Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 83
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 83
yfir tveir
millJarðar
ErlEndiS
í augLýsingar
Ísland er á kortinu en selur sig ekki sjálft, hingað koma ekki erlendir ferðamenn nema ferða -
þjónustan standi sig og selji þeim ferðir hingað, segir Birkir Hólm Guðnason, forstjóri
Iceland air. Félagið eyðir yfir tveimur milljörðum króna í auglýsingar erlendis og um leið og
slakað er á í auglýsingum minnkar salan. Búist er við að fjöldi erlendra ferðamanna rjúfi
milljónar múrinn árið 2018 en fjöldinn hefur tvöfaldast á hverjum tíu árum frá 1990.
TexTi: siGurður Már jÓnsson Myndir: Geir Ólafsson
r é t t m a r k a ð S S E t n i n g E r l y k i l l i n n a ð á r a n g r i
Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Icelandair, segir að félagið eyði yfir tveimur milljörðum króna á ári í auglýsingar
erl endis og ekki veiti af því um
leið og slakað er á í auglýsingum
dragi úr sölu ferða. Mikið kapp er
lagt á að fá ferðamenn utan há
anna tímans á sumrin. Ísland er á
kortinu hjá ferðamönnum en selur
sig ekki sjálft; það þarf að selja þeim
ferðir hingað og samkeppnin er
mikil. Ferðaþjónustan hefur gert sig
gildandi sem útflutnings at vinnu
vegur. Sem fyrr er það náttúra lands
ins sem heillar mest en alls kyns
list viðburðir, ráðstefnur og fundir
hafa mikið að segja.
„Fjöldi erlendra ferðamanna hefur
tvöfaldast á hverjum 10 árum og því
er líklegt að þeir verði komnir vel yfir
1.200 þúsund árið 2020. Ég tel að við
rjúfum múrinn 2018; að það ár verði
erlendir ferðamenn komnir yfir eina
milljón,“ segir Birkir Hólm Guðnason,
forstjóri Icelandair, um mikla
aukningu ferðamanna til lands ins.
„Mér finnst umræðan stundum
neikvæð gagnvart þeirri þróun að
hing að komi svo margir ferðamenn.
Réttara væri að velta meira fyrir sér
hvernig við tökum sem best á móti
þeim.“
Íslendingar byggja allt sitt á út
flutn ingi og þar er ferðaþjónustan
máttarstólpi; einn þriggja, ásamt
fiski og stóriðju. Frá því byrjað var
að telja ferðamenn árið 1949 hafa
samtals komið hingað á milli sjö og
átta milljónir ferðamanna í það heila.
Síðustu ár hafa verið stórstíg, það
sést best á því að aðeins fimm ár eru
í að erlendir ferðamenn verði yfir ein
milljón. Á síðasta ári voru þeir yfir 700
þúsund talsins. Þessi mikli fjöldi leitar
hins vegar á frekar þröng svæði, of
fáa staði og þess vegna verður álagið
meira á vinsælustu áningarstöðunum.
Dreifi ng erlendra ferðamanna um
landið er ekki nægilega mikil.
sjóðHeitt ÍsLand