Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 85
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 85
mikið við markaðssetningu. Hann segir
að þetta dæmi sýni að markaðsstarf fari
nú meira fram í gegnum stafræna miðla,
samfélagsmiðla og síma. Það skipti máli
að vera vakandi fyrir nýjum kostum og að
markaðsstarfið erlendis haldist í hendur
við veltu félagsins.
„Stærstur hluti okkar markaðskostnaðar
er erlendis en við erum öðru vísi en önnur
flugfélög að því leyti að við erum að
aug lýsa áfangastaðinn Ísland meira en
sjálft flugfélagið. Önnur flugfélög auglýsa
gjarnan framboð og verð á meðan við
auglýsum Bláa lónið, jökla landsins eða
annað sem einkennir Ísland. Í því er fólgin
talsverð sérstaða hjá okkur.“
Þegar kemur að verkefnum hér innan
lands þarf að gera greinarmun á Icelandair
og móðurfélaginu Icelandair Group.
Móðurfélagið hefur undanfarið einbeitt sér
meira að nýsköpunarverkefnum sem styðja
við vetrarferðamennsku enda mikil ásókn
í að fá félagið í slík verkefni. Stundum
skarast þetta og Icelandair er t.d. stofnandi
og eigandi Iceland Airways sem er líklega
eitt best heppnaða átakið til að auka ferða
þjónustu utan alfaratíma. Sama má segja
um matarhátíðina Food and Fun.
„Bæði þessi verkefni hafa tekist vel en
þau sýna líka að það þarf þolinmæði til
að byggja upp. Til að auka ferðamennsku
á veturna þarf að skipuleggja viðburði
um leið og annað sem einkennir landið
er kynnt; svo sem hreina loftið, veturinn,
norður ljósin, fiskurinn og vatnið. Allt þetta
selur aftur síðarmeir og vegur þyngst
þegar ferðamenn eru spurðir um upplifun
sína af Íslandi. Náttúran er alltaf sterkust.“
Að sögn Birkis verða uppákomur eins
og Food and Fun að skoðast í víðara
samhengi. Viðburðurinn snúist ekki bara
um að fá ferðamenn hingað eina helgi,
ekki sé síðra að fá sérfræðinga meðal
fjöl miðlamanna til að fjalla um land ið, hrá
efnið í matinn, matreiðsluna og veit inga
staðina á jákvæðan hátt og með þeim hætti
að hingað komi erlendir ferða menn allt
árið. Þetta tengist því að byggja upp ímynd
Íslands og efla hana.
„Við gleymum því ekki að við erum flug
félag. En við höfum séð tækifæri í því að
styðja við ákveðin verkefni. Við teljum til
dæmis að viðburðir, sem munu skila okkur
umfjöllun erlendis og síðar ferðamönnum,
séu ávinningur fyrir alla.“
stærstir milli skandinavíu og
nameríku
Icelandair er nú það flugfélag sem er með
mesta tíðni flugferða á milli austurstrandar
Bandaríkjanna og Skandinavíu. Þetta hefur
beint athygli að félaginu í fjölmiðlum.
Nú flýgur Icelandair á tíu staði í Norður
Ameríku, þar af tvisvar á dag til New York
og Boston. Til samanburðar má nefna að
SAS flýgur aðeins á þrjá staði. Í kjölfarið
hefur samstarf við ferðamálayfirvöld í
Skandinavíu aukist.
„Þegar við seljum ferðir yfir hafið er
aðaláhersla okkar erlendis samt alltaf á
Ísland. Framboðið skiptir afar miklu máli
fyrir fjölgun ferðamanna. Við höfum leitað
að áfangastöðum ytra þar sem við höfum
forskot á keppinautana. Um leið hjálpar
það okkur að byggja upp flugtíðni til og frá
Íslandi.“
Uppbygging á stöðum eins og Toronto,
Washington, Seattle og Denver hefur
gengið vel. „Með því að fara inn á vestur
strönd Bandaríkjanna hefur náðst að
örva markaðinn til Íslands hlutfallslega
meira en með samsvarandi aukningu í
Evrópu. Beint flug inn á nýja áfangastaði,
sérstaklega í NorðurAmeríku, hefur mikil
marg földunaráhrif á tíðni ferðamanna til
Íslands.“
Birkir segir að raunar skipti
heildarframboð ferða afar miklu. Þannig
séu einstaka flugfélög hætt að fljúga
til Íslands á meðan önnur séu ýmist að
auka eða draga úr framboði. Þess vegna
skipti miklu að Icelandair auki tíðni sína.
Sveigjan leiki félagsins, eins og hann sé
orðinn núna, geri félaginu kleift að bregð
ast hratt við breyttri samkeppni.
„Fjöldi ferðamanna
hefur tvöfaldast á
hverjum tíu árum og
því er líklegt að þeir
verði komnir vel yfir
1.200 þúsund árið
2020.“
„Þetta er ekki spurn
ing um að rukka inn
á hvern einasta stað
eða opið svæði hér
á landi – heldur að
innheimta þar sem nú
þegar er átroðningur
og nauðsynlegt að
hafa meiri stjórn á
fjöldanum.“
„Við höfum varað við
því að flugvöll ur inn
gæti verið að springa
vegna álags en þó
hefur verið brugðist
vel við þeim vexti
ferða manna sem hefur
orðið á síðustu árum.
Þar eru uppi áform
um að stækka aðstöðu
ferðamanna í takt
við það.“