Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 63
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 63
að markaðurinn mun lagast einn daginn.
Ég ætla bara að vona að hann fari ekki of
hratt upp. Það er ekkert betra að hlutirnir
gerist of hratt, að markaðurinn fari úr átta
þúsund bílum í 16 þúsund í einni svipan.
Það er engum hollt. Mér sýnist skynsam
legra að þetta fari hægt og rólega upp
þannig að bílaumboðin hafi aðstöðu til
aðlaga sig því. Að sumu leyti finnst mér
ástandið svipað og það var 1992 og 1993. Á
þeim tíma byrjaði markaðurinn að stækka
um leið og fjármögnunarfyrirtækin fóru
að koma inn með rekstrarleigu. Menn eiga
eftir að finna nýjar lausnir á ýmsu því sem
nú er við að glíma og ég veit að þeir hafa
verið að vinna í því.“
Þróun bíla spEnnandi
Erna sagði að vissulega væru margir brenn d
ir af bílalánum og því þyrfti að finna nýjar út
færslur til að endurvekja traust fólks á þeirri
fjármögnun. „Það er ekkert skrítið að fólk
hafi vara á sér eftir rússíbanareið undan
farinna ára en ég hef trú á að þetta jafni sig
smám saman og fólk meti kostina af skyn
semi. Bílakaup eru nokkur fjárfest ing og
ekki óeðlilegt að fólk leiti leiða við að brúa
hana. Menn mega þó ekki halda að það sé
allt stopp. Það er margt áhugavert að gerast
núna og þá ekki síst í hönnun bíla. Það er
til dæmis spennandi að sjá hvernig raf
magnið kemur til með að virka eða hvort
endurbætur á núver andi hreyfl um duga.
Það eru margvísleg slík álitamál sem við er
að glíma í grein inni – hvert stefn ir þróun
bíla? Við getum tekið þróun metaneldsney
tis sem dæmi. Metanbílar hafa verið lengi
í þróun og eru núna fyrst að ná fótfestu en
engu að síður er allsend is óvíst hvort þeir
verða mikið notaðir í framtíðinni. Þetta
er það sem mér finnst skemmtilegt við
greinina; þessi fjölbreyti leiki, þróun bílanna
og hvað við fáum að sjá nýtt enda má segja
að það sé stöðugt verið að koma okkur á
óvart. Það er um leið ákveðin áskorun fyrir
okkur sem rekum bílaumboð að meðtaka
þessa þróun og koma henni út til viðskipta
vina okkar.“
allt til sölu
Eins og áður var getið þá hafa tvö af merkj
um BL, Hyundai og Opel, fengið nýja
staðsetningu síðustu mánuði. Freistandi
er að spyrja Ernu hvort framhald verði
á því, hvort fleiri merki verði aðskilin
með þeim hætti? „Já, en það mun gerast
hægt og rólega. Við erum ekki búin að
ákveða næstu skref ennþá en það mun
gerast þegar markaðurinn stækkar, á því
er enginn vafi.“ Erna segist hins vegar
ekki hafa velt fyrir sér sölu á einstökum
merkj um en sem gefur að skilja hafa verið
vanga veltur um slíkt í viðskiptalífinu. Erna
gerir lítið úr slíkum vangaveltum. „Það eru
bara ekkert mjög margir sem eru að hugsa
sér til hreyfings í þessu á meðan ástandið
á markaðinum er eins og það er. Stundum
þegar við erum spurð að þessu segjum
við: Það er allt til sölu ef rétt tilboð berast.
Við lítum bara á þetta sem „bissness“ og
það gengur ekki upp að binda of miklar
tilfinningar í reksturinn. Ég var fljót að
læra það með bíla en til að byrja með hætti
mér til að tengjast bílum of mikið. Nú veit
ég að það kemur bara einhver annar. Við
sem erum í viðskiptum verðum að tileinka
okkur ákveðinn sveigjanleika sem gengur
út á að breyta og bæta. Annað gengur ekki,
við erum í þannig umhverfi.“
En þá liggur beint við að spyrja Ernu
á hvaða bíl hún ekur sjálf. Er ekki erfitt
að gera upp á milli merkja? „Nei það má
ekki gera upp á milli merkjanna og ég hef
því alltaf verið að skipta um bíla til að
kynnast sem flestum. Ég er sjálf á X6 frá
BMW núna, ég reyni að skipta á sex til tólf
mánaða fresti. Mér finnst alltaf gaman að
prófa nýja bíla og finna mun milli merkja.
Það eru mismunandi væntingar eftir því
hvort það er fólksbíll eða jeppi sem er verið
að aka hverju sinni, ég vil samt finna kraft
og snerpu. Það þarf eitthvað að gerast
þegar maður stígur niður.“
BL er búið að vera í breytingaferli undan
farin misseri sem að hluta til lauk með
kaupum Ernu á fyrirtækinu. Hún segir að
horfa verði til þess að uppistaðan í félaginu
núna séu tvö félög sem hafi verið skorin
nánast niður í eitt. Fækkunin var það mikil.
„Nú er frekar að við horfum til uppbygg
ingar ef litið er til lengri tíma. Við bættum
við okkur fólki á síðasta ári, fórum úr 115
í 150 starfsmenn, þannig að það hefur
aðeins verið að breytast. Við höfum hægt
og rólega unnið að því að fjölga. Opnun
Hyundaiumboðsins fól í sér að fimmtán
starfsmenn færðu sig þangað, sumir reynd
ar héðan úr Sævarhöfðanum.
En því er ekki að leyna að mark að urinn hefur tekið hægar við sér en við héldum. Það hægir á þessu frek ar en
hitt og við skiptavinirnir eru dálítið að bíða
eftir því hvernig fer. Það eru kosningar eftir
nokkrar vikur og það skiptir vitaskuld máli
hvers konar ríkisstjórn verður mynd uð.
Fólk finn ur oft á sér hvaða skilaboð koma
úr stjórn arráðinu, væntingar fólks skipta
miklu máli í þessum rekstri eins og svo
mörgum öðrum.“
rEkið sEm rEgnhlíF
Fyrirtækið í dag er rekið undir einni regn hlíf
sem heitir BL ehf. Síðan er hvert og eitt merki
rekið þar undir. Að sögn Ernu hefur verið
skoðað hvort borgi sig að vera með þetta
í sérfélögum þar undir. „Endurskoðendur
eru mjög ánægðir með slíkt fyrirkomu
lag,“ segir Erna og brosir. Hún segir að
engin ákvörðun hafi verið tekin ennþá um
uppbygginguna eða hvort breytingar verði
gerðar á henni. Með slíku fyrirkomulagi
gæti BL orðið nokkurs konar innkaupsaðili
fyrir miðlara (e. dealers) eða smásala. Að
sögn Ernu kemur vel til greina að setja upp
slíka skiptingu ef horft er til lengri tíma.
Það blasir við að það er langskynsamlegast
að samnýta þá starfsemi sem fer fram í
kringum tollafgreiðslu og fraktþjónustu.
Hafa verður í huga að hvert merki er gert
upp með sjálfstæðum hætti og þarf að
standa fyrir sínu tekur Erna fram. Um
Bílaflotinn fyrir framan höfuðstöðvarnar að Grjóthálsi. B&L var flutt af Grjóthálsinum og á
Sævarhöfðann vorið 2009.