Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 102
102 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Friðþór Eydal, tals maður Isavia, segir að gert sé ráð fyrir 10%
fjölg un farþega allt árið.
Það þykir þó varlega
áætl að því í janúar í ár
var fjölgunin orðin 21,6%
frá janúar í fyrra. Norska
lággjaldafélagið Nor weg
ian hefur til dæmis flogið
í allan vetur til Kefla víkur.
Friðþór segir að félög sem
hafi fasta þjón ustu allt
árið fái afslátt á af greiðslu
gjöldum.
Á komandi sumri er
ráðgert að afgreiða 32
farþegaflug – komur
og brottfarir – um há
anna tíma að morgni
og síðdegis flesta daga
vik unnar en allmargar
flug vélar eru jafnframt
afgreiddar um hádegisbil
og miðnætti. Búist er við
að 15.500 farþegar fari
um flug stöðina daglega
þegar mest lætur í júní,
júlí og ágúst. Þetta er of
mikið fyrir flugstöðina
eins og hún er nú. Að
hluta verður í sumar
að aka farþegum að og
frá flugvélum í rútum,
al menn farþegarými
verða stækkuð og sjálf s
afgreiðslan aukin til að
minnka biðraðir.
tvöföldun
á vetrarflugi
Sex flugfélög eru í vetur með fast áætlunarflug
til og frá Keflavík. Voru áður þrjú og þar áður
oft bara eitt eða tvö. Áhugasamir flugrek endur
fyrir næsta sumar eru hins vegar álíka margir
og fyrr: 16 félög hafa boðað komu véla sinna.
Enn stríðari straumur farþega
um Keflavíkurflugvöll
flugfélög sem von er á í
áætlunar- og leiguflugi í sumar:
air Berlin
air Greenland
austrian airlines
avion express (WOW air)
Delta air lines
Deutsche lufthansa
easyjet
edelweiss air
Germanwings
Icelandair
niki luftfahrt
norwegian air shuttle
Primera air
scandinavian airlines system
Thomas Cook airlines
Transavia.com
1001 herbergi
1001 herbergi er mikið en þeir feðgar Hreiðar Hermanns-
son og Hermann Hreiðarsson ætla samt að hefja bygg-
ingu hótela hringinn í kringum landið. Að lokum eiga
herbergin að vera 1001. Lenging ferðamannatímans er
forsendan fyrir rekstrinum.
Hreiðar Hermannsson og Hermann Hreiðarsson
Hreiðar Hermannsson hefur um árabil leigt út gistirými og lét teikna fyrsta
hótelið þegar árið 1989. Það
var þó aldrei byggt og ekki
var heldur byggt eftir tveimur
næstu teikningum. En hann á
íbúðahótel í Kaupmannahöfn
og leigir út gistingu bæði á
Spáni og í Reykjavík. Núna á að
færa út kvíarnar og Hermann
knattspyrnukappi, sonur hans,
er með í fyrirtækinu.
„Hugmyndin er að byrja á 112
herbergja hóteli á Hellu,“ segir
Hermann. „Þetta tekur allt sinn
tíma og kerfið er þyngra í vöfum
en margur ætlar. Markmiðið hjá
hinu opinbera er að allir vinni
saman en ég veit ekki alltaf hvort
þá er átt við að vinna saman með
eða á móti verkefnum!“
Koma allt árið
Hermann segir að lengning
ferða mannatímans sé forsenda
þess að ráðast í hótelbyggingar
úti á landi. Straumur fólks til
landsins er nú jafnari en var til
skamms tíma og náttúra lands
ins ekki síður eftirsótt að vetri en
sumri.
„Þetta hefur breyst á tiltölulega
skömmum tíma,“ segir Herm
ann. „Ferðamenn koma allt
árið og meira en 80% erlendra
ferðamanna vilja sjá íslenska
náttúru. Þeir vilja komast út á
land en þá vantar gistinguna og
aðstöðuna úti á landi.“
Hótel þeirra Hreiðars og
Hermanns verða byggð úr ein
ingum. Það verða fimm grunn
gerðir af herbergjum og við þau
þjónustuhús. Hótelkeðjan hefur
enn ekki fengið formlegt nafni
en er kynnt sem „1001 nótt“.
Fjármagn leggja þeir feðgar til
sjálfir auk lánsfjár sem Hermann
segir að verði innlent, frá
bönkum og sjóðum.
„Þetta tekur allt
sinn tíma og
kerfið er þyngra í
vöfum en margur
ætlar.“
sjóðHeitt ÍsLand