Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 31
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 31
nýr og endurbættur Já.is hefur nú verið settur í loftið. Breytingar á vefnum eru margþættar en lúta flestar að því
að auka upplýsingagjöf til notenda og auðvelda þeim að finna það sem leitað er að hratt og örugglega – hvort sem
notuð er tölva, spjaldtölva eða snjallsími. guðmundur H. Björnsson, vöru- og viðskiptaþróunarstjóri Já, segir að
breytingarnar hafi verið gerðar í samræmi við óskir notenda og fyrirtækja.
betri upplýsingar á skemmri tíma
Nýr og endurbættur Já.is
„Um leið verð ur
Já.is betri vettvang
ur fyrir fyrirtæki og
stofnanir til að koma
þjónustu sinni og
ímynd á framfæri.“
Það er okkar reynsla að notendur vilji ekki bara síma núm er heldur meiri upplýsingar
þeg ar leitað er að fyrirtækjum
á Já.is. Þess vegna sýnir nýi
vefurinn upplýsingar á borð
við facebook og twittersíður
fyrirtækja, afgreiðslutíma
og staðsetningu á korti, svo
eitt hvað sé nefnt. Um leið
verð ur Já.is betri vettvangur
fyrir fyrirtæki og stofnanir til
að koma þjónustu sinni og
ímynd á framfæri við neytend
ur strax og þeir eru í leit að
ein hvers konar upplýsingum
sem tengjast fyrirtækinu,“ segir
Guðmundur.
Þessu til viðbótar sjá notend
ur líka stjörnugjöf og umsagnir
viðskiptavina af Stjörnur.is,
sem Guðmundur segir að sé
einstök leið til að fá upplý
singar frá almennum neytend
um um þjónustu fyrirtækja.
Þann ig geti neytendur t.d. séð
strax á þjónustuflokkasíðum
Já.is hvaða fyrirtæki í viðkom
andi atvinnugreinum eru
álit legust út frá umsögnum
við skiptavina þeirra.
Hraðvirkari leit
Samhliða auknum upplýsing
um hefur leitarvélin verið
endur bætt til muna. Hún notar
nú svipaðar aðferðir og leitar
vefir á borð við Google til að
hjálpa notendum að finna það
sem leitað er að. Þetta lýsir
sér þannig að þegar byrjað
er að skrifa inn fyrstu stafi í
leitarorði getur hinn nýi Já.is
sagt fyrir um hvað það er sem
notandinn er að leita að með
því að bera saman við notk
un leitarvélarinnar síðustu
mánuði og birt samstundis
tillögur að leitarorð um. Þannig
dugar notandanum oft að slá
inn örfáa stafi og velja svo úr
uppástungum Já.is, sem styttir
tímann sem leitin tekur. Guð
mundur segir að systurfyrir
tæki Já í Evrópu hafi enn ekki
innleitt slíka leitartækni og Já.is
sé því brautryðjandi í þessum
efnum.
Virkar í öllum tækjum
Þessu til viðbótar er nýi Já.is
svokallaður „snjallvefur“ (re
sponsive), sem þýðir að hann
lagar sig að öllum skjástærðum
og hentar því vel til notkunar í
snjallsímum og spjaldtölvum.
„Það nota sífellt fleiri snjall
síma og spjaldtölvur til að leita
upplýsinga og því lögðum við
mikið upp úr þessum þætti
nýja vefjarins og við munum
halda áfram að þróa nýja virkni
fyrir snjallsíma og spjaldtölv
ur á næstu mánuðum,“ segir
Guðmundur.
Þá eru enn ótaldar nýjungar
á borð við endurbætta þjónu
stuflokka fyrirtækja, sem nú
eru aðgengilegri en áður á
forsíðu vefjarins og hafa verið
aðlagaðir þannig að auðveld
ara er fyrir notendur að finna
réttan þjónustuflokk hverju
sinni. „Við höfum líka fækk
að auglýsingum og verðum
bara með tvær á forsíðunni.
Það þýðir að Já.is, sem er einn
vinsælasti vefur landsins sam
kvæmt Modernus, fær algera
sérstöðu fyrir auglýsendur sem
njóta þar óskiptrar athygli not
enda,“ segir Guðmundur.
Guðmundur H. Björnsson, vöru og viðskiptaþróunarstjóri Já.