Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 66

Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 66
66 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 Flæði er góð leið fyrir stjórnendur til að auka árangur. Fyrirbærið flæði getur hjálpað okkur að skilja hvers vegna okkur líður eins og okkur líður og auðveldað okkur að finna meiri gleði og árangur í starfi, okkar rétta stað í lífinu og jafnvægi milli starfs og einkalífs. Hvað er flæði? Þegar þú opnar augun á morgnana og við blasir nýr vinnudagur, hvernig er þér þá innanbrjósts? Finnur þú til gleði, áhuga og tilhökk­ unar vegna verkefnanna sem bíða þín? Eða finnur þú til dep­ urðar, áhugaleysis og kvíða? Fyrirbærið flæði getur hjálpað okkur að skilja hvers vegna okk­ ur líður eins og okkur líður. Áhrifa jákvæðrar sálfræði gætir núorðið víða í kenningum um leiðtogahæfni. Flæði (e. flow) á kenningarlegan bak ­ grunn í jákvæðri sálfræði (e. positive psychology) og er einn þeirra þátta sem sýnt hefur verið fram á að geti aukið ham ­ ingju og jákvæðni. Guðfaðir kenninga um flæði er ungverski sálfræðingurinn Mi­ haly Csikszent mihalyi. Hann og aðstoðarmenn hans hafa rætt við hátt í 10.000 einstaklinga í rannsóknum sínum á flæði undan farin ár og niðurstöðurnar eru afar athyglisverðar. Hvað er flæði Flæði er huglægt ástand sem fólk upplifir þegar það ástundar eitthvað sem fær það til að gleyma tímanum, þreytunni og öllu öðru en einmitt því sem það er að fást við. Hæfni og áskorun mætast í hæfilegum hlutföll­ um þannig að áskorunin er örlítið meiri en hæfnin. Aðeins verkefnið fær athygli og það fyllir okkur orku í stað þess að taka hana frá okkur. Gildir þá einu hvert verkefnið er og hvort það hafi einhvern tilgang í sjálfu sér annan en fyrir gerandann. Þannig getum við upplifað flæði í krefjandi verkefnum í vinnunni, sjálfboðaliðastarfi, í samveru með fjölskyldu og vinum eða í öðrum verkefnum s.s. við íþrótta iðkun, útivist, lestur bóka, eða við að sinna hvaða áhuga ­ málum sem er. Sé áskorunin í verkefnum okkar of lítil dregur aftur á móti úr áhuganum og athafnasem ­ inni og yfir okkur hellist doði eða jafnvel leti. Þegar áskorun in og spennan verður meiri en svo að við höfum stjórn á aðstæðum er hætt við að hún hafi neikvæð áhrif á árangur okkar og valdi streitu. Líkam leg einkenni eins og höfuðverkur, vöðvaspenna, verkur fyrir brjóst inu, þreyta, meltingar trufl anir, svitaköst og svefnvanda mál gera vart við sig. Allir þessir neikvæðu þættir draga úr tæki færum okkar til að upp lifa vellíðan og skila okkar besta árangri, hvort sem er í starfi eða einkalífi. 8 þættir sem lýsa flæði Csikszentmihalyi hefur skilgreint átta þætti sem einkenna að ­ stæð ur þegar fólk upplifir flæði. 1) Markmið eru skýr – Sjálft markmiðið er mikilvægt en raunverulega gleðin felst ekki síður í þeim skrefum sem tekin eru í áttina að settu marki. 2) Endurgjöf er samstundis – Vissan um að vera að ná ár angri án þess að einhver segi það er nægjanleg en líka er gott að fá endurgjöf frá öðrum. 3) Jafnvægi er milli áskorun­ ar og kunnáttu – Of ögrandi verkefni fylla fólk kvíða en of einföld verkefni fylla fólk leiða. Mynd 1. lýsir tengslum áskorunar og kunnáttu, hvaða tilfinningar geta skapast við ákveðnar aðstæður og við hvaða aðstæður flæði skapast. Ferlið felur í sér að sífellt er sóst er eftir nýjum og flóknari viðfangsefnum. Tengsl áskorunar og kunnáttu og aðstæður sem skapa flæði. (Heimild: Good Business, Leadership, Flow and the Mak­ ing of Meaning (2003)). 4) Aukin einbeiting – Skilin á milli einstaklingsins og aðgerða hverfa, hugur og hönd renna saman, hugsunar­ og áreynslu­ laust. Hugurinn ræður ekki við marga flókna hluti í einu og því lokar hann fyrir ytra áreiti og nær fullkominni einbeitingu. 5) Aðeins núið skiptir máli – Athyglin er sett á núið. Mannshuganum er náttúrulegt að hugsa um ógnanir, ólokin verkefni, mistök og óuppfylltar þarfir, þegar honum er ekki beint að neinu sérstöku. 6) Að hafa vald á aðstæðum – Að hafa fullkomna stjórn gerist kannski sjaldan í raun veru leikan­ um en þegar það gerist fyllist fólk sjálfstrausti og það hefur ekki áhyggjur af hvort það geti klárað verkefnið. Sigrún Þorleifsdóttir stjórnunarráðgjafi hjá attentus – mannauði og ráðgjöf ehf. Fyrirbærið flæði getur hjálpað okk­ ur að skilja hvers vegna okkur líður eins og okkur líður og auðveldað okkur að finna meiri gleði og árangur í starfi, okkar rétta stað í lífinu og jafnvægi milli starfs og einkalífs. stjórnun Hvers vegna okkur líður eins og okkur líður?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.