Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 89
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 89
það tekur á bilinu þrjú til fimm ár að byggja upp ráðstefnuhald í nýju, sérhæfðu ráðstefnuhúsi eins og Hörpu
en greinilega tekist að vekja verulegan áhuga. margar fyrirspurnir koma að utan.
ráðstefnubókanir aukist um
helming milli ára
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa
Karitas Kjartansdótt ir, ráðstefnustjóri tónlistar og ráð stefnuhússins Hörpu, segir
að viðburða og ráð stefnu daga
talið fyrir árið líti mjög vel út
og töluvert verði af erlendum
ráðstefnugestum: „Við erum
með litla sali og fundar herbergi
fyrir allt niður í sex til átta
manns, stærri sali eins og
Silfur berg sem tekur 750 gesti
og Eldborg sem rúmar 1.600 til
1.800 gesti.“
nýtt rými með
stórkostlegu útsýni
Á vormánuðum verður opnað
nýtt rými á 6. og 7. hæð.
Þetta er eitt fallegasta rýmið í
húsinu með stórum svölum og
stórkostlegu útsýni yfir Reykja
vík, höfnina og Esjuna. Svæðið
rúmar um 400 manns í stand
andi móttöku og tekur 150
manns í sæti á hringborðum.
Að sögn Karitasar eru mjög fáir
lausir dagar á næstu mánuðum
í húsinu: Að sögn Karitasar eru
mjög fáir lausir dagar á næstu
mánuðum í húsinu en við ko
mum þó til með að bjóða uppá
sérstök kjör á mánudögum
og þriðjudögum þegar meira
er laust og bjóða fyrirtækjum
sértilboð á árshátíðarhaldi á
föstudögum. Það er greinilegt
að skipuleggj endum alþjóðlegra
ráðstefna og funda þykir Harpa
áhuga verður kostur. Styrklei
ki Hörpu liggur m.a. í því að
húsið er mjög miðsvæðis svo
auðvelt er fyrir ráðstefnugesti
að nálgast verslun og þjónustu
en einnig er mikið af gistirými í
næsta nágrenni.
1.700.000 gestir hafa
heimsótt húsið
Áætlað hefur verið að um 1.000
gesta alþjóðleg fimm daga
ráðstefna geti skilað hátt í hálf
um milljarði króna inn í íslenskt
hagkerfi. Staða krónunnar veitir
Reykjavík ákveðið forskot sem
ráðstefnu og fundaborg.
Frá opnun hafa yfir 1.700.000
gestir heimsótt húsið og yfir
1.000 viðburðir; ráðstefnur, tón
leikar og sýningar, verið haldnir.
Tónlistar og ráðstefnuhúsið
Harpa hefur tvö tekjusvið, eins
og nafnið bendir til: Annars
vegar tónlistarhluta og hins
vegar þann hluta sem einbeitir
sér að því að leigja út aðstöðu
fyrir ráðstefnur, fundi, viðburði
og veislur, en þar eru mikil
sóknarfæri fyrir húsið. Nú er
orðið ljóst að bókanir árið 2013
eru um það bil 55% umfang
smeiri en árið 2012. Innlendi
markaðurinn, á sviði funda og
veisluhalda, hefur tekið vel við
sér en mest munar um fjölþjóð
legar ráðstefnur; má búast við
að hátt í fimmtán slíkar verði
haldnar í Hörpu árið 2013.
Félögin í kringum Hörpu hafa
nú verið sameinuð í eitt með
eina stjórn og er unnið að
endur fjármögnun hússins.“
Karitas Kjartansdóttir er ráðstefnustefnustjóri tónlistar og ráðstefnuhússins Hörpu.
TexTi: Hrund HauKsdÓTTir Myndir: Geir Ólafsson
„Það er greinilegt
að skipu leggjendum
al þjóðlegra ráð
stefna og funda
þyk ir Harpa áhuga
verð ur kostur.“