Frjáls verslun - 01.01.2014, Side 101
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 101
MP BANKI
Sérfræðingar á fjármálamarkaði
Miklar áskoranir eru framundan í íslensku efnahagslífi. Skuldaskil gömlu bankanna og
hugsanlegt afnám gjaldeyrishafta eru umfangsmikil verkefni sem munu óneitanlega
hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf.
TexTi: Hrund HauKsdóTTir Myndir: Úr einKasafni
Takist vel til, að mati Dóru Axelsdóttur, forstöðu
manns einkabanka þjón ustu MP
banka, er einsýnt að tækifæri
íslenska hagkerfisins til lengri
tíma litið eru mikil:
„Hins vegar getur leiðin til
hagsældar verið hlykkjótt og
vandasöm. Því er mikil vægt
að njóta liðsinnis sérfræð inga
á fjármálamarkaði á um brota
tímum, sem óneitanlega eru
framundan í íslensku efna hags
lífi.
Eignastýring hefur allt frá
upphafi verið ein af megin
stoð um starfsemi MP banka.
Smæð bankans og óhæði hefur
reynst styrkleiki á liðnum
árum. Ber þar einkum að
nefna fjárfestingaáherslur
eignastýringar bankans á
umbrotaárunum 20072008.
Þegar um mitt ár 2008 voru
ríkisskuldabréf orðin ráð andi
eignaflokkur meðal viðskipta
vina eignastýringar bankans.
Þegar hrunið skall á af fullum
þunga í október 2008 voru
viðskiptavinir eignastýringar
MP banka því í betra skjóli en
margur.
fjölbreyttur viðskipta-
mannahópur
Viðskiptamannahópur eigna
stýringar er fjölbreyttur. Ein
stakl ingar hafa í auknum
mæli leitað til okkar því við
leitumst við að veita per sónu
lega þjónustu. Við leggj um
áherslu á að vera í góðu og
reglulegu sambandi við við
skiptavini okkar. Þrátt fyrir
að einstaklingar séu stærsti
viðskiptamannahópur eigna
stýringar MP banka hefur færst
mjög í vöxt á undanförnum
misserum að fagfjárfestar og
lífeyrissjóðir nýti sér þjón ustu
bankans. Að sama skapi er
fjöldi félagasamtaka, fyrir
tækja og styrktarsjóða í við
skipt um hjá eignastýringu MP.
Til marks um það traust sem
MP banki nýtur má nefna að
Tryggingasjóður inni stæðu
eig enda og fjárfesta (TIF)
valdi nýlega MP banka til að
stýra eignasafni sínu í kjölfar
ítarlegs útboðsferlis. Einn helsti
styrkleiki eignastýringar MP
banka er hversu fjölbreyttan
bakgrunn starfsmenn hafa.
Okkar starfsfólk hefur starfað í
ýmsum geirum atvinnulífsins.
Þó er það engu að síður
svo að samanlögð reynsla
starfs fólks eignastýringar af
fjármálamarkaði er yfir 100 ár.
farsælt samstarf við Credit
Suisse
Þrátt fyrir að gjaldeyrishöft
komi í veg fyrir nýjar fjárfest
ingar erlendis um þessar
mund ir er erlend verðbréfaeign
innlendra fjárfesta engu að
síður umtalsverð. Eignastýring
MP banka er vel í stakk búin
til að þjónusta alþjóðlegar
fjárfestingar fyrir tilstuðlan
farsæls samstarfs við alþjóð
lega bankann Credit Suisse.
MP banki þjónustar bæði
einstaklinga, stofnanir, fag fjár
festa og aðra þá sem stunda
alþjóðlegar fjárfestingar.
Hagkerfi og hlutabréf slá
í takt
Verð hlutabréfa slær í takt við
vöxt hagkerfisins til lengri
tíma litið. Vænkist hagur ís
lenska hagkerfisins á næstu
árum má leiða líkum að því að
verðmæti skráðra hlutabréfa
muni mögulega vaxa með.
Þrátt fyrir að verð ákveðinna
hlutabréfa á markaði hafi
hækkað hraustlega á árinu
2013 á markaðurinn í heild
nokkuð í land með að ná fyrri
styrk. Þrátt fyrir að innlendur
hluta bréfamarkaður muni
seint ná hæðum síðasta ára
tugar má gera ráð fyrir því
að nýskráningar á markað og
vöxtur skráðra fyrirtækja geti
falið í sér góð tækifæri fyrir
fjár festa á komandi árum.“
„Til marks um það
traust sem MP banki
nýtur má nefna að
Trygg ingasjóður inni
stæðueigenda og
fjárfesta (TIF) valdi
nýlega MP banka til að
stýra eignasafni bank
ans í kjölfar ítarlegs
útboðsferlis.“
Dóra Axelsdóttir, forstöðu
maður einkabankaþjónustu MP
banka.
Tryggvi Tryggvason forstöðumaður eignastýringar, Þórður Gunnars
son sérfræðingur í einkabankaþjónustu og Kristinn Jóhannes
Magnússon sérfræðingur í eignastýringu.