Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 74
74 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
E
ins og fram kemur
í viðtalinu hér á
undan við dr. Rich
ard Johnson hefur
hann skrifað fjölda
bóka um leiðtoga, stefnumótun,
sölu og sölustýringu og fleiri
rekstrartengd viðfangsefni.
Í bókinni Leading the Pack
set ur höfundur fram sína nálgun
á leiðtogahlutverkið sem er
í senn einföld en hagnýt og
byggist á þeim veruleika sem
leiðtogar búa við núna en ekki
um miðbik síðustu aldar þegar
margar stjórnunarkenningar
voru settar fram. Vissulega
bygg ir höf undur á mörgum
þessara kenn inga og fjallar
stuttlega um marg ar þeirra.
Fátt nýtt kemur fram í bókinni
en margt er sett fram á hag
nýtari hátt en oft áður og ljóst
að höfundur nýtir sér reynslu
sína og bakgrunn í skrifum
sínum. Höfundur leggur mikið
upp úr því að „þýða“ kenning
ar í stjórnun yfir á mannamál
og setur fram sínar reglur og
lögmál byggt á fræðilegum
kenningum. Dæmi um það eru
fimm lögmál forystuúlfsins sem
eru samskipti, ástríða, misskiln
ingurinn um að vita svörin
við öllu, mikilvægasta eign
fyrir tækisins er starfsfólkið og
valdtraust.
leiðtoginn sem þjálfari
Dr. Johnson ver heilum kafla
í bókinni undir það mikil
væga hlutverk leiðtogans að
vera „mentor og coach“ fyrir
starfs menn sína. Hann setur
fram einfalt þjálfunarferli og
gerir skýran greinarmun á því
hvenær leiðtoginn ætti að vera
í mentorshlutverkinu, hvenær
hann á að vera í hlutverki þjálf
arans og hvenær hann á hrein
lega að stjórna byggt á hæfni
og viðhorfi starfsmannsins.
Það er því í þessu sem öðru í
leiðtogahlutverkinu; leiðtoginn
verður að vera fær um að lesa
leikinn og setja sig í mismun
andi hlutverk eftir mismunandi
aðstæðum líkt og kenningar
um aðstæðubundna stjórnun
ganga út á. Í tengslum við
mentoring og coaching er líka
mikilvægt að vera meðvitaður
um þá endurgjöf sem leiðtoginn
veitir starfsmönnum sínum og
vera sífellt að leita leiða til að
veita hana á uppbyggilegan og
styðjandi hátt.
Hinn greinandi leiðtogi
Leiðtoginn sem leiðir „hjörðina“
þarf í senn að vera fær um að
greina vandamál og sjá fram
á veginn. Greining vandamála
er mikilvægur þáttur í lausn
þeirra en alltof oft eyða fyrirtæki
dýrmætum tíma og miklum
fjármunum í að leysa „röng“
vandamál þar sem greining
þeirra er ekki nægilega vel unn
in. Greining vandamála kallar
á að setja sig vel inn í mál en
samt ekki á kostnað getunnar
til að sjá lengra fram á veginn.
Í bókinni dregur höfundur
sérstaklega fram svokallaðar
„scenario planning“aðferðir
sem ganga út á að sjá fyrir sér
með skapandi hætti mismun
andi útfærslur á möguleikum.
Þessi aðferð er mikið notuð
í hernaði en hefur líka verið
notuð í rekstri og eru tekin
dæmi frá Citibank og Royal
Dutch Shell. Höfundur hefur
hernaðarlegan bakgrunn svo
ekki er undarlegt að hann sæki
í þann reynslubrunn. Víst er að
sterkur leiðtogi þarf að geta séð
fyrir tækifæri og hindranir og
vera fær um að sjá lengra en
Við fjöllum hér um eina af bókum dr. Richards Johnsons, Leading the pack –
Model Driven Leadership for the 21st Century. Hann fjallar þar um fimm
lögmál forystuúlfsins og segir ennþá allt of mikið af leiðtogum sem líkjast úlfin
um sem ferðast um einn og nýtir sér ekki styrkleika og afl heildarinnar.
TexTi: unnur valborG HilMarsdÓTTir
Unnur Valborg Hilmarsdóttir
stjórnendaþjálfari hjá vendum
„Fimm lögmál
for ystuúlfsins eru
samskipti, ástríða,
misskilningurinn um
að vita svörin við
öllu, mikilvægasta
eign fyrir tækisins er
starfs fólkið og vald
traust.“
bækur
sameiginlegt?
Hvað eiga úlfar og leiðtogar