðHeitt ÍsLand
Ráðstefnu- og fundarsalirnir eru allir búnir besta fáanlega tækjakosti og henta
jafnt stórum sem smáum hópum til fundarhalda. Ferskar veitingar og glæsileg
hönnun húsgagna gera góðan fund enn betri.
Bókaðu ferskan fund í síma 525 9932 – við tökum vel á móti þér og hópnum þínum.
www.hotelsaga.is
Standard
Fundarsalur fyrir tíu eða fleiri. Morgun- og síðdegis-
kaffi að vali kokksins. Hádegisverðarhlaðborð í Skrúð.
Skjávarpi. Þráðlaust internet.
Business Class
Fundarsalur fyrir sjö eða fleiri. Allt í Standard
og að auki: Ferskir ávextir, gos og tölva í fundarsal.
Express-pakki
Fundarsalur fyrir tíu eða fleiri. Fundarpakki
sem hannaður er fyrir stutta fundi án hádegis-
eða kvöldverðar. Morgun- og/eða síðdegiskaffi.
Skjávarpi. Þráðlaust internet.
Við bjóðum þrjá mismunandi pakka sem til
samans mæta þörfum allra. Hvort sem þú velur
Standard, Business Class eða Express-pakka
má alltaf bæta við léttum veitingum eftir fund:
FERSKIR FUNDIR
Radisson Blu Hótel Saga býður upp á frábæra fundaraðstöðu
og góðar veitingar í hrífandi umhverfi
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
„Þegar við hefjum flug inn á fjölmenna staði
eins og Denver sækjumst við eftir stórauknu
flæði af farþegum yfir hafið til Evrópu – með
viðkomu á Íslandi.“