Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 67

Frjáls verslun - 01.01.2013, Page 67
FRJÁLS VERSLUN 1. 2013 67 höFum vErið stopp oF lEngi Af þessari upptalningu má vera ljóst að Erna er einn þeirra aðila í íslensku við ­ skipt a lífi sem leitað var til eftir banka­ hrunið, bæði sem óháður stjórnarmaður og sem fjárfestir. Það er því freistandi að spyrja hana hvernig henni þyki hafa tekist til við að endurskipuleggja íslenskt viðskipta­ og efnahagslíf. „Mér fannst ganga vel til að byrja með. Við tókum mörg mikilsverð skref til að koma okkur af stað og það gekk ágætlega að byggja upp bankakerfið. Síðan finnst mér að við höfum verið stopp. Við sem þjóð verðum að fara að horfast í augu við ástandið. Einn kunningi minn lýsti því þannig að við værum með erlendan skulda­ og eignahala. Hann sagði að í einfaldri hagfræði birtist það þannig að Íslendingar framleiddu ekki nægilega mikið til að borga upp skuldir sínar. Ef við framleiðum ekki nægilegan gjaldeyri til að borga af eignum erlendra aðila hér á landi verðum við að finna einhverja leið til að komast út úr þessu. Við þurfum að horfast í augu við þetta ástand og fara að finna lausn á ástandinu. Það vorum við að gera í upphafi með neyðarlögunum sem settu málin í ákveðinn farveg. Það gerðum við vel en síðan hefur ekki orðið neitt meira þrátt fyrir tilraunir Seðlabankans til að koma okkur í gegnum gjaldeyrishöft með fjárfest­ ingaleið og öðrum úrræðum. Nú verðum við að ráðast í að endursemja um það sem eftir stendur og lengja í þeim skuldum sem út af standa.“ Erna segist ekki sjá að aðild að Evrópu sambandinu sé lausn á því sem við er að eiga. „Þýskir bankar ætlast til þess að fá borgað, hvort sem við erum í Evrópusam bandinu eða ekki. Mér finnst við vera stopp hvað svo sem veldur því. Við erum með veika ríkisstjórn og það er svo mikið af málum sem ekki er klárað. Þess í stað erum við að rótast í öðru sem veldur því að lítið hefur gerst síðustu tvö ár. Má vera að núverandi ríkisstjórn sé orðin þreytt, hugsanlega þarf að fara að hleypa að nýju blóði. Að mörgu leyti höf­ um við verið mjög heppin, ytri aðstæður hafa hjálpað okkur, hvort sem við erum að tala um sjávarútveg, ferðaþjónustu eða álframleiðslu. Við getum hins vegar ekki búist við því að það verði endalaust. Ég vil ekki hljóma of neikvæð en við verðum að fara að gera eitthvað.“ vErður að vEra gaman í vinnunni Þrátt fyrir að margir héldu að Erna væri að draga sig út úr daglegri stjórnun um tíma er ljóst að aldrei hefur verið meira að gera hjá henni á því sviði. Það er freistandi svona í lokin að spyrja hana hvers konar stjórnandi hún sé. „Mér finnst mjög gott að ræða við fólk og reyni að setja málin þannig upp að það fáist sameiginlegur skiln ingur á því hvert við erum að fara. Maður ætlast til þess að á meðan verið er að taka ákvörðun um að fara eitthvað þá sé það til umræðu en eftir að ákvörðun liggur fyrir þá fari menn þangað! Ég ætlast heldur ekki til meira af fólki en ég myndi ætlast til af mér sjálfri. Ég styð og stend með fólki þó að það taki rangar ákvarðanir, til dæmis gagnvart viðskiptavinum eða annað. Það getur vel verið að ég sé ekki alltaf sam­ mála en í 95% tilvika á fólk að vita hver hugur minn er. Mér finnst betra að vera hrein og bein og ræða út um hlutina. Það er yfirleitt betra að segja fólki við hverju maður býst, frekar en að það eigi að finna það á sér. Það gerir það sjaldnast. En svo á líka að vera gaman. Ég er ekki að segja að vinnustaðurinn eigi að vera skemmtistaður en það þarf stundum að vera gaman enda eyðir fólk miklum tíma í vinnunni. Fólk þarf að vera sátt hér í vinnunni og bera það með sér þegar það kemur heim,“ segir Erna og brosir. „Við ákváðum að hætta að tala bara um bíla í öllum fjölskylduboðum.“ Erna undirbýr að skera tertuna við 50 ára afmæli B&L árið 2004.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.