Frjáls verslun - 01.01.2013, Blaðsíða 62
62 FRJÁLS VERSLUN 1. 2013
þú ert. Vitaskuld getur þetta leitt til þess
að kröfurnar taka ekki mið af aðstæðum
á hverjum stað. Við áttum til dæmis erfitt
með að fá erlendu framleiðendurna til að
skilja að Íslendingar gera ekki svo mikið af
því að fara undir bílinn og skoða undirvagn
inn þegar komið er með bílinn í viðgerð.“
Að sögn Ernu gera staðlar framleiðenda
ráð fyrir því að viðskiptavinir eigi kost á
þessu og því er fyrirtækið með slíkt svæði
við Sævarhöfða. Þar geta viðskiptavinir
komið og skoðað bílana með þessum hætti
og um leið er farið yfir með þeim hvað er
að. Það er ekki víst að önnum kafnir Íslend
ingar gefi sér alltaf tíma í slíkt umstang.
gjaldEyrishöFtin ErFið
Sem gefur að skilja krefjast kaup á fyrirtæki
eins og BL margvíslegra fjármálalegra úr
lausna. Erna sagði að þó að línurnar hefðu
verið lagðar í upphafi hefði sér komið á
óvart hve miklum vandkvæðum er bundið
að starfa innan gjaldeyrishafta. „Það sem
mér finnst erfiðast í fyrirtækjaumhverfi
í dag eru gjaldeyrishöftin og lánshæfis
mat á íslenskum bönkum. Þá er ég ekki
eingöngu að tala um okkar viðskipta
banka heldur íslensku bankana almennt.
Það er nánast vonlaust fyrir okkur að fá
bankaábyrgðir eins og á við um flesta aðra í
íslensku viðskiptalífi sem nýta sér innlenda
bankaþjónustu. Erlendu aðilarnir taka ekki
íslenskan banka sem ábyrgðaraðila ef upp
hæðirnar skipta máli. Þetta er mikil breyt
ing frá því sem var þegar ég hætti hér 2007.
Þá var hægt að panta bíl frá Subaru með
bankaábyrgð. Það felur í sér að bankinn
ábyrgist að borga þegar bíllinn fer í fram
leiðslu og við – innflutningsfyrirtækið –
borguðum stundum ekki fyrr en 30 eða 60
dögum eftir að pöntun var gerð. Við vorum
komin með allt upp í þriggja mánaða krít
hjá Hyundai. Í dag er umhverfið allt annað.
Það er auðvitað mismunandi eftir fram
leiðendum en það er jafnvel orðið þannig
að við þurfum að staðgreiða um leið og
pöntun á sér stað. Þetta er gríðarleg breyt
ing, ekki síst þegar þetta kemur til viðbótar
því vaxtaumhverfi sem ríkir á Íslandi. Í
dag þurfum við að greiða 10% vexti, sem er
hluti skýringarinnar þegar horft er til þess
hve dýr varan er í dag.“
Erna segir að þetta hafi gríðarleg áhrif á rekstrarumhverfi bílaumboðanna, sérstaklega þegar þess er
gætt að Íslendingar vilja yfirleitt ekki bíða
eftir bílum. Þeir vilja helst geta keyrt burt
á bílnum um leið og þeir hafa ákveðið að
fjárfesta í einum slíkum. Til þess að geta
orðið við því þurfa umboðin að liggja með
lagera, sem vitaskuld er mjög dýrt. Erna
segir að talsvert hafi verið gert til þess að
fá kaupendur til að sætta sig við að panta
og bíða en yfirleitt leiðir það til þess að
kaupandinn fer annað. „Við finnum það
að þegar kaupandi kemur hingað inn og
vill til dæmis kaupa Nissan Qashqai, sem
var mest seldi jeppinn á Íslandi á síð asta
ári, ætlast hann til þess að hann sé til og
jafnvel í réttum lit,“ segir Erna og brosir.
