Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 40
40 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
Í maí er reiknað með að far síma númer verði jafnmörg mann kyninu. Ekki bara það, þetta er mánuðurinn,
ef þú ætlar að endurnýja nýja
farsímann þinn. Allir þeir stóru
(og smáu) koma með nýja og
endurbætta síma. Samsung,
stærsti farsímaframleiðandinn,
verður með fjórðu kynslóð af Gal
axy Ssímanum sem fær nafnið
IV. Apple kemur með endurbætta
útgáfu af fimmunni, iPhone5S,
og verður hann með hlutum sem
vantaði tilfinnanlega í fimmuna
sem kom á markað í september
sl., eins og NFC.
Kanadíski framleiðandinn
Black Berry kemur með tvo fyrstu
sím ana á markað með alveg
nýju stýrikerfi BlackBerry Z10
og Q10. Og líklega verður Nokia
með nýjan ofurmyndavélarsíma
í vor, síma sem notar Windows
8stýrikerfið. Fyrir er Nokia
808 PureViewsími sem kom á
markaðinn í júní á síðasta ári og
byggist á Symbianstýrikerfinu.
Þetta er síðasta útgáfan sem
Nokia markaðssetur með því
stýrikerfi; héðan í frá munu allir
snjallsímar frá Finnunum vinna á
Windows 8 frá Microsoft.
Stephan Elop, hinn kanadíski
forstjóri Nokia, sagði í viðtali
við the Guardian 6. febrúar að
snjallsímabransinn væri á fleygi
ferð, ótrúlega örar breytingar.
Fyrir nokkrum misserum var líftími
toppsímans tvö ár. Nú er líftíminn
kominn niður í sex mánuði og við
blasir að almenn ingur á Vestur
lönd um endurnýi símann sinn á
rúm lega árs fresti.
PÁll StEfÁnSSon
– ljósmyndari
GRÆJUR
farsímanúmer
jafn mörg mannkyninu
Högni Óskarsson segir að Google hafi frá ár inu 2007 boðið starfs mönnum sínum
upp á námskeið sem byggist
á innhverfri íhugun í bland við
líf eðlisfræði heilans.
„Google, sem Fortune
útnefndi sem besta vinnustað
í Bandaríkj unum tvö ár í röð,
er eitt af ofur vaxtarfyrirtækjum
síðasta ára tugar, drifið áfram af
blöndu tölvu nörda og hard
corebissn essmanna og 24/7
innri menn ingu; „with a healthy
disregard for the impossible“.
Skýringuna á námskeiðinu er að
finna í duldum fórnarkostnaði;
miklum streitueinkennum, starfs
kulnun og vanda í einkalífi þrátt
fyrir mjög hugvitssamlega og
nota lega ytri umgjörð fyrirtækis
ins. Högni segir að forritarinn
MenTan hafi átt hugmyndina.
„Hann efnaðist mjög í fyrsta
hluta fjárútboðinu en upplifði bara
tómleika. Upphaflegt markmið
var að virkja starfsfólk til að
draga úr streitu en enginn vildi
vera með. Nördarnir nærðust á
streitunni án þess að gera
greinar mun á jákvæðri, skapandi
streitu og þeirri neikvæðu sem
slítur fólki út eins og olíulaus
kapp akstursvél.
Tan fékk með sér taugasálfræð
ing, fyrrverandi búddamunk
og reyndan stjórnanda. Þeir
hönn uðu sex vikna námskeið
sem byggðist á þjálfun í gjör
hygli, greiningu á eigin gildum
og aukinni þekkingu á eigin
tilfinningaviðbrögðum sem og
annarra. Árangurinn er skarpari
einbeiting og skapandi hugsun,
bætt sjálfsstjórn og samskipta
hæfni, meiri seigla og um leið
minni streita og auðugra einkalíf.
Þessir þættir eru oft framandi í hart
keyrð um teknókratískum heimi.
