Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 112
112 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
S
tarf mitt er, eins og
ég segi oft, skemmti
legasta starf í
heimi. Ég nýt þeirra
for réttinda að vera í
gríðarlega fjölbreyttu starfi þar
sem ég er sífellt að takast á við
ný verkefni og nýjar áskoranir.
Helstu verkefnin eru að sjá
um rekstur fimmtán verslana
okkar auk allra markaðsmála
Domino’s. Samhliða því sé ég
að mestu um opnanir nýrra
versl ana, þróun á pöntunarkerf
um (vefsíða og app), ráðningar
versl unarstjóra, vöruþróun
ásamt því að taka þátt í stefnu
mótun félagins.
Síðasta ár var ár breytinga
hjá Domino’s. Við gerðum
veigamiklar breytingar á
kjarnvöru okkar og breyttum
allri nálgun okkar hvað varðar
markaðssetn ingu. Við hugs
uðum hlutina upp á nýtt og
breyttum ásýnd okkar gagnvart
viðskiptavinum með nýju útliti á
umbúðum og öllu markaðsefni.
Samhliða því höfum við breytt
áherslum í birtingum og gert
alla vinnu þar skipulagðari og
markvissari. Á árinu var áhersl
an á að nýta okkur í mun meira
mæli auglýsingar á vefnum og
samskiptavefjum. Við tókum
okkar fyrstu skref hvað varðar
auglýsingar sem ná til notenda
snjallsíma. Sá vöxtur sem þar er
og þau tækifæri sem þar eru að
skapast tel ég vera hvað mest
spennandi í heimi markaðssetn
ingar í dag.
Framundan er svo annað
spennandi ár, uppfullt af nýjum
verkefnum. Á dagskránni er
að opna fleiri verslanir, kynna
gómsætar vörunýjungar og
breyta útliti eldri verslana. Við
höfum þegar breytt verslun okk
ar í Skeifunni og fengið frábær
viðbrögð frá viðskiptavin um.
Nýtt útlit býður t.d. upp á mögu
leika fyrir yngstu kynslóðina
að stytta sér stundir með því
að fylgjast með pítsubökurum
okkar fletja út pítsur eða með
því að skapa listaverk á þar til
gerðum krítarvegg.“
Unnusta Magnúsar er Marit
Davíðsdóttir háskólanemi og
eiga þau þriggja ára son, Balt
asar. „Ég var til skamms tíma
líklega bjartsýnasti lögfræð
inemi í heimi þar sem ég reyndi
að vera í fullu námi meðfram
öðrum verkefnum. Það entist
ekki lengi enda átti þurrt lesefni
lögfræðinnar ekkert í áhuga
minn á viðskiptum og markaðs
setningu. Á ekki von á því að ég
snúi aftur í lögfræðina en hef þó
áhuga á að mennta mig frekar
og þá helst tengt viðskipt um
og/eða markaðsfræði.“
Þegar kemur að áhugamálum
segist Magnús vera algjör dellu
kall og tekur tarnir á mörgum
sviðum. „Lengi vel var ég for
fallinn sportkafari og ferðaðist
m.a. til Taílands þar sem ég tók
PADI Divemasterréttindi og
starfaði sem köfunar„guide“ í
tvær vikur. Undanfarin ár hefur
fluguveiðin átt hug minn allan
en fátt er betra en að standa á
góðum degi með létta flugu
stöng og veiða silung. Nýjasta
dellan er síðan skotveiðin en ég
stefni á að taka skotveiðileyfi
í sumar og aldrei að vita hvað
sú della endist lengi. Annars
er ég stuðningsmaður Arsenal
í enska boltanum og reyni eftir
fremsta megni að fylgjast með
leikjum þeirra. Því miður hefur
gengið ekki verið mjög gott
undanfarið og oft erfitt að tapa
ekki gleðinni þegar illa gengur.
Stórfjölskyldan á hús í Ge
orgíu í Bandaríkjunum þar sem
við reynum að fara reglulega í
frí. Staðurinn er algjör paradís
sem maður vill heimsækja sem
oftast en reynist oft erfitt vegna
anna. Í sumar er stefnan sett á
sólarstrandarfrí með fjölskyld
unni þar sem yngsti meðlimur
inn fær að njóta sín í botn.
Líklega verður SuðurEvrópa
fyrir valinu en þó er aldrei að
vita hvar við lendum á endan
um.“
Magnús Hafliðason
– markaðs- og rekstrarstjóri Domino’s
Nafn: Magnús Hafliðason
Fæðingarstaður: Reykjavík, 27. júní
1982 – ólst upp á Bolungarvík og á
ættir að rekja þangað og lít því á mig
sem Bolvíking umfram allt annað
Foreldrar: Hafliði Elíasson og Jóna
Magnúsdóttir
Maki: Marit Davíðsdóttir
Börn: Baltasar, þriggja ára
Menntun: Óklárað BApróf í lögfræði
„Ég var til skamms tíma líklega bjartsýnasti lögfræðinemi í heimi þar sem ég reyndi að
vera í fullu námi meðfram öðrum verkefnum. Það entist ekki lengi enda átti þurrt lesefni
lögfræðinnar ekkert í áhuga minn á viðskiptum og markaðssetningu.“
fóLk
TexTi: HilMar Karlsson