Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2008, Síða 5
Ljósmynd: Bára Kristinsdóttir
XVIII. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA
FYLGIRIT 57
Velkomin á XVIII. þing Félags
íslenskra lyflækna á Selfossi
Kærufélagar.
Pálsson
læknir
formaður Félags
íslenskra lyflækna
Fyrir hönd stjómar Félags íslenskra lyflækna býð
ég ykkur velkomin á XVIII. vísindaþing félagsins
sem fer fram á Hótel Selfossi, 6.-8. júní 2008. Þessi
þing hafa í meira en þrjá áratugi verið mikilvægur
vettvangur fyrir lyflækna hér á landi til að kynna
vísindarannsóknir sínar og skiptast á skoðunum
um áhugaverð málefni á sviði lyflækninga eða
heilbrigðismála. Óhætt er að segja að þingin hafi
verið í stöðugri framþróun undanfarin ár. Til að
mæta auknum faglegum gæðum hefur stjórn
Félags íslenskra lyflækna lagt sérstaka áherslu á
að öll aðstaða sé góð. Fullnægjandi aðstaða er ekki
fyrir hendi nema í Reykjavík og næsta nágrenni
og því hefur verið horfið frá því um sinn að halda
þingin fjarri höfuðborgarsvæðinu eins og tíðkast
hefur í gegnum árin. Raunar var kannað hvort
fýsilegt væri að halda þingið í Reykjavík að þessu
sinni en það reyndist of kostnaðarsamt og því varð
Selfoss fyrir valinu eins og fyrir tveimur árum.
Dagskrá þingsins er sérlega glæsileg að þessu
sinni og ætti að höfða til breiðs hóps lyflækna
og annarra áhugasamra um lyflæknisfræði.
Meginþemað er blóðsjúkdómar og krabbamein
en að auki verða ýmis önnur viðfangsefni krufin
til mergjar. Meðal þess sem ber hæst er málþing
um blóðsjúkdóma og er það tileinkað minningu
læknanna Jóhönnu Björnsdóttur og Guðmundar
M. Jóhannessonar, sérfræðinga í blóðlækning-
um. Meðal fyrirlesara á málþinginu verður dr.
Cynthia Dunbar frá National Institutes of Health
í Bandaríkjunum en hún er aðalritstjóri tímaritsins
Blood og mun erindi hennar fjalla um genalækn-
ingar. Enn fremur verður málþing um nýjungar í
lyfjameðferð krabbameina og verður meðal ann-
ars skipst á skoðunum um notagildi nýrra lyfja og
þann mikla kostnað þau geta haft í för með sér. Þá
verður kastljósi beint að lifrarlækningum og mun
Roger Williams, CBE, prófessor við Royal Free and
University College Medical School í Bretlandi, einn
virtasti sérfræðingur heims á þessu sviði, flytja er-
indi sem meðal annars fjallar um þróun þessarar
„nýju" og ört vaxandi sérgreinar innan lyflækn-
inga. Að venju verður kynning vísindarannsókna
stór þáttur og hefur vísindanefnd félagsins sam-
þykkt 74 ágrip til kynningar á þinginu, ýmist með
erindi eða veggspjaldi. Veitt verða verðlaun fyrir
framúrskarandi rannsókn ungs læknis og fyrir
besta framlag læknanema.
I tengslum við síðasta þing var bryddað upp
á þeirri nýjung að hafa sérstaka dagskrá fyrir
unga lækna sem stunda eða hyggja á framhalds-
nám í lyflækningum og þótti það heppnast vel.
Ákveðið hefur verið að halda áfram á þessari
braut og verður formleg dagskrá fyrir unga lækna
við upphaf þingsins. Þar munu deildarlæknarnir
Jónas Geir Einarsson og Ragnar Freyr Ingvarsson
greina frá þátttöku sinni í Evrópska lyflæknaskól-
anum (European School of Internal Medicine) í
september á síðastliðnu ári. Einnig mun sérstakur
gestur, Roger W. Duckitt, ritari Young Internists
Group, innan vébanda European Federation of
Internal Medicine, kynna helstu málefni ungra
lyflækna í Evrópu. Loks verða flutt yfirlitserindi
um áhugaverð og hagnýt efni.
Að venju verður efnt til vandaðrar skemmti-
dagskrár í tengslum við þingið. Ég vil vekja sér-
staka athygli á hátíðarkvöldverði laugardaginn
7. júní þar sem lyf- og blóðlæknirinn Páll Torfi
Önundarson mun sjá um vandaða tónlistardag-
skrá ásamt landsþekktum tónlistarmönnum.
Að vanda hefur Birna Þórðardóttir hjá Menn-
ingarfylgd Birnu annast skipulag og undirbúning
þingsins í samvinnu við stjórn Félags íslenskra
lyflækna. Þetta samstarf hefur verið einkar gott og
vil ég nota þetta tækifæri til að þakka Birnu fyrir
störf hennar í þágu Félags íslenskra lyflækna í
gegnum árin. Lyfjafyrirtækið Vistor er aðalstyrkt-
araðili þingsins í ár eins og fyrir tveimur árum.
Færi ég þeim og öðrum stuðningsaðilum okkar
bestu þakkir.
Hittumst heil á Selfossi.
LÆKNAblaðið 2008/94 5