Þetta er óhefðbundin leið til
bætts árangurs og vellíðunar og
hún virkar.“
til bætts árangurs og vellíðunar
HöGni ÓSkaRSSon
– geðlæknir og stjórnendaþjálfari
SKIpULAGIÐ Í
VINNUNNI
skoðun
GÍSli kRiStjÁnSSon
– blaðamaður
STJÓRNUNAR-
MOLI
Umsókn um vinnu er sölumennska. Umsækj andinn reynir að búa til auglýsingu
fyrir sjálfan sig í von um að
hann eða hún seljist. Þar segir
umsækjand inn frá menntun
sinni og fyrri störfum og reynir
að gera hosur sínar grænar
fyrir væntanlegum vinnuveit
anda. Stundum heppnast
þetta – stund um ekki. Rétt gerð
ferilskrá er mikilvægur hluti af
þessari sölumennsku. Færustu
stjórnunar fræðingar eru á einu
máli um að tilviljun ein ræður
ekki hvort samningar takast.
Umsækjandinn getur gert mis tök
þegar hann eða hún lýsir eigin
kostum í bréfi. Áherslur í umsókn
geta ráðið úrslitum. Sumir segja
að hræðsla við sjálfs hól eyði
leggi. Aðrir segja að sannkallað
montbréf hrífi engan forstjóra.
ÞARnA ÞARF Að FinnA
MiLLi VEg. HéR ERU
noKK UR RÁð:
1. Áhlaup á starfið. Æ algengara
er að fólki sé ráðlagt að „gera
áhlaup á starfið“ eins og það er
kallað. Byrja á að segja af hverju
viðkomandi sækist eftir starfinu
fremur en að byrja á að segja:
„ég heiti …“ eða „Hér með leyfi
ég undirrituð/aður mér að …“ of
mikil hógværð hrífur ekki.
2. Horfðu fram á veg. Áherslan á
að vera á hvað þú telur þig geta
gert í þessu starfi í framtíðinni.
nákvæmar lýsingar á fyrri störf -
um vekja síður áhuga. Þú hefur ef
til vill áhuga á að segja frá göml -
um afrekum en það er ekki víst
að forstjórinn sé jafnáhugasamur.
Stjórnendur fyrirtækja hafa oft
mestan áhuga á framtíðinni.
3. Ekki segja allt. Það dugar að
telja upp það sem skiptir máli fyr -
ir væntanlegt starf. Allt hitt getur
litið út eins og málalengingar.
Stjórn endur fyrirtækja nenna oft
ekki að lesa löng bréf. Þeir vilja
kjarna málsins strax.
4. Hreinskilni. Segðu frá af hverju
þú vilt skipta um vinnu. Hreinskilni
virkar vel á flesta.
5. Réttar áherslur. Leggðu
áherslu á hvað þú kannt og getur
fremur en að telja upp próf og
gráður. Ekki gleyma að láta góða
persónulega eiginleika, sem þú
telur þig hafa, fljóta með í upp -
talningunni.
6. Fyrri afrek. Það er í lagi að
nefna verkefni sem þú ert stolt/
ur af að hafa leyst. Árangurinn
verður helst að vera mælanlegur.
Forstjórar vilja helst hafa allt
mælanlegt.
7. Að velja og hafna. nefndu
bara þau fyrri störf sem þú telur
mikilvægust og aðeins þá mennt-
un sem þú telur skipta máli.
Slepptu ártölum og hve lengi þú
varst í námi. Stuttur listi með því
mikilvæg asta er nóg.
listin að selja sig
Landsbankinn er í fararbroddi í fjármögnun nýrra verkefna í ferðaþjónustu.
Við erum hreyfiafl í atvinnulífinu og öflugur samstarfsaðili fyrirtækja.
Ferðaþjónustan er í örum vexti og Landsbankinn er tilbúinn til samstarfs.
Árið 2006
31,000
Árið 2008
41,000
Árið 2010
60,000
Árið 2012
75,000
Kortavelta erlendra ferðamanna
( Milljónir króna )
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn