Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 92
92 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
nýherji veitir umfangsmikla þjónustu fyrir fundi og ráðstefnur af öllum stærðum og gerðum. Sér í lagi hafa sérfræð-
ingar nýherja þekkingu á tæknilausnum sem snúa að hljóði, mynd og öðrum sérhæfðum fundabúnaði.
sífellt tæknivæddari ráðstefnur
Funda- og ráðstefnuþjónusta Nýherja:
„Útsendingum frá
fundum og ráðstefn
um yfir netið fer
stöðugt fjölgandi
og sér Nýherji um
upptöku á hljóð og
mynd og útsending
ar, hvort sem þær
eru til lokaðs hóps
eða opnar hverjum
sem er.“
Gunnar Möller, hóp stjóri hljóð og mynd lausnasölu Nýherja, segir að
aukin eftirspurn sé að verða
eftir flóknari lausnum fyrir
funda og ráðstefnuhald og þar
komi þekking Nýherja sem upp
lý singatæknifyrirtækis að góð um
notum.
„Síðustu ár hefur þróunin
verið hröð í tæknilausnum fyrir
ráðstefnur og nú er svo komið
að hlutum á borð við hljóð
og mynd er í auknum mæli
stjórnað með netkerfum eða
upplýsingatæknikerfum. Því
erum við vel í stakk búin til að
taka að okkur verkefni á þessu
sviði,“ segir Gunnar.
Nýherji býr jafnframt vel að
því leyti að oft hafa fundar
salir keypt tækjabúnað af
Ný herja og þegar kallað er eftir
aukaþjónustu frá tækjaleigu
fyrirtækisins sé því auðvelt að
tengja viðbótarbúnað við kerfið
sem fyrir er. „Við þekkjum oft
vel þau tæki sem fyrir eru og
getum á skömmum tíma komið
sérhæfðum aukabúnaði í full
afköst, sem sparar tíma og kost
nað,“ segir Gunnar. Hann bætir
við að Nýherji veiti jafnframt
ýmiss konar aðstöðuþjónustu
fyrir ráðstefnur, t.d. túlka
búnað, tölvubúnað, prentlausn
ir, þráðlaus netkerfi og svo
mætti lengi telja. Á öllum þess
um sviðum njóti Nýherji þess
að vera bæði upplýsingatækni
fyrirtæki og veita þjónustu fyrir
ráðstefnur og fundi.
netútsendingar algengar
Útsendingum frá fundum
og ráðstefnum yfir netið fer
stöðugt fjölgandi að sögn
Gunnars, en þá getur Nýherji
séð um upptöku á hljóð og
mynd og útsendingu yfir netið,
hvort sem það er til lokaðs hóps
eða opið hverjum sem er. Slík
þjónusta getur verið marg
breytileg, allt frá streymi sem
horfa má á yfir netið í raun
tíma upp í háskerpumyndefni
sem fer í eftirvinnslu og er svo
skilað útsendingarhæfu fyrir
sjónvarp. Algengt er að efni sé
streymt í beinni útsendingu,
en strax að ráðstefnu lokinni sé
það gert aðgengilegt þannig að
hægt sé að horfa á upptökuna
hvenær sem er.
Þessu til viðbótar býður
Nýherji svo ýmiss konar mynd
búnað – skjái og skjávarpa af
öllum stærðum og gerðum
ásamt myndstjórn sem getur
tekist á við flókin verkefni. Eins
er oft kallað eftir túlkaþjónustu,
hvort heldur er fyrir gesti á
staðnum eða í netútsendingu,
og þá hefur Nýherji yfir mjög
öflugum búnaði að ráða að
sögn Gunnars.
Ekkert of lítið eða of stórt
Þá eru fjarfundir ýmiss konar
einn þáttur í þjónustu Nýherja,
en á fjarfundum getur fjöldi
þátttakenda setið fundi hvar
sem er í heiminum og tekið
þátt í fundahöldum samtímis
þar sem allir fundarmenn fá
bæði hljóð og mynd frá öðrum
þátttakendum sem fundinn sitja.
„Það má segja að ekkert
verkefni sé of lítið eða of stórt
fyrir okkur. Hvort sem það eru
litlir fundir í einu herbergi eða
þúsund manna ráðstefnur í
íþróttahúsum getum við veitt
ráðgjöf, þjónustu og búnað eftir
þörfum hverju sinni,“ segir
Gunnar Möller.