Það er hins vegar flókið fyrir umboð eins
og BL ef þetta á að eiga við um allar gerðir
sem þar eru til sölu. Lætur nærri að BL
séu með um 90 gerðir af bílum til sölu ef
öll merkin eru tekin. Ef umboðið ætlar að
eiga tvo í mismunandi lit í hverri gerð þá
eru það 180 bílar á lager. „En þetta er það
sem er erfiðast í rekstrarumhverfinu í dag,
það er fjármögnunin. Því til viðbótar er
uppákoman í kringum það að setja Ísland
á hryðjuverkalista en það er enn að valda
okkur erfiðleikum, það er staðreynd sem
ekki allir átta sig á. Það hefur bæði áhrif á
fyrirtækin og stöðu Íslands. Það er alltaf
erfitt að vinda ofan af svona hlutum og
tekur tíma að útskýra. Nú getum við sagt
að það sem kom okkur á listann sé búið og
það auðveldar vonandi næstu skref. Staðan
í Evrópu hjálpar heldur ekki til en menn
hafa orðið varkárari eftir því sem staðan
versnar þar.“
Af þessu leiðir að umstangið við að selja
bíla er orðið tímafrekara, sem eykur síðan
kostnað og áhættu. „Um leið hefur ríkið
verið að auka skattheimtu og umhverfis
skattar hafa hækkað annað árið í röð. Á
sama tíma eru bílaleigurnar að fá hækkun
en þær hafa verið okkar tryggustu og
stærstu viðskiptavinir eftir bankahrunið.
Ég veit hreinlega ekki hvar við værum ef
þeirra hefði ekki notið við. Það er ekkert
leyndarmál að þær taka ríflega helming af
sölunni.“ Erna tók fram að það væri ekkert
að bankaþjónustunni sem slíkri. Rekstrar
umhverfi bankanna væri hins vegar með
þeim hætti að þeir ættu erfitt með að
gegna hlutverki sínu, ekki síst vegna þess
að þá vantaði alþjóðlegt lánshæfismat. Í
dag dygði einfaldlega ekki bankaábyrgð
frá íslenskum banka, erlendur banki yrði
að koma að málum líka. Að hluta til væri
verið að hverfa aftur til þeirra aðstæðna
sem ríktu þegar Erna hóf afskipti af grein
inni á sínum tíma. Gjaldeyrishöftin sjálf
væru síðan ekki til að einfalda hlutina.
„Það þarf stöðugt að vera útskýra af
hverju ástandið sé svona og af hverju þetta
virkar svona eða hinsegin. Þetta eru mikil
viðbrigði því auðvitað vorum við farin
að kynnast mjög skjótvirku og auðveldu
bankaumhverfi. Mér finnst að nú séum við
að upplifa hlutina eins og afi fékk að kynn
ast þegar hann byrjaði sinn rekstur. Eini
munurinn er að nú fá menn ekki skriflega
miða um að þeir hafi fengið úthlutað inn
flutningsleyfi. Við erum ekki komin þangað
en það vantar ekki mikið upp á það.“
hagsýni Eykst í bílakaupum
Erna segir að kaupmáttur hér innanlands
skipti miklu þegar kemur að bílakaupum.
„Það er auðvitað erfitt fyrir almenning að
eiga fyrir bíl. Verð þeirra hefur verið að
hækka um leið og kaupmáttur minnkar.
Því til viðbótar eldast bílarnir og bíllinn
sem kemur í uppítöku hjá fólki verður
stöðugt verðminni. Því er það svo að fólk
er að færa sig einn til tvo flokka niður. Það
hefur bara ekki efni á bíl sömu gerðar og
það átti áður. Eldsneytiseyðslan skiptir
gríðarlegu máli núna og fólk er miklu
hagsýnna en áður í bílakaupum.“ Erna
bendir á að Ísland sé og verði bílaland þar
sem almenningur þurfi að nota bíl, bæði í
leik og starfi. Flestir hafi vanist því frjáls
ræði að geta stokkið upp í bílinn og keyrt
þangað sem hugurinn stendur til.
En þegar allt þetta er metið þá er freist
andi að beina þeirri spurningu til Ernu
hvort þetta sé spennandi atvinnugrein
að koma inn í? „Það er alltaf spennandi
að takast á við nýja hluti. Ég lít svo á að
þetta sé fullt af skemmtilegum verkefnum
og það er engin spurning í mínum huga
„Þetta félag er hins
vegar allt ann
að en það sem ég
hætti hjá fyrir
fimm árum. Það
er í senn stærra
og fjöl breyttara og
sam setningin þar
af leiðandi önnur
en var.“
erna Hjá bL